3

meistarar

Posted April 16th, 2006. Filed under Uncategorized

Það er ekki allt slæmar fréttir í United fjölskyldunni þessa helgina. FC United of Manchester eru deildarmeistarar. Strax ári eftir stofnun. Þetta hefur verið erfitt ár fyrir flesta gallharða stuðningsmenn, margir verið klofnir í afstöðu, en aðrir gallharðir öðru hvoru megin, en það er ljóst að það er vandfundið lið neðan ‘kvenfélagsdeildarinnar’ (smbr hér) sem hefur eins frábæra stuðningsmenn, enda ekki nema von þegar 2-3000 af reyndustu og háværustu stuðingsmenn United taka saman höndum. Ég þarf að fara að drífa mig til Manchester. Ég hef ekki getað fengið af mér að yfirgefa United, en hitt er víst að ég ætti að reyna að taka helgarferð og sjá bæði United liðin.
Ég er reyndar nokkuð viss um hvar stemmingin er betri.

3 Responses so far

  1. anna says:

    ég var að kaupa miða til MU, reyndar ekki til að horfa á leik, heldur vegna fundar og hitta hluta fjölskyldunnar.
    Þið bara kíkið í Glenna þegar ég kem heim aftur 7 júlí.

  2. anna says:

    Annað vandamál!
    Hvernig fór leikurinn á milli Sameiningar í Mannshestahreppi og vélvirkjanna í Svartapolli í neðstu norðvesturdeild?

Leave a Comment