eftir-a-a%c3%b0-hyggja

Posted June 13th, 2006. Filed under Uncategorized

Dyggir lesendur hafa tekið eftir að ég er einstaklega duglegur við að fjalla ekki um leiki eftir á. Reynum að eins að breyta því. Sumum fannst Ástralía – Japan stórskemmtilegur, mér fannst hann allt í lagi. Ástralir áttu auðvitað sigurinn skilinn, en 3-1 var helst til stórt. Mistækur dómari þarna. þessi lið eiga ekki eftir að ógna Brasilíu og Króatíu.
Bandaríkin voru þvílíkt á hælunum. Gott. FIFA er á leiðinni að endurskoða hvernig þeir raða á heimslistann. Betra. Tékkar voru flottir, en eru að verða uppiskroppa með sóknarmenn. Það hefur verið vitað síðan hann var táníngur að Rosický væri dúndurgóður, honum hefur bara á einstakan hátt tekist að komast hjá því að sanna það. Fyrr en núna. Eftir að Arsenal er búið að kaupa hann. Djöfuls.
Ghana var svipað og ég bjóst við, keyrðu á krafti og hraða. Verst fyrir þá að þeir héldu ekki út nema svona 70 mínútur og voru þá alveg búnir. Essien er naut, heppinn að fá ekki gult í gær. Ítalirnir voru þrælgóðir. Ítalía – Tékkland verður úrslitaleikurinn í riðlinum, hörkuleikur. Ég reyndar hafði spáð Ghana áfram, en held að Tékkar séu of sterki. Verð eitthvað bissí á eftir, óvíst um hvort ég nái umfjöllun, hér er spáin fyrir daginn:

Suður Kórea – Tógó 0 – 2
Frakkland – Sviss 2 – 1
Brasilía – Króatía 1 – 1

ny-vinnuvika-not

Posted June 12th, 2006. Filed under Uncategorized

Einn whocares, einn ‘áhugaverður’ og svo gli Azzuri!!

Ástralía – Japan

Ég er alveg á móti því að Ástralir fari að vilja eitthvað upp á dekk í fótbolta. Geta haldið sig við krikket, rúbbí og sund. Einn að þessum leikjum sem mætti fara -1 – -1.
Þið verðið öll í vinnunni og ‘púlarar sem ætla að horfa á Kewell, sem mér skilst að byrji á bekknum eins og í síðasta upphitunarleiknum. Ég lít á þetta næstum sem vinnu að horfa. úha.

Ástralía – Japan 1 – 0
Lykilmenn: Kewell og Nakata
Spútnikar: Ekki séns.

BNA – Tékkland

Sterkasta lið sem Bandaríkin hafa sent á HM segja gárungarnir. Ekki fjarri lagi enda fimmta besta lið í heimi. Mest allt kunnugleg nöfn þar og reynsla og samheldni. Tékkar eru hoknir af reynslu, kannske helst til hoknir. Þriðja elsta liðið í keppninni og með fjóra lykilleikmenn yfir þrítugu. Þeir eru númer tvö á heimslistanum. Þetta verður hörkuleikur. NedvÄ›d er enn ein gamla hetjan sem snýr aftur, Figo sýndi að það er líf í gömlum glæðum og NedvÄ›d ætti að geta það líka. Ef hann er heill þ.e.a.s. Hann haltraði af æfingu á fimmtudag. BaroÅ¡ meiddist á föstudag og Rosický er að koma til baka úr meiðslum.

BNA – Tékkland 0 – 1
Lykilmenn: Donovan og Rosický
Spútnikar: Flestir leikmenn eru þekktar stærðir, bara spurning hvort þeir spila eins vel og þeir geta

Ítalía – Ghana

Eins og ég spáði keppninni þá er þetta næstum úrslitaleikurinn í riðlinum. Hitt liðið mitt í keppninni eru Ítalir og þeir ætla ekki að valda mér vonbrigðum, fara í undanúrslit. Ghana er með nautsterkt lið sem á kannske einna helst í vandræðum með sóknarleikinn. Þar er spurt hvort Asamoah Gyan geti slegið í gegn. Á miðju og í vörn. Essien, Kouffour og Appiah eru kunnugleg nöfn og þeir eiga eftir að valda hinum liðunum höfuðverkjum. Ítalir munu sakna Gattuso á miðjunni og það er óljóst hvort Totti verður heill, en miðju og sóknarúrvalið ætti að vera nægt. Camoranesi, Pirlo, Toni, Inzaghi, Gilardino og Toni eru engin smá nöfn. Eins og sést á tengli hér til hliðar heldur Claudio Ranieri að Daniele de Rossi sé hinn ítalski Frank Lampard. Það getur verið að Ranieri sé slakur stjóri, en hann þekkir góða leikmann. Ég ætla því að fylgja honum. Að auki ku Simone Barone vera alveg við að komast í liðið. Engu að síður verða þetta einu stigi sem Ítalir tapa í riðlinum.

Ítalía – Ghana 1 – 1
Lykilmenn: Totti (ef hann spilar og heldur skapinu í skefjum) og Essien
Spútnikar: de Rossi og Gyan.

i-g%c3%a6r

Posted June 12th, 2006. Filed under Uncategorized

Bara stikkorð: Hollendingar treysta á Robben, Ruud bætti engu á hugsanlegt kaupverð. Van Persie er einfættur.. Mexíkó er gott en ekki 4ða besta lið í heim. Portúgalir voru öruggir en andlausir. Eyði ekki frekar orðum á annars óspennandi dag þar sem hápunktur var stærsta ‘veifa’ sem lið hefur komið með handa hinu, innrammað teppi maðurlifandi, og Versta Hárgreiðsla HM: Það er eins og Loco hafi hnerrað ljótu yfirvaraskegginu á sér uppá enni.

Eftirfarandi auglýsing birtist í Fréttablaðinu á laugardag:

Renault Megane ’98 fæst fyrir lítið vegna flutn. Billínn er Sk ’06 og ek. aðeins 43 þús. km. Björn sýnir bílinn að Giljalandi 22, laugard. 10.06 milli kl. 13.00 og 15.00

Reyndar er Meganinn minn ’00 og ekinn 35þús. en það er ljóst að þetta er drusla og enginn vildi missa af Englandsleiknum sem var á nákvæmlega þessum tíma til að kíkja á. Ég hefði heldur ekki viljað missa af leiknum. Enda uppgötvaði ég þessa auglýsingu ekki fyrr en í gær að einn rak inn nefið.
Alltaf gaman þegar vinnufélagar manns hugsa vel til manns. Ekki reyna þetta aftur!

svort-fjoll-e%c3%b0ur-ei

Posted June 11th, 2006. Filed under Uncategorized

Jevtić er fæddur í Svartfjallalandi en telur sig víst Serba. Framtíðin er ekki björt fyrir svartfellska landsliðið…

ekki-er-allt-sem-spa%c3%b0

Posted June 11th, 2006. Filed under Uncategorized

Ekki er hollenska liðið svipað því sem ég bjóst við. Enginn Kuyt, Kromkamp eða Maduro. Þarf að lesa betur. Sneijder er inni og van Persie verður í næstfremstu línu. Þetta sýnir styrkinn. Þarna er valinn maður í hverju rúmi. Nú er bara að hlakka til.

heimsmeistaradagur

Posted June 11th, 2006. Filed under Uncategorized

Nú er komið að því. Í daga spila verðandi heimsmeistarar sinn fyrsta leik. Já ég spái Hollendingum titlinum. Og svo held ég líka með þeim. Skemmtileg tilviljun!

Serbía og Svartfjallaland – Niðurlönd

Það er ekki oft sem vitað er að lið sé að spila í síðasta sinn á HM. Ekki að það muni hafa mikil áhrif á tilvonandi landslið Serbíu, markvörðurinn Dragoslav Jevrić er eini Svartfellingurinn í hópnum. Serbar og Jevrić komust með glæsibrag í keppnina, unnu sinn riðil, m.a. Spán, og fengu aðeins eitt mark á sig. Vörnin, þeirra aðalsmerki hefur ekki verið vel þekkt fyrr en Nemanja Vidić gekk til liðs við United en þekktari, þó kannske ekki fyrir frábæru hlutina eru Kežman og MiloÅ¡ević. (Þetta lítur alveg skelfilega út á makka, ekki satt?) . Ef vörnin heldur þrátt fyrir að Vidić sé í banni og þeir tveir skila sínu á þetta lið að geta haldið sínu og vel það í dauðariðlinum.
Holland. Tja. Já, heimsmeistarar verðandi. Segi það nú og verð að standa við það. Það getur verið að þessi keppni sé aðeins of snemmt fyrir ungt lið Hollendinga. Robben, van Persie og Schneijder eru 22 ára, Hedviges Maduru sem búist er við að verði lykilmaður á miðjunni er 21 og Rafael van der Vaart sem er einhver besti ungi spilari Hollands síðari ár er orðinn 23 og hefur hálf horfið eftir að hann fór til HSV og á ekki öruggt sæti í liðinu. Vörnin hefur verið mjög breytileg nema að einu leyti, þeir fá á sig afskaplega fá mörk, enda stendur þar að baki Edwin van der Sar, hokinn af reynslu og sjaldan eða aldrei í betra formi. Dirk Kuyt er eftirsóttur í Englandi, greinilega ekki vegna gáfna (lýsti því yfir að hann vildi fara í “toppliðið” Newcastle), markamaskínan með flotta nafnið Jan Vennegoor of Hesselink þarf að verma bekkinn útaf einhverjum Rutgerus eitthvað sem spilar víst fremstur.
Engu að síður þá verður þetta róleg byrjun, varnirnar sýna styrkleikann og niðurstaðan:

Serbía og Svartfjallaland – Niðurlönd 0 – 0
Lykilmenn: Mateja Kežman og Rutgerus Johannes Martinius van Nistelrooij
Spútnikar: Ungu hollensku leikmennirnir eru nú þegar stjörnur flestir. Nema Maduro.

Mexíkó – Íran

Úr dauðariðlinum í D-repleiðinlega riðilinn. Það er tvennt sem getur bjargað þessum riðli. Markasúpur og Portúgal í heimsmeistaraformi, eða að Íran og Angóla komi meira á óvart nokkur þar þori að vona. Þó er Íran sterkara liðið og er með reynslubolta innanborðs. Óhamingjusamasti maður á HM, Mehdi Mahdavikia (tvær tengdamæður? need I say more…) er liðtækur á kantinum og Ali Daei hefur skorað 120 landsliðsmörk.
En í fimmta besta liði heims (FIFA alltaf sterkir í bröndurunum) finna þeir ofjarl. fimm manna Mexíkóvörnin er reynslumikil, þar er meðal annars Barça maðurinn og fyrirliðinn Rafael Márquez og að baki stendur einn af betri markmönnum heims, Oswaldo Sanches. Frammi er spurning hvort Jared Borghetti nær að hrista af sér slakt tímabil með Bolton, það er eins og oft að það er tvennt ólíkt að spila með landsliði og félagsliði. Gegn Íran tekst þetta:

Mexíkó – Íran 2 – 0
Lykilmenn: Sanches og Ali Daei
Spútnikar: Ekki hugmynd.

Angóla – Portúgal

Hér skiptir aðeins eitt máli. Uppgjör við herraþjóðina. Síðast þegar þessar þjóðir mættust fór 4-1. Í rauðum spjöldum, þeas.
Styrkur Angóla er samheldni, barátta og gott skipulag. Enginn þeirra er að spila með sterku liði og markvörðurinn hefur verið að æfa á eigin spýtur síðasta árið.
Portúgal vitum við allt um. Í úrslit á síðustu EM, Figo er þarna enn (með göngugrind, skv undanþágu FIFA) sem og Pauleta, síðustu eftirlegukindur gullkynslóðarinnar. José Mourinho hefur séð til þess að önnur nöfn eru þarna kunnugleg, en tveir menn eru öðrum fremur lykilmenn. Cristiano Ronaldo á að sjá um spilið og Deco á að skora eða mata Pauleta. Ef þeir verða í formi verður Portúgal í formi. Það er ekki hægt að segja að þeir séu með ungt lið, Ronaldo er langyngstur, 21 árs

Angóla – Portúgal 0 – 4
Lykilmenn: Miðvörðurinn Jamba og Cristiano Ronaldo
Spútnik: Helder Postiga gæti komið sér aftur upp á stjörnuhimininn.

whuha

Posted June 10th, 2006. Filed under Uncategorized

Fyrsta smellrétta spáin dottin inn. Ekki nóg með það heldur voru lykilmennirnir líka bestu mennirnir í sínum liðum, Riquelme maður leiksins. (minnstu ekki á Tevez, takk) Besti leikurinn af þessum fimm og góður endir á deginum eins og var viðbúið. Ekki spurning að Fílarnir segja þessa varamenn sína í byrjunarlið næst, í það minnsta Dindane. Báðar þjóðir voru að spila mjög vel og skemmtilega. Fílabeinsströndin er kannske með eilítið veikari liðsheild og Argentína er með nokkra menn sem geta unnið leik uppá eigin spýtur og það kom vel í ljós. Vel dæmt, boltinn fór ekki yfir línuna, Saviola var ekki rangstæður en svo var rangstæða rétt dæmd í seinni hálfleik.
Flottur leikur í alla staði.

ja-herna-her

Posted June 10th, 2006. Filed under Uncategorized

Þetta var óvænt. Ég hélt að þetta yrði kannske ekki rústun, en þetta var svakalegt. Hislop kemur inn fimm mínútum fyrir leik og á stórleik. Svíarnir voru ekki sannfærandi, spiluðu ekki nógu vel saman.

afskaplega-osannf%c3%a6randi

Posted June 10th, 2006. Filed under Uncategorized

Englendingar voru mjög ósannfærandi í þessum leik, vantaði allt bit í sóknina og í seinni hálfleiknum voru þeir næstum á hælunum. 11. leikurinn í röð í HM sem þeir skora ekki í seinni hálfleik. Þeir þurfa að gera miklu betur ef þeir eiga að gera rósir í þessari keppni. Svíar verða erfiðari andstæðingar.

england-i-halfleik

Posted June 10th, 2006. Filed under Uncategorized

Ekki er þetta mjög sannfærandi inni í teignum hjá Englandi. Þeir eiga allt spilið, fá að mestu að vera í friði með það, en vantar bit. Held að Svíar séu ekki of stressaðir við að horfa á þetta

langur-laugardagur

Posted June 10th, 2006. Filed under Uncategorized

Margir Íslendingar halda með Englendingum. Ég hef ekki haldið með þeim að ráði síðan 1982. Síður, ef eitthvað er. Nú er spurning hvort þeir séu allt einu komnir með lið sem getur gert hlutina, þó að besta manninn vanti. Riðlakeppnin á ekki að skapa þeim vandræði. Þá eru það leikir dagsins

England – Paragvæ

Enginn Rooney, Gerrard í veseni og Jermaine Jenas sást á miðri miðjunni á æfingu. Þrátt fyrir sterk nöfn má ekki mikið útaf bregða hjá Englandi. Stærsta spurningin er sú: Geta Gerrard og Lampard spilað saman á miðjunnni þannig að vel sé. Hingað til hefur svarið verið nei.
Paragvæ á ekki að vera hindrun á pappírnum. Vörnin er reynslumikil, en besti maðurinn Gamarra er 35 ára og ef Owen er frískur á hann að geta tekið Gamarra á sprettinum. Gaman að sjá í Sport blaðinu um HM að miðja Paragvæa “stundar viðskipti með lið í Bundesliga” en raunin er auðvitað sú að þeir Dos Santos og Barreto “do their business with” Bayern og Nijmegen (sem er að auki í Hollandi)
Vörn Englendinga á að vera pottþétt, jafnvel gegn Bayern framherjanum Roque Santa Cruz. Reyndar er alls óvíst hvort hann verður með vegna meiðsla í hásin.

England – Paragvæ 2-0
Lykilmenn: Lampard og Santa Cruz.
Spútnik: Kemur Walcott inn á? Næst yngstur á HM ef svo verður, Norman Whiteside mun enn eiga metið sitt óhreyft á þessari HM.

Svíþjóð – Trínídad og Tóbagó

Það verða mjög óvænt úrslit ef T&T fara heim með stig. Þeir eru komnir til að hafa gaman að þessu. Svíar eiga að vinna þennan leik, skilyrðislaust. Það eru reyndar ákveðin spurningamerki við vörnina og Isaksson markvörður er meiddur, en það er erfitt að vanmeta andlega styrkinn. Hjá Trínídad er Stern John markaskorarinn, 65 mörk í 95 landsleikjum. Það er varla hægt annað en að velta fyrir sér styrkleika andstæðinganna sem hann hefur skorað gegn.

Svíþjóð – Trínídad og Tóbagó 0-1
Lykilmenn: Ibrahimovic og John
Spútnik: Dwight Yorke. nei segi bara svona…

Argentína – Fílabeinsströndin

Mest spennandi leikur dagsins. Fyrsti leikurinn í dauðariðlinum (hverju svo sem Bandaríkjamenn halda fram) og setur tóninn fyrir þann riðil. Hér nægir að telja upp nöfn: Chelsea senterarnir Crespo og Drogba mætast, Messi er enn meiddur en gæti orðið einn af stórstjörnunum, Riquelme og Mascherano hava alla burði til að slá í gegn sem sóknar- og varnarmiðjumenn. Hálf Arsenal vörnin sem við vitum allt um er mætt á svæðið. Carlos Tévez er besti framherjinn í brasilísku deildinni þó hann hafi aðeins skorað 3 mörk í 21 landsleik og besti leikmaður Manchester United á leiktíðinni 2004-5 er stiginn upp úr meiðslum, járnkarlinn Heinze tæklar allt sem hreyfist og ljósastaura að auki ef sá gállinn er á honum. Colocchini, Sorin og Ayala eru engir aukvisar heldur. Veikustu hlekkirnir á vellinum er markvörður Fílanna, Tizié og litli vinstri bakvörðurinn Boka. Fyrsti risaleikurinn í HM. Það verður allt vitlaust…

Argentína – Fílabeinsströndin 2-1
Lykilmenn: Riquelme og Drogba
Spútnik: Tevez

uppgjor-g%c3%a6rdagsins

Posted June 10th, 2006. Filed under Uncategorized

Það sem kom í ljós í gær er að Þjóðverjar eru með slaka vörn, Kosta Ríka á að tapa öllum sínum leikjum, Ekvador er ekki bara gott í 3000 metra hæð yfir sjávarmáli og að Pólverjar eru bitlausir. Þessi riðill gæti klárast á fimmtudag. Englendingar hugsa gott til glóðarinnar að lenda á móti liði úr þessum riðli.
Annars er óvíst hvort Jens Lehman verður leikfær á miðvikudag. Þá kæmi sér vel að hafa góðan varamarkmann. Hver er það aftur hjá Þjóðverjum…

geisp

Posted June 9th, 2006. Filed under Uncategorized

Æ þetta var slakt. Ekvador geriði akkúrat það sem þurfti, það er ekki nóg að hanga á boltanum í tíma og ótíma ef fyrsta markskotið kemur á 85. mínútu! Tvö stangarskot á síðustu tveim mínútunum voru of lítið og of seint.
Ég sagði að það yrði enginn spútnik þarna…

nostrahver

Posted June 9th, 2006. Filed under Uncategorized

Ekki er ég spámannslega vaxinn. Jújú, Wanchope stóð sig áðan, en ekki Lehman og Podolski. Eusibiuz vinur bloggsins kemur inn í sóknina í staðinn fyrir Rasiak þannig að ekki verður Rasiak maðurinn. Zurawski og Delgado munu sjá um mörkin á eftir ef einhver verði. En þetta hljóta að vera betri varnir.

varnarbrestur

Posted June 9th, 2006. Filed under Uncategorized

Það er dagljóst að spá mín um fá mörk í þessum riðli er gjörsamlega útúr kú. Hvorugt lið er með almennilega vörn. Lehman er búinn að fá á sig tvö skot, bæði mörk.

haka-svasar

Posted June 9th, 2006. Filed under Uncategorized

Þetta er svaka hasar, Þjóðverjarnir eru svo miklu betri, eru með baltann 59% af tímanum og eru látnir allt of mikið í friði. Ég stend mig að því að halda massíft með þeim. Alger taugaviðbrögð að fagna eins og nötter þegar klose skoraði.

ballack-me%c3%b0

Posted June 9th, 2006. Filed under Uncategorized

Ballack segist vera í góðu lagi en Klinsmann er með reglu um að leikmenn sem ekki geta æft 48 stundum fyrir leik verði ekki í liðinu. Brýtur Klinsi eigin reglu?

Vííííííííííííííí
Ég er kominn í frí út mánuðinn. En skemmtileg tilviljun.
Fyrsta previewið er komið upp á HM bloggið.

dagur-eitt-punktur

Posted June 9th, 2006. Filed under Uncategorized

Þetta er að byrja…
Tveir leikir í dag.

Þýskaland – Kosta Ríka

Verður þetta háðuglegasta útreið heimaliðs í háa herrans tíð, eða fer þýska stálið þetta á tradisjóninni?
Ekki spyrja heimskulega. Þegar á hólminn er komið er eini munurinn á góðu þýsku liði og slöku þýsku liði hvort þeir vinna úrslitaleikinn. Ballack verður ekki með, en þetta er kannske leikurinn þar sem hann má helst missa sín.
Kosta Ríka er ekki með neina þekkta leikmenn nema Paolo Wanchope sem er snúinn heim, en ekki orðinn þrítugur. Það verður líka að minnast á Douglas Sequeira, annan tveggja leikmanna frá konunglega liðinu í Sjávarvatnsþorpi, Real Salt Lake. Þetta verður þó einhver barningur fyrir Stálíð og niðurstaðan:

Þýskaland – Kosta Ríka 1-0
Lykilmenn: Lehman og Wanchope.
Spútnikar: Sviðið er stórt, er Podolski maðurinn?

Pólland – Ekvador

Í minningunni lifa Lato, Smolarek og Boniek en nútíminn er annar. Reyndar er núna bæði Boniek og Smolarek, en núna er Zbigniew þjálfari og í hópnum er júniorinn Eusebiuz Smolarek, alinn upp í Belgíu og ku ekki mjög pólskur í sér. Lítur ekki út fyrir að hann verði eitthvað með að ráði. Pólverjar eru því stjörnulausir og styrkurinn liðsheild, barátta og hreint kolklikkaðir stuðningsmenn sem búast má við í stórum hópum.
Ekvador ætlar líka að byggja á sterkri vörn… Já ég sagði Ekvador. Sambabolti hvað?
Jú sambabolti í hæfilegu magni. Liðið er reynslumikið, og nöfn eins og Ulises de la Crus, Augustin Delgado, Edwin Tenorio og Ivan Hutado eru kunnugleg. Liðið varð í þriðja sæti í undankeppninni, unnu bæði Argentínu og Brasilíu, en nú endar þetta.

Pólland – Ekvador 1 – 0
Lykilmenn: Rasiak og Delgado
Spútnikar: Engir.