2
Klæddi mig í dag og er búinn að hanga fyrir framan sjónvarpið. Snókerinn er sýnu skemmtilegri en fótboltinn. Skelfilegt að klára sísonið með svona tapi gegn meisturunum. Ekki það, þeir hafa verið betri í vetur, enda United átt í skelfilegum vandræðum. Þetta var bara óþarfi.
En þetta er sem sagt í fyrsta skiptið síðan á föstudag fyrir viku að ég ligg ekki í bælinu allan daginn. Er enn með hita, smá hálsbólgu og kvef. Ég ætla aldrei aftur að kalla tveggja daga slæmsku ‘flensu’. Aldrei. Vona ég verði orðinn vinnufær á þriðjudaginn.

Sé að mínir menn hafa alveg staðir við sitt. Bíð bara eftir að Samfélagið tapi öðrum leik svo að Lifrarpollarnir nái takmarki sínu 🙂
Nú hlýt ég að komast í sátt eftir að hafa hrósað United í hástert, eða hvað?