hm

Posted June 7th, 2006. Filed under Uncategorized

57oghálfurtími…
HM bloggið er lifnað við!
Nennti ekki að horfa á Bubba til enda í gær.
Síðustu árin hef ég svona verið að vona að úr Framsóknarflokknum yrði einhvern tímann svona hægrimiðfjálsfélagshyggjuflokkur. Held að það sé vonlaust, þetta endar í öskustónni. Spurning samt hvað þeir sem eru á svipaðri línu og ég og eru þarna inni gera.
Vandamálið er auðvitað að það fer engin, eða nær engin í pólitík sem hefur ekki verið gegnsýrð af bröltinu frá ungliðahreyfingu og uppúr. Þess vegna er næsta vonlítið að allt í einu spretti upp svona vonarflokkur minn með góðu fólki á sömu línu, laust við fortíðardrauga. Just ain’t gonna happen. Einu flokkarnir sem verða til alltíeinu verða til út af einhverjum hjartansmálum svo sem rasisma, umhverfismálum eða öðru (góðu eða slæmu) sem nógu margir verða svo hugfangnir af að úr verður fjöldahreyfing.
Við mjúka fólkið í hægrimiðfrjálsfélagsflokknum verðum seint svo æst.

ni%c3%b0urtalning-575

Posted June 7th, 2006. Filed under Uncategorized

HM sérritin drífur að, Moggi þéttur í morgun, kominn með fast form á öllum mótaútgáfum fótbolta og handbolta, Fréttablaðið er þynnra.
En kóngurinn er mættur! Kicker WM Sonderheft 2006 er komið í hús. Einhvers staðar á ég enn heftið frá 1978 þegar ég horfði fyrst á beinar útsendingar þegar ég var á Spáni. Það er orðið lúið, vantar ystu síður en það jafnar enginn þessa umfjöllun.
HM síða Guardian virðist ætla að massa þetta, hún er ógnvænlega umfangsmikil.
Bendi enn og aftur á tenglana hér yst, þar dettur ýmislegt inn þó ég bloggi það ekki allt beint.

barfly

Posted June 5th, 2006. Filed under Uncategorized

Lag kvöldsins er Barfly.
Lalalla la la lalla!
Geysisætur sigur á Völsurum, 3 – 1. Eftir tvö töp hélt maður að þetta gæti orðið erfitt þó það sæist að liðið ætti miklu meira inni og það er að sýna sig.
Nú er bara að halda dampi!

kosningar

Posted May 27th, 2006. Filed under Uncategorized

Vaknaði tiltölulega seint (hálf níu) og þar sem heilsan var bara í góðu lagi þrátt fyrir smá viskísmökkun í gær (þar sem ég lærði líka að að steikja mjúkskeljarkrabba) dreif ég mig niður í vinnu til að sinna prófunum sem ég eiginlega hafði komið á aðra. Það tókst vel og ég fór heim og dreif mig í bestu fötin og rölti upp hæðina og í Breiðagerðisskóla og kaus. Mæli með að þið gerið slíkt hið sama.
Ákvað mig ekki endanlega fyrr en inni í klefa. Ég sé að aðrir frjálshyggnir félagshyggjumenn í bloggheimum hafa átt í svipuðum vandræðum og ég. (vill ekki einhver stofna flokk? plís?) En á endanum þarf alltaf að ákveða sig, hvort sem skilað er auðu, Samfylkingin er kosin eða Sjálfstæðisflokkurinn.. Mér tókst líka að ákveða mig. Það eina sem ég get fullyrt og var alltaf öruggt að það var ekki kross við F.
Núna ætla eg að eyða deginum í ekki neitt.
ps. Arnaldur er kominn í kilju. Var hún ekki frekar slök?

fjogur-eitt

Posted May 25th, 2006. Filed under Uncategorized

Víkíngur vann Breiðablik í dag fjögur – eitt. 4. 1. Fjögur. Eitt. f-j-ö-g-u-r…
Ég get varla hætt að segja þetta. Fjögur – eitt.
Enda veit maður aldrei hvenær næst gefst tækifæri á að þylja svona markatölu.
það var lagið piltar!
Víkin var full af pólitíkusum. Hvað er eiginlega í gangi?? Kosningar??

myktin-mikla

Posted May 23rd, 2006. Filed under Uncategorized

Fékk kosningabækling exdé inn um lúguna. Og aldrei þessu vant last ég bleðilinn. Og vá. Ég grandskoðaði og leitaði, og það eina í honum sem jaðraði við frjálshyggju og áherslu á einkaframtak var að börn mættu velja um grunnskóla. Sem í sjálfu sér er ekki einu sinni loforð um einkarekstur. Mýktin er eins og í hlassi af sykurpúðum. Og sykurpúðalýsingin á reyndar við allar fallegu myndirnar af frambjóðendunum líka.
Einhvern veginn býður mig í grun að það verði ekki bara þessi bæklingur sem ráði för. Og mikið hlýtur að vera leiðinlegt fyrir hægri menn í flokknum að mega ekki vera með í borgarpólitík nema bera huliðshjálm.

vinstri-gr%c3%a6nir-umhverfisv%c3%a6nir

Posted May 18th, 2006. Filed under Uncategorized

Never mind þetta með hömmerinn. Heyrði ekki betur en heill tómur strætó fyrir utan Austurver í dag væri með vélina í gangi bæði þegar ég kom og fór. Dædóinn var vel merktur VG og inni voru einhverjir að dreifa miðum. Ekki mjög grænt!

v%c3%a6l-alltaf

Posted May 18th, 2006. Filed under Uncategorized

Arsenal menn byrjaðir að væla undan dómaranum. Ætli þeir hefðu vælt ef leikaraskapurinn í Eboue hefði ráðið úrslitum?
Aumingjar eru þetta…

fjukk

Posted May 17th, 2006. Filed under Uncategorized

Mikið svakalega er ég feginn að Barça vann. Þetta hefði annars verið næstum jafn erfitt og í fyrra. Það er alveg fyrir utan það að ég held með Barça meira en flestum liðum fyrir utan United og Víking.

uffeh

Posted May 16th, 2006. Filed under Uncategorized

Ekki fór þessi fyrsta umferð vel. Víkingar töpuðu gegn slökum, en skárri, Fylkismönnum, lögðust saman eftir að fá á sig mark. Og öll liðin sem spáð var í neðri hlutanum unnu. Þetta gæti orðið strembið.
Annars er bara komið vor. Bjart á morgnana og fjör. Það stendur á skyr.is drykkjardollunum að þær eigi að hristast. Það er hvergi varað við að það megi ekki hrista eftir að þær hafi verið opnaðar. Það finnst mér galli. Spurning um að fara í mál? Mig gæti vantað nýtt lyklaborð.
Af hverju kemur það ekkert á óvart að Juve hafi óhreint mjöl í pokahorninu? Eða að Sleazio Berlusconi fari fyrstur manna að væla. Bara af því að hann var ekki hleraður…
Svo er ég aðeins að fá spennu fyrir HM. HM bloggið fer að fara af stað. Byrjar örugglega á því að slatti af HM tenglum fer þarna inn. Reyndar þarf ég að fara í brúðkaup í BNA um miðjan júní og missi úr nokkra daga, en það sorglega er að það er varla nokkur leikur þessa 6 daga sem er spennandi á pappírnum. Þannig er það. Svo slepp ég við að styðja KR fjárhaglega með að fara á KR – Víking.

m%c3%a6%c3%b0radagurinn

Posted May 14th, 2006. Filed under Uncategorized

The NSA would like to remind everyone to call their mothers this Sunday. They need to calibrate their system.

Það er allt gott og blessað að fylgjast með fótbolta í sjónvarpi, en í dag byrjar alvaran. Víkingur – Fylkir kl 4. Síðast þegar Víkingur lék í núlltu deild töpuðum við fyrsta leik 0-4 sem setti menn alveg út af laginu. Það gerist ekki núna.
Berserkir verða vonandi í stuði.

uff-2

Posted April 29th, 2006. Filed under Uncategorized

Klæddi mig í dag og er búinn að hanga fyrir framan sjónvarpið. Snókerinn er sýnu skemmtilegri en fótboltinn. Skelfilegt að klára sísonið með svona tapi gegn meisturunum. Ekki það, þeir hafa verið betri í vetur, enda United átt í skelfilegum vandræðum. Þetta var bara óþarfi.
En þetta er sem sagt í fyrsta skiptið síðan á föstudag fyrir viku að ég ligg ekki í bælinu allan daginn. Er enn með hita, smá hálsbólgu og kvef. Ég ætla aldrei aftur að kalla tveggja daga slæmsku ‘flensu’. Aldrei. Vona ég verði orðinn vinnufær á þriðjudaginn.

alltaf-gaman-a%c3%b0-liverpool

Posted April 24th, 2006. Filed under Uncategorized

Alltaf gaman að sjá hvað stuðningsmenn Liverpool eru góðhjartaðar sálir sem vilja engum illt og eru hreinlega englar í mannsmynd.
Eða þannig. Hér eru myndir af því hvernig þeir skildu við Old Trafford á laugardaginn
Er að skríða saman. Núna er ég bara eins og ég sé með með slæma hálsbólgu og kvef. Vinnufélagi var að bjalla þannig að ég þurfti að tala í fyrsta skipti í tvo daga og þá þessi líka fallega viskírödd.
(skrifaði þetta í morgun, er aðeins skárri núna en var aftur kominn með 40 stiga hita í millitíðinni)

flott-tala

Posted April 23rd, 2006. Filed under Uncategorized

40,4°C er frekar flott tala.
Held ég geti kennt um að hafa verið undir dúnsæng, ullarteppi, flísteppi (loksins kom lífeyrssjóðateppið í góðar þarfir), í náttfötum og flísslopp.
Er ekki með ofskynjanir að ráði.
Læt vita af mér reglulegu millibili, ekki hringja 😀

og-svo

Posted April 22nd, 2006. Filed under Uncategorized

…beinverkir.
Þetta stefnir í æðislega helgi. Eins gott ég náði mér í rafmagnssnúru á lappann í gær.

o-skollinn

Posted April 22nd, 2006. Filed under Uncategorized

Nei ekki aftur…
Var þreyttur og slæptur í gær, snemma í háttinn… og vaknaði með hálsbólgu.
Veikindi um helgar, það er ekki að spyrja að vinnuhollustunni.
Vinnufélaginn tjáir sig um málefni RÚV og ólíkt sumum flokksfélögum er heiðarlegur og staðfestir að hfvæðingin er auðvitað bara undanfari niðurlagningar. Er nema von að margir berjast á móti, þar með talið starfsmenn. Frjálshyggjuórarnir eru auðvitað með í ferð, og starfsmenn mega ekki segja orð um málefni síns eigin vinnustaðar, þeir eru bara launaþrælar.
Það er auðvitað ekki þar með sagt að starfsmenn eigi að ráða ferð, en bil beggja er til. Það er hins vegar ekki til í frjálshyggjuorðabókinni, þar ræður bara eitt.

gle%c3%b0ilegt-sumar

Posted April 20th, 2006. Filed under Uncategorized

Gleðilegt sumar öllsömul.
Það var alveg hreint þrælfínt skrall í gærkvöld. Gaman að svona föstudögum í miðri viku. Alltaf gaman líka að rekast á kunningja sem maður hefur hefur ekki hitt í nokkur ár, rakst á einn slíkan, fyrrum sumarmann í Seðlabankanum.

201

Posted April 19th, 2006. Filed under Uncategorized

Ótrúlegt nokk held ég að það séu einn eða tveir lesendur sem skilja hvers vegna Australia 581-4 dec (JN Gillespie 201*) eru alveg magnaðar tölur.
Hann hefur þar með náð hærra skori en t.d. báðir Waugh bræður. Hvorugur náði tvíöld. Mark náði aldrei tvíöld, en Steve náði mest 200 sléttum.
Þetta er ekki ósvipað því og t.d. ef að Gary Neville væri settur í framlínuna og skoraði fimm mörk í einum leik.

meistarar

Posted April 16th, 2006. Filed under Uncategorized

Það er ekki allt slæmar fréttir í United fjölskyldunni þessa helgina. FC United of Manchester eru deildarmeistarar. Strax ári eftir stofnun. Þetta hefur verið erfitt ár fyrir flesta gallharða stuðningsmenn, margir verið klofnir í afstöðu, en aðrir gallharðir öðru hvoru megin, en það er ljóst að það er vandfundið lið neðan ‘kvenfélagsdeildarinnar’ (smbr hér) sem hefur eins frábæra stuðningsmenn, enda ekki nema von þegar 2-3000 af reyndustu og háværustu stuðingsmenn United taka saman höndum. Ég þarf að fara að drífa mig til Manchester. Ég hef ekki getað fengið af mér að yfirgefa United, en hitt er víst að ég ætti að reyna að taka helgarferð og sjá bæði United liðin.
Ég er reyndar nokkuð viss um hvar stemmingin er betri.

logbrot

Posted April 16th, 2006. Filed under Uncategorized

Ætli ég sé að brjóta lög um helgidagavinnu? Eins gott að ég er ekki í verkalýðsfélagi, þeir væru hér að draga mig öfugan út!
Fékk þennan snilldarmálshátt í egginu: Lán er betra en laust fé.
Held að margir Íslendingar fari eftir þessu en misskilji aðeins fyrsta orðið. Umsjónarmanni millibankalána hérna þótti þetta líka alveg smellfyndið áðan.
Farinn aftur í pósthólfsmykjumokstur.