Innri klukkan í mér lætur ekki að sér hæða.
Ef að skríða saman, sjö níu þrettán. Finn samt alveg fyrir bringunni en minna og færri snarpir verki. Tók frí seinnipart fimmtudags (eftir hádegisverðarhlaðborð hjá Sigga Hall á Óðinsvéum *yum*) og allan föstudag. Sat í stól í rúma þrjá daga sumsé og horfði á sjónvarp. Það var ágætt. Sleppti laufabrauðsgerðinni á laugardag, var ekki í standi til að fletta, hvað þá heldur skera, ekki að ég sé nógu fær til að vera hleypt í það síðarnefnda. Fór síðan í jólahlaðborð Fjárstýringarinnar á Borginni á laguardagskvöld og var stilltur mjög og heim um 12 leytið. Sleppti Óliver, enda ekki æstur í frekari brákanir.
Það verður nóg að gera þessa vikuna í vinnu, koma sér inn í ný verkefni og vinna í eldri málum. Þarf að fara að huga að jólamálum. Úff.
Svo vil ég plögga del.icio.us. Sjá tenglana yst til hægri.
Tók mér frí seinnipartinn á fimmtudaginn og í gær. Ætla ekki að gera neitt það í dag sem ég ætti annars að gera.
Nema að fara á jólahlaðborð í kvöld. Ætla að vera stilltur og fara snemma. Ekki heldur það sem ég myndi undir eðlilegum kringumstæðum gera.
Öldungis ójólalegt hér í íbúðinni. Er einhver jólaóð(ur) lesandi sem vantar skreytiútrás?
Það verður gjörsamlega óvært í vinnunni á morgun. Og þá er ég ekki bara að tala um bringubeinsverki. Sem voru nokkrir í dag. Ætla að taka mér frí á föstudaginn.
Bjarta hliðin? Liðið gæti farið fyrr á hausinn og við losnað við Glazer.
P.s. Hvaða afdalaafglapi þýddi Potterinn? “The Auror” “Dark Lord” í íslenskum texta? Var þetta gert á einni kvöldstund? Svo eru alls kyns ágætis flækjuyrði þarna sem ég held að hljóti að vera ættuð úr bókaþýðingunum. Myndin er annars fín.
Ég er að horfa á einhvern stórkostlegasta knattspyrnuleik allra tíma. Um leið og hann fer á skjáinn er hann að detta inn á harða diskinn í nýja DVRnum mínum. Snilld.
Ég mun því horfa á mestallt upptekna vídeóspólusafnið mitt á næstu dögum.
Fyrir óinnvígða er rétt að benda á að leikur þessi fór fram 14. september 1991 í Garðinum.
Horfði á útför Best í morgun. Munurinn á honum og Díönu prinsessu var sá að hann var sá besti á sínu sviði, en hún var fræg fyrir að giftast og koma vel fyrir. Oftast. Þess vegna stend ég við diss mitt á þá sem misstu sig yfir prinispissunni, en viðurkenni fúslega að hafa ekki verið alveg þurreygur í morgun.
Nema hvað.
Parísardaman kitlaði mig og ég reyni mitt besta…
7 hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
- Fara aftur til Ástralíu og Nýja Sjálands
- Fara á HM.
- Hlaupa Tjarnarhringinn eins og alvöru MRingur.
- Læra aftur á píanó.
- Lesa Gödel, Escher, Bach: An Eternal Golden Braid
- Búa í útlöndum (Eyða ellinni á Ítalíu, ef ekki annað)
- Gera armbeygjur
7 hlutir sem ég get:
- Eldað frábæran mat (eftir uppskrift).
- Forritað.
- Fattað.
- Lært tungumál ef ég legg mig eftir því.
- Sett vinstri fótinn fyrir aftan hnakka.
- Talað ensku eins og hún væri móðurmál mitt. Reyndar með dálítið flakkandi hreim, en samt.
- Sungið á fótboltaleik án þess að hafa of miklar áhyggjur af 4. að neðan. Þó einungis með viðkomu í Berserkjakjallaranum
7 hlutir sem ég get ekki:
- Drattast til að skrifa jólakort.
- Klifrað kaðal eða vegg.
- Skilið þegar eitthvað er bara gefið í skyn.
- Sungið án þess að vera boðið starf í Guantanamo Bay til að syngja fyrir fangana. (sjá þó 7. áður)
- Gert armbeygjur.
- Borað í vegg.
- Bakkað almennilega í stæði.
7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
- Dökkt og fallegt hár.
- Dökk augu.
- Flott gleraugu.
- Gáfur. (í 4ða sæti eins og hjá Kristínu, enda umgengst ég yfirleitt mjög klárt kvenfólk og tek því næstum sem gefnu)
- Brjóst í réttum hlutföllum (I’m a guy. Sue me)
- Snappy answers to stupid questions
- Bros.
7 frægar konur sem heilla mig:
- 1. Christy Turlington
- Minnie Driver
- Juliette Binoche
- Kristin Scott Thomas
- Emm… Nei eigum við ekki að bíða í svona 2-3 ár með þessa 😀
- Anna Paquin
- Ætla að sleppa frægum íslenskum og segi því Kirsten Dunst
Ég er örugglega að gleyma einhverri…
7 orð eða setningar sem ég segi oftast:
Púff… held ég sé frekar fjölhæfur, enda tala ég bara í vinnunni og man ekkert hvort það er eitt öðru fremur.
7 manneskjur sem ég ætla að kitla:
Ég held að það séu flest sem ég þekki búin að þessu og þó:
Kitla Haukinn, FX-Bjössa, ZJ og Markús Pólus
Þriðji og fjórði í dótajólum er liðnir. Nú er nóg dót. Það eru ákveðnir byrjunarörðugleikar í gangi, en ég hef fulla trú að þeir leysist í dag og um helgina með einum eða öðrum hætti.
Fyrsti í dótajólum var um daginn og kom það sér vel um helgina.
Annar í dótajólum er í dag. Það væri betra ef ég færi með fulla hreyfigetu.
Annars er Firefox 1.5 að gera sig. Fékk fyrst reyndar heljarstóra gráa rönd neðst undir status bar, en það var líklega einhver óuppfærð extension, lagaðist við annan umgang af ‘check updates’ undir extensions (fyrsta tékki í innsetningunni var ekki nóg). Skrugguskjótur, en skyldi hann vera eins minnisfrekur þegar 20 síður eru opnar? Mæli með uppfærslu
Best að drífa sig í vinnuna. Kemur í ljós hvort maður endist daginn, nú, ef ekki, þá það.
Skárri i dag enn í gær, stöðugur smáverkur þrátt fyrir verkjatöflur, og svo góður stingur ef ég hreyfi mig vitlaust, þó ekki eins oft og í gær.
Enn óljóst hvort ég fer í vinnuna á morgun.
Fór út að borða í gær, síðan á Óliver. Þar sá einn fyrrum vinnufélagi mig, ákvað faðma mig hressilega og lyfta mér upp.
Útkoman var sprunga í bringubeini.
Ái! Þetta var frekar óþægileg nótt, sumar hreyfingar skila stingandi verk. En núna er ég allavega létt dópaður.
Má búast við 1-2 vikna verkjum. Kemst líklega ekki í partíið í kvöld sem ég var búinn að hlakka mjög til, gæti þó hugsanlega skroppið, hef ekki átt erfitt að skemmta mér án áfengis.
Aftur ái!
Besti knattspyrnumaður Bretlandseyja fyrr og síðar er fallinn frá. Frægasti maður sem ég hef hitt og líklega eina hetjan mín sem ég hef hitt.
Nú er ekkert eftir nema biðin. Er búinn að breyta aðeins útlitinu hér hægra megin.
24. nóvember er ekki góður dagur fyrir hetjur.
Auðvitað þekki ég ugluna vel, en átta mig á því núna að ég er búinn að gleyma flestum smáatriðum bókarinnar. Nema auðvitað endinum. Og Friðþjófi.
P.s. Þetta verða dótajól. And how…
Þetta kom nákvæmlega ekkert á óvart! Serenity er besta vísindaskáldsögumynd ársins, og jafnvel lengra aftur!
Farið á Serenity. Kaupið DVDinn. Kaupið Firefly seríuna á DVD. Joss verður að fá að gera meira af myndum og sjónvarpsþáttum!
Það var bara eitt sem ég saknaði.
Take my love
Take my land
Take me where I cannot stand
I don’t care
I’m still free
You can’t take the sky from meTake me out to the black.
Tell ’em I ain’t comin’ back.
Burn the land
And boil the sea.
You can’t take the sky from meHave no place I can be
Since I found Serenity
But you can’t take the sky from me.
Er ekki annars salur 1 í Kringlubíó besti salur landsins? Man enn þegar ég fór í hann fyrst og Con Air hristi mann í sætinu.
Þetta var bara nett.
Reyndar var Húsoghíbýla sýningin soltið þunn. En vínsýningin var fín. Ég er svoddan plebbi að mér fannst næstum allt gott sem ég smakkaði. En sumt var betra en annað. Þrautirnar gengu misvel. Ég þekkti negul og kanel lyktina en klikkaði á piparnum. Ég gat bara eina af vitlausu-þrúgunum, alger auli. Hins vegar kom ég þremur af fimm töppum í flöskukælinn af 3ja metra færi, hellti nær fullkomlega jafnt í sex glös án mikils vesens, og tókst að brjóta saman servíettu í fyrstu tilraun bara með að horfa á fyrirmyndina. Fékk að launum tappatogara (sem var fínt, því minn betri ræður ekki við flöskur með ‘vör’ og sá sem ég átti af þjónstegundinni brotnaði um daginn, enda lélegur. Ég get þá opnað Rosemountinn skammlaust.
Matur hjá mömmo og frænku í kvöld. Ætlaði á Serenity í kvöld, held það verði að bíða morguns. Eftir allt þetta vínsmakk í dag get ég varla annað en kippt með mér einni flösku úr safninu.
Mörkin voru hver öðrum fallegri í gær. Henry úr aukaspyrnu (mér finnst reyndar þessi langskot sem eru að fara inn í dag alltaf boltanum að þakka, þetta er að fara út í öfgar), Henry sjálfur hefði verið stoltur af Bullard markinu, gaman að sjá Arsenal vörnina sofandi þegar Kamara stakk sér milli þeirra. Því miður var Ambrose markið snyrtilegt, en hey, Ruud skoraði utan teigs. Það var ekki ljótt og ekki mark Smithy heldur.
Barcelona tók Real í þvílíka kennslustund að sjaldan hefur sést, Ronaldinho valsaði í gegnum vörnina tvisvar og skoraði 2 glæsimörk. Eftir það seinna stóðu meira að segja stuðningsmenn Real á fætur og klöppuðu, nokkuð sem síðast sást þegar Maradona var í heimsókn í Barcelonabúningnum.
En hápunktur fegurðarinnar var fyrra mark Ruud. Þvílík snilld. Rooney sólaði eina fjóra og gaf guðdómlega fallega vippu, Ruud tók hann á kassann, sneri og þrumaði á lofti gegn snúningnum. Mark dagsins, mánaðarins, ársins…
Það er uppá svona daga sem maður horfi á fótbolta.
Það fór minna fyrir fegurð í England-Nýja Sjálands leiknum, Englendingar komu verulega á óvart þó að mínir menn hefðu þetta, fjögurra stiga tap þegar spread-betting fyrir leikinn var 15-18 stig, Nýja Sjálandi í hag. Einhverjir hafa grætt vel og aðrir tapað mikið.
Það var nammidagur í gær, endaði á góðri steik-og-frönskum, beisik og bjútifúl matur. Súkkulaðibitakökudeigsís á eftir. Sælgæti…
Í dag ætla ég að kíkja í Laugardalshöllina, Smáralind, húsgagnaverslun og til mútter, sem er komin brún og sælleg frá Kanarí. Er búinn að bóka næstu utanlandsferð, ætla að taka þær systur með í borgarferð til New York í vor. Það ætti að verða stórlega gaman, bæði fyrir mig og þær.
Ef ég vakna á virkumdagstíma á laugardegi og ræktin opnar á laugardagstíma, þá er bara um eitt að ræða.
Ég er farinn í vinnunna.
(hafði reyndar um það orð í gær að það biði alltaf dót sem ég kæmist aldrei í nema um helgar og hefði ekki mætt um helgi í lengri tíma… þannig að þetta er bara uppvinnsla á næstumsslugsuskap)
Svo er það ræktin kl 9, rúbbí kl hálfþrjú, og realbarsa kl 7. Góður dagur framundan!
P.s. Fékk mér Toffee Crisp í gær. Vóah. Nammi er extra gott þegar maður fær sér ekki nema einnusinnitvisvar í viku.
Ekkert að gerast svosem. Hef verið aðeins að detta í tækni, farinn að nota del.icio.us í staðinn fyrir að senda tengla með pósti milli vinnu og heimilis. Þetta er ágætlega sniðugt.
Fór í ræktina í morgun, hljóp 2x20mín með örlítilli pásu. Jahér. 6,6 km líklega. Allt er nú hægt.
Starfsdagur framundan og vinnudjamm í kvöld. Ætti að vera gott, þó að orðrómur sé um að ballið verði búið kl 11.00. Líst illa á það, en þá verður bara að steðja í bæinn.
…þegar liverpool bloggarar (Einar, Matti) lýsa yfir ánægju með sigur United. Og Arsenal menn hringja til að þakka fyrir sig.
Vonandi var þetta merki um það sem koma skal frekar en eitthvað eitís, eða eydísar, afturhvarf með að tjakka upp stemminguna í stórleik.
En nú er ég farinn í ræktina. Helgin var svolítið kaloríufrek.
Ég hef ekkert að segja af viti. Er bara að reyna að grynnka á leslistanum.
Fór í ölið eftir vinnu á föstudag, síðan á Apótekið og loks í þrítugsafmæli einkavinar bílsins. Greindi eigið ásigkomulag, sá að mér og fór heim. Það held ég hafi verið skynsamleg ákvörðun.
Nú er bara beðið eftir leiknum. Þetta gæti orðið slæmt.
