oruggt-mal

Posted April 15th, 2006. Filed under Uncategorized

Var í skapi fyrir froðu með kvöldmatnum og setti The Sure Thing í tækið. Cusack alltaf jafn góður, líka í þessarri fyrsta aðalhlutverki sínu. Fór að velta fyrir mér hvort Daphne Zuniga hefði gert eitthvað af viti síðan (svarið er Nei, nema þú teljir Spaceballs með), þótti skondið að sjá Tim Robbins og fattaði ekki hver besti vinurinn var fyrr en ég sá Anthony Green í kreditlistanum. Örugglega svipaðar pælíngar og síðast þegar ég horfði, enda gleyminn með afbrigðum.
Samt velti ég kannske mest fyrir mér titilpersónunni. Strax frá fyrsta skoti var ljóst að þessi mynd var hundgömul, svona flatneskjulegur framhluti fengi ekki nokkra athygli í holuviði í dag, silikon bjargar öllu. Fór svo að velta fyrir mér hver þetta væri, en kom hvorki nafni né andliti fyrir mér.
Horfði svo á nýlega þátt um gerð myndarinnar. Þar kom Frk Mál (Miss Thing) fram. Ég kannaðist strax við leikkonuna, en kveikti ekki. Ekki fyrr en í öðru innslagi hennar þegar nafnið kom undir.
Þetta hefði ekki komið fyrir ef ég hefði verið jafn dyggur áhorfandi Hugstola húsmæðra þennan veturinn eins og í fyrra, allir slíkir hefðu þekkt Nicollette Sheridan sem tæfuna Edie Britt undireins.

morguninn-eftir-kvoldi%c3%b0-a%c3%b0ur

Posted April 15th, 2006. Filed under Uncategorized

Þar fór sú litla von. Tólfta stig Sunderland í höfn og titillinn nær örugglega horfinn.
Það versta var að þetta var miðað við leiktíðina alveg fyrirsjáanlegt og bullið í Valtýri Birnirium markasúpu jók enn á hvað þetta var fyrirsjáanlegt. Jafnvel þó keeperinn þeirra ætti stórleik.
Ojæja… við þurfum bara að tryggja annað sætið og vinna Chelsea bara uppá heiðurinn.
Kvefið er að réna, vaknaði með kverkaskít sem er horfinn, en ætla bara að hafa það rólegt undir sæng í dag. Þá klárast þetta kannske. Þarf þó að skreppa í búðir.

kvebb

Posted April 14th, 2006. Filed under Uncategorized

Ébb ebb mebb kvebb….
Er reyndar að skána í dag. En það er ekki að spyrja að hollustunni við vinnuna, take þetta út svona í fríinu. Svona til að gera mér lífið leiðara tók rafmagnssnúran í lappanum upp á að bila (ef einhver á aukasnúru sem passar á Dell C400 væri hún vel þegin og greidd…) en þá bjargar nýja leikfangið mér. Archosinn getur reyndar ekki farið þráðlaust á netið, en ég get þó allavega horft á það sem mig langar að horfa á. Svo er reyndar gamla stóra sjónvarpið komið niður í svefnherbergi þannig að það er hægt að horfa á dvd. Málið er bara að gæðamunurinn á því og því nýja er svo mikill að ég vil ekki horfa nema á 4×3 sjónvarpsþætti 🙂 T.d. Father Ted.
Talandi um leikföng, þá fékk ég mér reyndar tvö slík í tilefni þess að Hildigunnur og Jón Lárus voru á leiðinni í mat. Annað reyndar bara aumt mortél sem gæti reyndar reynst notadrjúgt, en hitt alvöru hnífur. Nýtti mér Gestgjafaafsláttinn og fékk mér kokkahníf frá Global. Munurinn frá brauðhnífnum sem ég hef notað frá í Glasgow (á reyndar líka venjulegan hníf frá því þá sem er vitabitlaus) er ótrúlegur. Nú átta ég mig á muninum á að skera og að saga.
En nú er ég búinn að bæta nógu á tækið fyrir eftirmiddaginn og er skriðinn aftur undir sæng.

nammi-namm

Posted April 13th, 2006. Filed under Uncategorized

Þetta tókst gríðarvel í gær. Matartilraunin var bara nokkuð góð (lamb í karhi sósu) og forrétturinn og eftirrétturinn voru nákvæmlega eins og þeir áttu að vera enda valdir með tilliti til þess að geta ekki klikkað, ef ske kynni að lambið yrði ekki sem skyldi.
Reyndar gekk kannske minna á rauðvínsbirgðirnar en ætlað var fyrir, en á móti kom að viskísmökkunin gekk þeim mun betur. Ég veit að ég missti alveg sjónar á klukkunni og held að gestirnir hafi gert það líka, kemur ekki að sök hjá mér, vona að sama gildi um gestina.
Sem fyrr er mín ágæta innri vekjaraklukka í góðu lagi og ég var vaknaður um sexleytið, mjög hress miðað við aðstæður (vatn er góður meðspilari í viskísmökkun). Er samt kominn með kvefsnuddu. Held ég kúri undir sæng mestan hluta dags og láti bækur og tölvuna um að stytta mér stundir.

dagur-a%c3%b0-kveldi-kominn

Posted April 2nd, 2006. Filed under Uncategorized

Í eftirmiddaginn var fermingarveisla sem dróst á langinn, enda var matur og kaffi. Ég var ekki kominn heim fyrr en undir níu og í tilefni dagsins hellti ég mér í glas af uppáhaldsviskíinu mínu, Midleton, í glas, og setti einn uppáhaldsdiskinn minn í spilarann. The Divine Comedy at the London Palladium voru frábærir tónleikar og dvddiskurinn er æði.
Ágætur endir á mínum degi.
Já, ég er árinu eldri…

smjatt

Posted April 2nd, 2006. Filed under Uncategorized

Ég fékk mér reyndar ekki kókópöffs í morgunmat, en þetta var ágætis steik í hádeginu.

husaveiki

Posted March 26th, 2006. Filed under Uncategorized

Við veltum því alltaf fyrir okkur hvort Seðló væri ekki húsaveikur. Nú er víst búið að afsanna það almennt, en hitt er víst að ég er haldinn ákveðinni húsaveiki.
Ég keypti fyrstu önn af Húsi, lækni, úti, er búinn að horfa á hana og náði mér núna í það sem af er annarri önn. Laurie er bara snillingur.
Annars get ég ekki látið mér detta neitt sniðugt í hug. Og þó. Það bendir allt til að innan skamms verði húsið mitt rækilega vírað. Hef ekki hugmynd um hvað verkið tekur langan tíma en það skiptir ekki öllu. Plönin eins og þau standa núna hljóma geysilega vel. Hefur tekið lengri tíma að ganga í þetta en upphaflega ætlað, en held að það hafi ákveðna kosti í för með sér.
Ferming um næstu helgi. Þetta og næstu 13 árin á eftir fæ ég frí frá fermingum eitt árið. Nema náttlega fermingarbörnin sjái ekki ástæðu til að bjóða ekki afa/ömmubróður sínum. Eða þau ákveði að fermast ekki. Þá myndi trúleysinginn glotta.

kalt

Posted March 19th, 2006. Filed under Uncategorized

Djöfull er kalt hér. Næst kem ég hér í maí eða júni.
En þetta er búið að vera fínt. 102. hæðin var opin í Empire State, miklu flottara útsýni (og færri og dýrara) en pallurinn á 86. hæð. Mæli með því.
Eftir: MoMA, Intrepid, The Met, og Ben & Jerry’s. Annað verður leikið af fingrum fram.

nothing-to-see-move-right-along

Posted March 12th, 2006. Filed under Uncategorized

Hef ekkert að segja, en mér finnst það ekki góðum málum til framdráttar að beita grófu tilfinningaklámi. Það getur vel verið að eitthvað megi betur fara í rekstri LSH en 80 millur verða ekki hristar fram úr ermi.
Smókinginn minn var upptekinn þessa vikuna, árshátíðin á laugardaginn og fiðluball á fimmtudaginn. Ég vona að hann hafi skemmt sér vel.
Aldrei þessu vant gerði Fjárstýring sér glaðan föstudag. Í þetta skiptið rólegt Ædolpartý (fyrsta skiptið sem ég sé þetta í heild, og sanngjörn úrslit. Maðurinn myrti Sway, Og það hefur engin áhrif að ég kann Dean Martin útgáfuna það vel að ég get hlustað á hana alla án þess að þurfa að kveikja á tónstokknum. Heh.
Ég gerði skattinn minn í dag. Ekki mjög flókið. Muna það næst og ekki mikla það fyrir mér. Nema ég kaupi eins og eitt hús.

%c3%beor%c3%b0argle%c3%b0i

Posted March 8th, 2006. Filed under Uncategorized

Þórður rokkar þéttingsfeitt í kvöld.

%c3%bejofna%c3%b0ur

Posted March 6th, 2006. Filed under Uncategorized

Þetta var náttúrulega bara hreinn og klár þjófnaður. Ef United hefði verið öfugu megin á þessu hefði ég hreinlega farið að gráta. Eitt skot sem hitti á mark, og eitt í þverslá og við unnum 2-1. Geysilega kærkomin stig en Pascal Chimbonda er óheppnasti, og klaufskasti maður í heimi í kvöld.
Svo er bara Áfram Barca og Benfica á miðvikudaginn. Mér er eiginlega sama um leikinn á morgun, Arsenal má alveg komast áfram, enda líklegt að Juve og Barca eigi bæði auðvelt með þá. Vonandi allavega.

arshati%c3%b0arhelgi

Posted March 6th, 2006. Filed under Uncategorized

Eins og einhverjir bankabloggaranna hafa minnst á var árshátíð. Kvöldið byrjaði með fordrykk hér í Giljalandi. Það var allt skaffað af bankanum og því var þetta með áreynsluminni partíum sem ég hef haldið. Síðan héldum við í Höllina og þar var kátt. Bagglýtingar beittu textagerðarsnilld sinni á KB og WigWam sá um að fylla gólfið. Milljónamæringarnir héldu því þannig fram til tvö og þá var haldið í bæinn. Það var þreyttur en ánægður björn sem skreið í ból undir morgun.
Í gær komu síðan nokkrir gestir að mestu óboðnir sem sáu um að klára leifar af ostabakkanum, allt var það ágætt.

tilbuinn

Posted March 3rd, 2006. Filed under Uncategorized

Húsið er hreint og að mestu til tekið, helmingur veitinga kominn í hús, búinn að máta smókinginn og taka til fötin, pússa yfir skóna og er núna salírólegur yfir þessu öllu saman. Það er nefnilega árshátíð á morgun, sem byrjar hér heima. Úje.

fotbolti-og-gettu-betur

Posted March 2nd, 2006. Filed under Uncategorized

Lítur út fyrir að ég missi af Gettu Betur í kvöld, enda munu Frammara og Víkingar kljást um Reykjavíkurmeistaratitil. Hægt að segja ýmislegt um þessa keppni en titill og titill og dolla er dolla og ekki ætlum við að fara að tapa.
Mínir menn í MR finnst mér nokkuð kræfir að ætla að þetta sé í fyrsta skiptið sem allir liðsmenn MR séu úr Vesturbænum í 21 árs sögu keppninnar. Ég veit amk um tvö mótdæmi 🙂
Nema auðvitað að þeir segji eins og ég stundum og það er að allt sunnan Hringbrautar sé úthverfi.

fyrsta-hanagal

Posted February 28th, 2006. Filed under Uncategorized

Eftir rúman sólarhring í rúminu var ekki möguleiki að vinna gegn, nei anskotinn hafi það, ég kalla þetta ekki heilkenni, frekar innbyggðu letina. Nema hvað, ef maður sofnar sjö þá vaknar maður þrjú. Hef fengið verri ælupestir þó, þessi varði stutt en “þynnkan” eftir hana var lengri. Svo er bara að berjast gegn svefninum í kvöld. Ein lausn er að fara í að uppfæra bókalistann, hef lesið heilmikið undanfarið án þess að uppfæra, aðeins meira maus að uppfæra þegar þarf að ftp-a upp á server í stað þess að editera bara skrána og bíngó. undo.com er sem sagt hætt að búa á heimavélinni minni
Hvernig í ósköpunum stendur á því að Fréttablaðið er komið hér um miðjar nætur? Komið núna fyrir þrjú, og ég heyrði í lúgunni á mánudagsmorgun kl 2, yfir látunum í maganum á mér. Greinilega betri blaðberar hér en annars staðar. Verst að það eru ekki betri blöð.
Sá ekki einu sinni sigur minna manna í plastbikarnum. Svona bikar sem er allt í lagi að vinna en ömurlegt að tapa í úrslitum. Þannig að þetta var fínt. Hins vegar var ömurlegt að sjá SAF hrósa Glazersonum og tala um alla peningana sem þeir hafa lagt í klúbbinn. Þeir hafa ekki lagt krónu í klúbbinn, en fyrir skuldirnar sem þeir hafa hlaðið á hann væri hægt að kaupa 20-30m punda leikmann á hverju ári. Til frambúðar.
Þetta mun versna áður en það batnar. Urr og grr og arrgh.
Febrúar bara að klárast. Og enn einn og hálfur mánuður í páskahretið! Framundan er árshátíð og utanlandsferð. Það verður snjallt.

heilkenni

Posted February 24th, 2006. Filed under Uncategorized

Ég sem hélt að ég væri bara kvöldsvæfur morgunhani, en núna sé ég að þetta er bara alvöru heilkenni.
Svona meira eða minna allavega…

krulla

Posted February 16th, 2006. Filed under Uncategorized

Bretar, þeas Skotar eru að verja ólympíutitil sinn í krullu kvenna.
Einhvern tímann hefði þurft að segja mér það tvisvar að skoskar húsmæður væru Ólympíumeistarar í skúríngum…

gkar-dainn

Posted February 15th, 2006. Filed under Uncategorized

Andreas Katsulas, best þekktur fyrir leik sinn sem G’Kar í bestu sjónvarpsþáttum allra tíma, Babylon 5 er dáinn. Reyndar hefði verið erfitt að þekkja hann af götu úr því hlutverki enda falinn að mestu bakvið latex. En ekki hefði ég munað eftir honum sem einhenta manninum heldur. Ólíkt Ármanni

juju-%c3%beetta-var-m%c3%a6%c3%b0a

Posted February 14th, 2006. Filed under Uncategorized

Fór heim rétt eftir hádegi í gær, verulega slappur, lá í bælinu allan daginn og svaf út í morgun. Mánudagurinn 13. lætur ekki að sér hæða.

Dear Amazon.co.uk Customer,
We’ve noticed that customers who have purchased Scousebusters ’85 – Manchester United v Merseyside have also ordered Chelsea FC – Chelsea Centenary (DVD ).

Fékk svo þetta í póstinum. Held að einhver þurfi aðeins að fínstilla gervigreindina hjá amazon.

manudagur

Posted February 13th, 2006. Filed under Uncategorized

Þetta kemur mér nú aðeins í betra skap á mánudegi.
Brooklyn í gærmorgun
Svo skal nefnilega böl bæta að benda á eitthvað annað. Annars er Making Light skyldulesning fyrir þá sem hafa áhuga á bókum, SF&F eða miðjupólitík í Bandaríkjunum. Og kommentin eru næstum besti hlutinn.
Lífsstíll minn þessa dagana er hvorki hollur né skynsamur. Það er ekki gott. Samt var gaman í fertugsafmælinu á laugardaginn. Nú fara þau að hellast yfir. Flestir vina minna eru eldri en ég. Miklu eldri. Miklu miklu miklu eldri. Alveg satt. Heilu áratugunum jafnvel.
Jamm. Þetta er mánudagur til mæðu.
Fyrir þá sem eru með GúglJörð, bendi ég á linkinn sem er núna efstur í del.icio.us listanum þarna hægra megin. Virtually Torino er safn af merkingum á keppnisstaði í Tórino með uppfærðum gerfihnattamyndum. Nota svon tilt fídusinn og sjá þetta öðruvísi en beint ofanfrá. Mega kúl. En best að setja tengilinn líka hér. Très cool.