Ég er ekki með allar sellur í gangi. Ég meina það.
Síðasta laugardag skrapp ég í Kringluna, lét gera við saumsprettu á buxum meðan ég beið og fór svo í Hagkaup. Og skildi buxurnar eftir við kassann…
Náði í þær á þriðjudag.
Í dag, laugardag, skrapp ég í Kringluna, fór í Eyma, keypti 2 kiljur á helmingsafslætti, fór svo í Hagkaup. Og …
Legg ég á og mæli um að ég verði hnakkaskotinn þegar ég er hættur að geta æst mig yfir fótbolta af því ég man ekki eftir með hvaða liðum ég held.
Kemst ekki í dag, ekki þið fara og reyna að hirða bækurnar…
Þorsteinn Joð telur ólíklegt að einhver eigi eftir að horfa á alla leikina í HM. Ég tel frekar líklegt að ég klikki ekki. Síðasti leikur sem ég missti af í HM var leikur Saudi Arabíu og Marokkó á HM’94. Ég átti hann reyndar lengi á teipi og ætlaði að horfa á til bara til að horfa, en það klikkaði og teipið týndist. ’86 sá ég alla leiki sem RÚV sýndi, og á enn 2 litlar minnisbækur sem ég nóterað niður um leikina. 1990 sá ég alla leiki þökk sé Eurosport og nóteraði hjá mér liðin, markaskorara og helstu atriði í leikjum. Það sumar vann ég í samgönguráðuneytinu og vann 7-kortérfyrirþrjú til að komast heim í þrjú leikinn. Síðan ætlaði ég að koma þessu í tölvu og eitthvað fór inn. Enn á ég blöðin sem ég nóteraði þetta niður Sama var uppi á teningnum ’94. Þá náði ég að koma þessu inn fram að fjórðungsúrslitum (í Word). ’98 var ég orðinn tæknilegri og setti upp Access gagnagrunn til að setja inn, færði tölvuna inní stofu og gerði þetta jafnóðum. Sýnist ég eiga þá keppni nokkuð komplett. Þá var að auki netið komið í fullan gang, held ég eigi öll mörkin á tölvutæku, haug af myndum og öll report úr helstu ensku blöðunum. 2002 tók ég ákvörðun um að ég væri ekki að hafa alveg eins gaman að þessu og áður og skrifaði ekkert til að minnka ábyrgð. Sá samt alla leiki en hafði engar áhyggjur af því, horfði á leiki með félögum hér og þar og tók þessu létt. Suma leiki sá ég meira að segja ekki alveg alla, í þeim skilningi að í staðinn fyrir að horfa leiki sem voru á sama tíma hvorn á eftir öðrum eins og alltaf áður var ég með tvö sjónvörp í gangi og horfði á báða í einu, svo framarlega sem það var hægt. Nú er planið að halda þessu óbrotnu, taka frí úr vinnu þegar riðlakeppnin er og njóta sumarsins. ekki ósvipað og ég gerði 2002. Tímasetningin þá hentaði reyndar fullkomlega, leikir á morgnana og svo var eftirmiðdagurinn frír.
Svo sjáum við til hvort ég get bísað einhverja miða á leiki, ef það gerist missi ég auðvitað af leikjum, en einhverju verður að fórna 🙂
En niðurstaðan er samt sem áður að nota bloggfærnina, ef einhver er, og fylgja gömlum hefðum, þó ekki verði jafn nákvæmar lýsingar og 1998. Frekar að reyna að koma á framfæri því sem mér finnst og upplifuninni af keppninni.
Og til að koma þessu öllu á framfæri bjó ég til nýtt blogg til að halda þessu aðskildu:
Heimsmeistarakeppni Bjössa 2006
Vonandi ég endist…
Þorsteinn Joð telur ólíklegt að einhver eigi eftir að horfa á alla leikina í HM. Ég tel frekar líklegt að ég klikki ekki. Síðasti leikur sem ég missti af í HM var leikur Saudi Arabíu og Marokkó á HM’94. Ég átti hann reyndar lengi á teipi og ætlaði að horfa á til bara til að horfa, en það klikkaði og teipið týndist. ’86 sá ég alla leiki sem RÚV sýndi, og á enn 2 litlar minnisbækur sem ég nóterað niður um leikina. 1990 sá ég alla leiki þökk sé Eurosport og nóteraði hjá mér liðin, markaskorara og helstu atriði í leikjum. Það sumar vann ég í samgönguráðuneytinu og vann 7-kortérfyrirþrjú til að komast heim í þrjú leikinn. Síðan ætlaði ég að koma þessu í tölvu og eitthvað fór inn. Enn á ég blöðin sem ég nóteraði þetta niður Sama var uppi á teningnum ’94. Þá náði ég að koma þessu inn fram að fjórðungsúrslitum (í Word). ’98 var ég orðinn tæknilegri og setti upp Access gagnagrunn til að setja inn, færði tölvuna inní stofu og gerði þetta jafnóðum. Sýnist ég eiga þá keppni nokkuð komplett. Þá var að auki netið komið í fullan gang, held ég eigi öll mörkin á tölvutæku, haug af myndum og öll report úr helstu ensku blöðunum. 2002 tók ég ákvörðun um að ég væri ekki að hafa alveg eins gaman að þessu og áður og skrifaði ekkert til að minnka ábyrgð. Sá samt alla leiki en hafði engar áhyggjur af því, horfði á leiki með félögum hér og þar og tók þessu létt. Suma leiki sá ég meira að segja ekki alveg alla, í þeim skilningi að í staðinn fyrir að horfa leiki sem voru á sama tíma hvorn á eftir öðrum eins og alltaf áður var ég með tvö sjónvörp í gangi og horfði á báða í einu, svo framarlega sem það var hægt. Nú er planið að halda þessu óbrotnu, taka frí úr vinnu þegar riðlakeppnin er og njóta sumarsins. ekki ósvipað og ég gerði 2002. Tímasetningin þá hentaði reyndar fullkomlega, leikir á morgnana og svo var eftirmiðdagurinn frír.
Svo sjáum við til hvort ég get bísað einhverja miða á leiki, ef það gerist missi ég auðvitað af leikjum, en einhverju verður að fórna 🙂
En niðurstaðan er samt sem áður að nota bloggfærnina, ef einhver er, og fylgja gömlum hefðum, þó ekki verði jafn nákvæmar lýsingar og 1998. Frekar að reyna að koma á framfæri því sem mér finnst og upplifuninni af keppninni.
Til þess verður þetta blogg. Lúkkið breytist líklega eitthvað aðeins, kem til með að hlaða inn sértækum linkum ofl ofl.
Vona að ég endist í verkefninu!
Ég ætla að halda sér öllum mínum djúpu þenkingum um heimsmeistarakeppnina…
Best að stinga nefi undan sæng (í óeiginlegri merkingu) og koma með það sem ég var búinn að lofa. Hér er besta United liðið valið úr þeim hópi sem hefur spilað með liðinu síðan ég fór að fylgjast með boltanum
Schmeichel
Neville (G) – Stam – Pallister – Irwin
Beckham – Keane – Robson – Giggs
Cantona
van Nistelrooy
Janúar er að renna sitt skeið á enda og vonandi verður febrúar ekki meira en 28 dagar. Þá fer land að rísa. Frekar andlaus þessa dagana. Tók ekki LotR maraþon í gær, vann í staðinn. Enda litlar undirtektir hér fyrir gestakomu. Hef verið að bíða eftir að geta teki maraþonið og ekki horft á neinar af myndunum stakar í lengri tíma. það eru líklega mistök. Ekki að það sé ekki nóg að horfa á, á sér í lagi inni að horfa á 5 seríu af B5 og 7. af Buffy á DVD, langt síðan ég horfði á þær síðast á vídeó(B5) og tölvuskjá(BtVS). Er þó að klára að rúlla í gegnum síðasta Angel. Á kostnað bóklesturs.
Það klukkar mig enginn, en ég held ég rúlli í gegnum Fjóra hluti memið við tækifæri.
Þetta var ljúft í gær. Ef nágrannarnir voru ekki með á hreinu að það er stundum hópur United manna að horfa á leiki á númer 22, þá hljóta þeir að vita það núna.
Í tilefni þessa ætla ég að skella fram United liðinu mínu. Ég endaði á að búa til þrjú lið og til að treina þetta aðeins og neyða sjálfan mig til bloggfærslna ætla ég að birta þau í skömmtum.
Fyrst kemur besta United lið sem leikið hefur saman. Fyrir alla fædda eftir sirka 1953 er þetta einfalt:
Schmeichel
Parker – Pallister – Bruce – Irwin
Kantsjelskís – Keane – Ince – Giggs
Hughes – Cantona
Þetta lið byrjaði 11 leiki, unnu 10 og gerðu eitt jafnteflibyrjaði 12 leiki, unnu alla, skoruðu 24 mörk og fengu á sig 3 og smiðshöggið var 4-0 sigur í bikarúrslitaleiknum 1994. Firnasterk vörn, grimm miðja, fljúgandi kantmenn og Le Dieu. Betra gerðist það ekki.
Nú er ég líklega búinn að hrekja frá mér flesta lesendur sem koma beint inn á síðuna án þess að nota rss-lesara. Veit ekki hvort það var takmarkið.
Vegna bloggleti undanfarið má búast við langri færslu…
Fyrst er að nefna að ég er búinn að græja að komast aftur þráðlaust á netið. Kjöltukisinn minn tók upp á því að harðneita að tengjast þráðlausa netinu gegnum ráter símans (speedtouch drasl) og á endanum áttaði ég mig á að tengja gamla góða WRT54g-inn beint við símaráterinn og nota það þráðlausa net. Reyndar nokkur stillingavesen og þó ég geti ráfað um alnetið vill kisi ekki sjá borðtölvuna né öfugt. Enn.
En þetta þýðir auðvitað að ég liggi í makindum í bælinu og blogga. Sem er prýðilegt svona á laugardagsmorgni eftir djamm. Eftir vinnu í gær var haldið á Amokka, þaðan í Oratorsvísindaferð í bankanum, Tapas og svo að sjálfsögðu á núverandi félagsheimili vinnunnar, Oliver. Anna (ekki.is) var duglegri en ég og bloggaði strax við heimkomu, þó nokkru betra úthald en ég greinilega. Ég var bara ekki í nægilega góðu djamm formi, sá að mér á Tapas og hætti drykkju að mestu. Fyrir eitt var ég síðan alveg búinn á því og hélt heim. Vissulega hefði verið gaman að vera lengur en það var ekki val. Fjórða djammhelgi í röð, fyrir tveim vikum var ég með bandarískri frænku og manni henni að sýna Oliver og þá var ekki farið heim eitt. Síðasta laugardag var starfsdagur á Nesjavöllum og þá var reyndar farið heim tvö, en ekki komið heim strax. Starfsfélagarnir komust reyndar á Oliver þá, en ekki ég. Þarf að komast í form!
Talandi um það, hef ekki ræktað síðan bringan sagði “Bing!”. Mánudagurinn verður fyrsti í rækt, eða ég má hundur heita.
Hef lesið svolítið. Sjá leslistann eins og alltaf. Langar núna mest að panta búnka af Harry Bosch bókum eftir Connelly af amazon og leggjast í reyfara. Aðeins þreyttur á sf og fantasy, búinn að lesa flest það nýja sem mig langar í. Er loksins að horfa á DVDana af fimmtu Angel seríunni, alls ekki slæmt, mátti alveg við smá pásu. Svo við gott tækifæri fer Serenity í spilarann. Sé að United á líka leik á sunnudegi næstu helgi. Ef ekki verður djammað þá gæti laugardagurinn verið rétti dagurinn í Hringadróttinssögumaraþonið langplanaða. Vill einhver koma? 12-14 tímar?
Fótbolti? Tala við ykkur eftir leikinn á morgun. Langt síðan leikurinn hefur skipt okkur svona miklu máli, við erum eiginlega undirhundar og það á heimavelli.
Logi Ólafsson velur Bill Foulkes í bakvörðinn og Best í senter í United liðið sitt. Æ, hvað getur maður sagt? Síðarnefnda reyndar alveg hægt, en kommon! Fyrir þá sem segja Put Up or Shut Up! lofa ég að koma með all time United liðið mitt í sér færslu fljótlega.
Nóg í bili, bloggleti lokið og styttra í næstu færslu
Það er varla hægt að vera ósáttur við jafntefli á Highbury. Þó leikurinn hafi verið frekar leiðinlegur.
Næst er það Burton Albion, Siddy og ‘púl. Þrír sigrar nauðsyn.
Enn eitt árið…
2005 í stikkorðum: Nanci, Berkeley og DC, eiturdvergur, Róm, Víkingur fór upp og England vann Ashes, sömu helgina, horfnir vinir, ættingjar og hetjur.
Þyngdist slatta, léttist verulega og þyngdist aftur, þó ekki alveg í sama of fyrir ári, þökk sé bringubeinsbrotinu.
Það sem 2005 er semsé eftirminnilegt fyrir eru það sem kalla mætti ytri persónulegar aðstæður, annað breyttist lítið. Þetta var ágætt ár.
Gamlárskvöld með því sem nú má kalla hefðbundum hætti, eyddi þeim með þrem vinahjónum og börnum þeirra. Tiramisùið sló í gegn eins og alltaf. Kvöldið var næs, við röltum upp Grafarholtið í betra útsýni og gerðum upp árið eins og hefð er og sátum svo við kampavínssötur fram eftir nóttu.
Eins og venjulega voru strengd áramótaheit, í fyrra voru mín ein 6 og flest gengu eftir (bringubeinið sá um þyngdina) , en núna voru þau bara tvö, ég hef engin háleit markmið á árinu nema að fara að rækta aftur þegar beinið er gott og reyna að hlaupa meira. Það er alveg að koma.
Gleðilegt ár öllsömul, þakka liðið og lesturinn á síðasta ári!
Tiramisúið komið í kælinn fyrir morgundaginn og eftir stendur erfið ákvörðun. Á ég að plampa fyrir framan sjónvarpið og fara snemma í háttinn, eða á ég að fara í bæinn og hitta vinnufélagana sem ég yfirgaf fyrir tveim tímum til þess einmitt að mixa mísúið?
Niðurstaðan birt síðar…
Hvar er helgin milli jóla og nýárs????
Það var ekki mikið að gera í vinnunni í dag. Það var aftur á móti óvenjuskemmtilegt.
Afþreyingarkvöldið er greinilega tileinkað horfnum hetjum. Fyrst Ronnie Barker og síðan Dave Allen í sjónvarpinu. Og núna ætlar trúleysinginn ég að klára kvöldið með að hlusta á tvo mestu og bestu söngvara 20. aldarinnar syngja. Fyrst er það Thank God It’s Christmas og síðan O Helga Natt.
Já, það eru jólin.
Það góða við að fá gesti kl. 3 er að að þeir eru farnir rúmlega sjö, pakksaddir.
Og þá er maður í góðum gír að taka smá enska stemmingu á jóladag. Þeas að líta á viskísafnið.
Þetta tókst allt massavel. Forrétturinn og eftirrétturinn sem var eina óþekkta stærðin (hangikjöt klikkar ekki) voru meiri háttar, þökk sé Gestgjafanum og Tamasin Day-Lewis.
Bjarnarbloggið og aðstandendur óska lesendum, vinum, kunningjum, inndetturum, fastagestum, hnýsnum persónunjósnurum og öðrum öðlingum
Gleðilegra jóla
Kærleiksríkrar Kristsmessu
Ljómandi ljósahátiðar
Kraftmikilis Kwanzaa
Heillandi hátíðarhvaðahátiðar (mega Vottar lesa blogg?)
og almennt
Gleðilegrar, hamingjuríkrar, afslappaðrar, fjölskylduvænnar (ef við á), gjafaríkrar (sælla er að gefa en þiggja og hver vill ekki að náunginn njóti sælu?), matarmikillar og ljúfrar hátíðar!
Sol Invictus rís enn á ný!
Nú er að koma að því, árlegt bæjarrölt. Geisparnir eru ekki alveg að lofa góðu, en það þýðir ekkert væl, enda fátt skemmtilegra. Ætla að líta við hjá Nönnu og yrði ekki hissa ef ég kæmi ekki við í félagsheimili vinnustaðarins…
Er að horfa á upptöku af Sword of Xanten sem hefur líkað heitað Die Nibelungen og Ring of the Nibelungs eftir útgáfum, lengd og fjölda þátta. Heyrði reyndar aldrei staðfestingu á að hljóðskriftin mín á Deyrr fé hefði endað í myndinni, væri gaman ef svo væri, ekki leiðinlegt að hafa komið að gerðinni, þó að örlítinn hátt hefði verið. Það er svona að þekkja fræga rithöfunda sem biðja mann um greiða.
Langur dagur. Þetta var langur dagur. Með tveim kaffidrykkjum hjá mömmu (morgun og síðeftirmiddags) í tilefni afmælisins, innkaupum (allur jóladagsmaturinn kominn) og fleiru.
Og síðan sé ég að yahoo stýrði einhverjum hingað inn sem leitaði að flott brjóst. Þykir leitt að valda vonbrigðum. Reyndar er þetta núna í 56. leitarsæti þannig að það er samt ekki eins og um miklar blekkingar sé að ræða.
Það eina sem ég raunverulega á eftir get ég græað í bænum á Þoddlák. Þannig að ég get verið nokkuð rólegur á morgun. Vá.
Enn er von! Enn er von! Enn er von fyrir alvöru skynsemi!
To be sure, Darwin’s theory of evolution is imperfect. However, the fact that a scientific theory cannot yet render an explanation on every point should not be used as a pretext to thrust an untestable alternative hypothesis grounded in religion into the science classroom or to misrepresent well-established scientific propositions.
We find that the secular purposes claimed by the board amount to a pretext for the board’s real purpose, which was to promote religion in the public school classroom.
Húrra fyrir Jones dómara! BBC fréttin. CNN fréttin.
- Ég er latur
- Þó haloscan segi annað (0) þá eru komment við gamlar færslur enn á sínum stað fyrir þá sem hafa borgað
- 3-1 er ásættanlegur sigur á Börmíngam.
- Minntist ég á leti?
- Jólaóróarnir eru komnir upp. Allir tíu sem ég á. Hanga í hjólunum í stórisarásinni. Snilld
- Er búinn að kaupa allt með aðalréttinum á jóladag, en ekki hangikjötið sjálft.
- Er búinn að ákveða for- og eftirrétt.
- Er latur
- Held ég sleppi jólatré.
- Smbr 2,þá finn ég ekki risarækju- og hörpuskelsforréttinn sem ég held ég hafi séð Nönnu setja í eigið komment. Ekki fara að leita samt, ég fann annan
betrijafngóðan. - Ég var að skrifa á þrjú jólakort. Kannske tvö í viðbót
- Það voru litlujól í vinnunni í gær. Ég gaf 50s auglýsingabók frá Taschen og fékk útvarp í sturtuna/baðherbergið. Mér finnst nógu ógrannalegt að fara í bað eða sturtu kl 6 á morgnana þó ég hafi ekki útvarp á líka. En þetta er fínt hér í tölvuherbergið
- Þangað til núna! Feliz neitakk navidad…
Er þetta ekki fínt í bili?
Freyzi! Settu upp kommentakerfi!


