Var í skapi fyrir froðu með kvöldmatnum og setti The Sure Thing í tækið. Cusack alltaf jafn góður, líka í þessarri fyrsta aðalhlutverki sínu. Fór að velta fyrir mér hvort Daphne Zuniga hefði gert eitthvað af viti síðan (svarið er Nei, nema þú teljir Spaceballs með), þótti skondið að sjá Tim Robbins og fattaði ekki hver besti vinurinn var fyrr en ég sá Anthony Green í kreditlistanum. Örugglega svipaðar pælíngar og síðast þegar ég horfði, enda gleyminn með afbrigðum.
Samt velti ég kannske mest fyrir mér titilpersónunni. Strax frá fyrsta skoti var ljóst að þessi mynd var hundgömul, svona flatneskjulegur framhluti fengi ekki nokkra athygli í holuviði í dag, silikon bjargar öllu. Fór svo að velta fyrir mér hver þetta væri, en kom hvorki nafni né andliti fyrir mér.
Horfði svo á nýlega þátt um gerð myndarinnar. Þar kom Frk Mál (Miss Thing) fram. Ég kannaðist strax við leikkonuna, en kveikti ekki. Ekki fyrr en í öðru innslagi hennar þegar nafnið kom undir.
Þetta hefði ekki komið fyrir ef ég hefði verið jafn dyggur áhorfandi Hugstola húsmæðra þennan veturinn eins og í fyrra, allir slíkir hefðu þekkt Nicollette Sheridan sem tæfuna Edie Britt undireins.
2

vei!! þú raukst upp um 18 þúsund stig hjá mér fyrir að fíla þessa, þessi mynd er í geðveiku uppáhaldi hjá mér síðan ég tók hana einu sinni í viku sumarið sem ég var 14 ára, er uppi í hillu og áhorfð reglulega. Reyndar þegar ég horfði á hana síðast var ég geðveikt lengi að fatta edie britt tenginguna, og lét fara í taugarnar á mér alla myndina hver hún væri eiginlega 😀
En það kom á endanum eins og hjá þér.
En þetta er frábær mynd. Þeir kunna bara ekki lengur að búa til unglingamyndir, það er bara ekkert flóknara en það.
errrr….
Gæti verið að við kunnum bara ekki að vera unglingar?
Nei annars, ég er nokkuð sammála. Níundi áratugurinn var besti unglingamyndaáratugur ever. Endilega leiðréttið mig ef ég er að bulla en flestar unglingamyndir í dag eru annað einhvers konar útgáfur af American Pie, Scream eða Airplane. Eða?
Hef reyndar aldrei séð AP. Kannske er þetta bara að endurspegla unglingsárin í dag eins og þessar gerðu í denn? Og er ég ekki kominn í hring? Árans kvefmeðul…