3
Fór út að borða í gær, síðan á Óliver. Þar sá einn fyrrum vinnufélagi mig, ákvað faðma mig hressilega og lyfta mér upp.
Útkoman var sprunga í bringubeini.
Ái! Þetta var frekar óþægileg nótt, sumar hreyfingar skila stingandi verk. En núna er ég allavega létt dópaður.
Má búast við 1-2 vikna verkjum. Kemst líklega ekki í partíið í kvöld sem ég var búinn að hlakka mjög til, gæti þó hugsanlega skroppið, hef ekki átt erfitt að skemmta mér án áfengis.
Aftur ái!

Áts!
Ég held að fyrrum vinnufélagi þinn skuldi þér partí, ekki satt?
Ekki erum við það góðir félagar að það bæti úr 🙂