Já, eftir atburði gærdagsins er ég aftur farinn að vinna hjá Kaupþingi banka hf. En samt áfram hjá KB banka.
Það var sumsé aðalfundur í gær sem var vel sóttur og eftir fundinn hópuðust starfsmenn af öllum þjóðernum á hin ýmsu veitingahús bæjarins. Þar sem ég var ekki í neinum vinnuhópanna í gær endaði ég í góðra kvenna hópi á Tapasbarnum og fékk gott að borða. Kvöldið hélt svo áfram á apótekinu og Thorvaldsen áður en ég hætti leik þá hæst hann stóð og keyrði heim á leið. Ég var nefnilega óhemju stabíll og afþakkaði áfengi í gær. Held ég geri það samt ekki á árshátíðinni eftir tvær vikur! Í alla staði mjög gott kvöld.
Ætla að endurtaka hér athugasemd sem ég plantaði við blogg hjá Særúnu Maríu enda hnyttið og rétt í umræðunni um Hefnd Siþþanna:
Sko… þegar george lucas segir þetta eiga að verða eins og Titanic, þá fór ég nú að hugsa hvort ég ætti nú ekki bara að fara á myndina þrátt fyrir hrollinn af epísódum 1 og 2..
Enda fór ég á Titanic gagngert til að sjá einhvert mesta stórvirki 20. aldar sökkva endanlega í sæ.

Er búinn að lesa tvær nýjar bækur frá KaupiAlltaf höfundum. Nýjasta Kathy Reichs er bara lala og ég finn vægan fnyk af Cornwall syndrómi. Plottið ekki áhugavert, og einkamálaplottið efnislítið og dregið á langinn í gegnum bókina. Það er oft sem höfundar þurfa að gera ráð fyrir að persónurnar þeirra tali ekki saman eins og flest fólk. Nýjasta Ian Rankin var líka ekki frábær, Fleshmarket Close. Of þunnt plott. Það fyndnasta er reyndar að í Bandaríkjunum heitir hún Fleshmarket Alley. Tvær þjóðir aðskildar af einu tungumáli.
Best að klára skattframtalið hennar mömmu núna. Á bara eftir að setja inn eina tölu. Svo er mitt á morgun. En ætli ég sæki ekki um frest samt 😀
Svo er þriggja daga vinnuvika. Vúhú!

dave-allen

Posted March 12th, 2005. Filed under Uncategorized

Fyndnasti maður í heimi er dáinn. Held að bestu eftirmælin séu þessi í Guardian. Sýnist að spólan sem ég keypti með honum hafi týnst í útláni, enda vinsæl til láns. Þarf að kaupa mér DVD. Kirkjugarðskapphlaupið er fyndasta sketsj sem ég hef nokkru sinni séð.
Thank you, goodnight, and may your God go with you.

spyware-objo%c3%b0ur

Posted March 9th, 2005. Filed under Uncategorized

Var að koma frá frænda, tvær vélar fullar af spyware. oj. Bjargaði reyndar kvöldinu að það var ekki CoolWebSearch þannig að adaware og spybot sáu um þetta að mestu.
Og ég sem hélt að þetta yrði einföld netendurtenging.
Nú er þeim bannað að nota annað en Firefox.

sotsvart

Posted March 8th, 2005. Filed under Uncategorized

Nú er það svart, sótsvart. Þetta var ÖMURLEGT KVÖLD. Hefði þá aðeins verið verra ef ég héldi með Bremen líka.

tosca

Posted March 7th, 2005. Filed under Uncategorized

Tosca var voða fín, allir sungu geysivel, en verð að viðurkenna að mér fannst Ólafur Kjartan og Jóhann Friðgeir ekki alveg nógu kraftmiklir, sér í lagi ekki þegar þeir voru að syngja á móti Elínu Ósk. En það er ekki einsog ég hafi vit á þessu.

million-dollar-baby

Posted March 6th, 2005. Filed under Uncategorized

Eins og Matti segir er erfitt að fjalla um MDB án þess að spilla fyrir söguþræðinum. Ég leysi þetta með því að setja í comment hvað er aðalmálið með myndina. Sjá þar sumsé.

formulan-er-byrju%c3%b0

Posted March 6th, 2005. Filed under Uncategorized

Þá fer sumarið að koma, kannske.
Verður gaman að sjá Michael koma upp úr 14. sæti og vinna þetta.

oskar

Posted February 28th, 2005. Filed under Uncategorized

Hef fátt séð af þessum myndum nema hinar frábæru Sideways og Eternal Sunshine og ætla ekkert að vera að kvarta undan einu né neinu.
Vil bara benda á kjól kvöldsins.
Eða öllu heldur… Gúlp!.
[edit: helv. imdb að breyta síðuvísunum… má víst hafa mig við í allan dag að hafa þetta rétt!]

snuffelium

Posted February 26th, 2005. Filed under Uncategorized

Helgin er held ég alveg ágæt. Ekki spillir Arsenal jafnteflið áðan, það var skolli gaman að sjá minn ágæta vinnufélaga Ríkharð Daðason lýsa leiknum. Piltur fór vaxandi þegar á leið. Vona samt að hann haldi dagdjobbinu svona alla vega fyrst um sinn.
Heilsan fer síbatnandi eftir því sem líður á daginn. Getraunastemmingin í Víkinni var söm við sig. Alltaf sömu góðmennin þar. Í tilefni dagsins vafði ég upp rúllugardínunni í tölvuherberginu. Handvirkt. Þarf að lagfæra hana betur við tækifæri.
Myndir af grímuballinu er komnar í hús. Óperudraugurinn Ég var ekki frumlegur, dró fram Phantom grímuna mína og smókinginn. Það ætti að bjóða mér á frumsýninguna á bíómyndinni 😉
Ætti maður ekki annars að taka endanlega til fjármálin síðasta árs? Það er allt meira eða minna sorterað og á réttum stað er þarf kannske smáyfirferð. Væri fjör að þurfa ekki frest til tilbreytingar.
En ætli Tottingham sé ekki byrjað á Skjánum? Upp í leizíbójinn! Á meðan mallar þvottavélin og allt er í stakasta lagi.

kathy-reichs

Posted February 23rd, 2005. Filed under Uncategorized

Er einhver búin að lesa Monday Mourning. Er henni nokkuð að fatast flugið?

grimuball

Posted February 19th, 2005. Filed under Uncategorized

Spurt er: Hvenær viltu síst að frakkanum þínum sé st… sé tekinn í misgripum?
a) Ef hann er dýr
b) Ef bíllyklarnir þínir eru í honum
c) Ef húslyklarnir eru í honum. Og klukkan er 2 að nóttu.
d) Ef gleraugun þín eru í vasanum, af því að þú ert með grímu.
e) Allt af ofangreindu, nema hvað a-c skiptir ekki svo miklu máli því b: þú ert ekki á bíl og það eru til auka lyklar og c: frændi þinn í sömu götu er með auka húslykil.
18 ára frænku minni var frekar skemmt þegar ég kom að sækja lykilinn. Veit ekki hvort ég telst fyrirmyndar fyrirmynd. Reyndar var þetta nú ekki það slæmt að ég þyrfti að þiggja boð hennar um að fá stuðning upp tröppurnar heima.
Er núna búin að grafa upp gömlu gleraugun mín og er því sem næst lesfúnkerandi, þó það sé nú ekki alveg rétt resept. Skyldu tryggingar borga frakkann og gleraugun?
En það var sem sagt grímuball í gær, þrusugott partý. Blessuð hvíta andlitsmálning er enn að angra mig þrátt fyrir ítrekaðan þvott. Ekki samt alveg Goldfinger vandamál held ég.

vin

Posted February 16th, 2005. Filed under Uncategorized

Vínkynningin var meiriháttar góð. Arnar fær öll mín meðmæli, og líklega eitthvað reiðufé, þó ég hafi aldrei talist vínáhugamaður.

gamlar-tonlistarsyndir

Posted February 15th, 2005. Filed under Uncategorized

Minntist á það í fyrra að ég hefði iTjúnsað tvær” gamlar” safnkassettur sem voru “uppáhaldslögin mín 1” og 2.
Hér er sú fyrri:

Love Walks In – Van Halen
Seven Doors Hotel – Europe
As Hard as It Is – Fine Young Cannibals
Walk Of Life – Dire Straits
What Have I Done To Deserve This? – Pet Shop Boys
Piano Man – Billy Joel
Good Old-Fashioned Lover Boy – Queen
Graceland – Paul Simon
You Give Love A Bad Name – Bon Jovi
’39 – Queen
Cap in Hand – The Proclaimers
Rock the Night – Europe
Rendez-Vous 4 – Jean Michel Jarre
Bohemian Rhapsody – Queen

Dagsett: 1. október 1989. Ekki alveg bleeding-edge tónlistarsmekkur!

hjalp-ra%c3%b0leggingar

Posted February 15th, 2005. Filed under Uncategorized

Úff! Grímuball á föstudag og minns er alveg hugmyndasnauður. bjorn1 hjá gmail púnktur com tekur glaður við öllum uppástungum. Hugsanlega verðlaun í boði!
Af ýmsum ástæðum hefur rafmagnið hjá mér ekki enn verið tekið í gegn, og því hef ég ekki heldur tekið fyrir ljósabúnað í húsinu. Það er slatti af rússaperum hér. Ein slík er í svefnherberginu og hún sprakk í gærkvöld. Eftir að ég setti nýja peru í er mun dimmara þar inni, enda ekki nema von þegar farið er ú 150W í 75W. Þarf að hafa það í huga þegar ég vel ljós í herbergið. En líka hafa dimmer.

nett

Posted February 13th, 2005. Filed under Uncategorized

Þetta var bara fínt í gær. Dinner hjá félaga mínum, með tilheyrandi ‘Ísland er lítið’ stemmingu. Samt nokkuð vel af sér vikið hjá okkur að taka hálftíma í að fatta að við hefðum margoft talað saman í síma. Það er svona að kynna sig bara ‘Björn’. Ölstofan er ekki mín sena, Celtic Cross tómur, og þeir eiga hvort Jón Smið né Midleton. Rex var ekki alveg að gera sig, en Thorvaldsen var alveg í góðum gír. Alltaf gaman að hitta gamla vini sem maður hefur ekki hitt árum saman.

breyting

Posted February 12th, 2005. Filed under Uncategorized

Scratch that. Önnur plön í kvöld. Neat.

latur-laugardagur

Posted February 12th, 2005. Filed under Uncategorized

Letin ráðandi.
Nenni ekki einu sinni að lesa. Ætla að steikja mér nautsbita í kveld, með meððí og opna eins og eina rauðvín. Sem svo mun liggja undir skemmdum ef ég klár’ana ekki í kvöld. En why worry?

ljos-leitt

Posted February 11th, 2005. Filed under Uncategorized

Ég er búinn að vera að væla, ekki mikið þó, undan því að hafa ekki breiðband og það sé ekki á döfinni hér í Foxvojinum. Enda ekki nema von því hér verður kominn ljósleiðari í öll hús í haust.
Þá kemst ég í gagnvirkt samband við umheiminn! Og get væntanlega farið að skrifa inn á netið og soleis.
Kúl.
Kannske þeir rífi upp nóg að götum og stéttum til að við getum látið setja hita í stéttar og uppkeyrslu. Það væri hot.
Farinn í vinnuna. Komst að því þegar ég las Ófarasögu Hallveigar afhverju ég er svona morgunhress. Það er auðvitað af því að þetta er ókristilegur tími!

humor

Posted February 10th, 2005. Filed under Uncategorized

Ég er að reyna að velta fyrir mér hvort ömmuatriðið í 3ja þætti Little Britain fengist sýnt í vinsælasta sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum og hvort það þætti fyndið?

Held það fengist kannske sýnt. Það sést jú ekki svo mikið sem bera öxl, hvað þá heldur geirvörtu.

Og í beinu framhaldi: Á Brits awards voru Gary Barlow og Howard eitthvað úr Teik Þatt kynntir sem verðlaunaafhendendur á “Besta lagi síðustu 25 ára”. Upplitið á Robbie Williams (sem var tilnefndur) var ekki lítið fyndið. Svo voru þetta Lucas og Walliams. Bara að klæða Lucas upp sem fyrrum pinnöppið Barlow var nógu fyndið. Robbie vann fyrir Angels og benti á í móttöku”ræðunni” að hann hefði jú verið sá með hæfileikana… Ætli Barlow sé ekki bara á “World Tour of Bolton” eins og Lucas hélt fram?

Dj snillingur var Tom Lehrer. Rímið, maður lifandi, rímið.

Munnstærð

Posted February 7th, 2005. Filed under Uncategorized

Me and my big mouth.

Engar fimm mínútur síðustu tvo daga, neinei, meira svona 45 hvort kvöld.

Hvenær fer ég að hafa vit á því að grjóthalda kjafti um það sem gott er?