%c3%beri%c3%b0ji-i-b%c3%a6li

Posted April 12th, 2005. Filed under Uncategorized

Einn dag í viðbót, til að vera viss. Brennt barn forðast eldinn og eftir fyrravetur þá tek ég enga sénsa á langvarandi slæmsku.
Undir sæng með fartölvu og götusögur frá New York sem er bara það fyndnasta sem ég hef séð síðan… á föstudaginn þegar mér varð ekki ósvipað við og Stóradómaranum. Það þurfti að binda upp á mér hökuna og næstum skafa mig upp af gólfinu eftir að ég hafði séð þetta tónlistarmyndband. Munið krakkar, aldrei að dissa mömmu!

afm%c3%a6lisgjof

Posted April 11th, 2005. Filed under Uncategorized

Nú er ég búinn að finna það sem mig langar í. Nýtt úr
Það er ekki eins og þetta sé dýrt. Litlar 6,3 millur fyrir utan skatt fyrir ódýrasta stykkið. Þið vitið þið elskið mig öll.

bolginn-hals

Posted April 11th, 2005. Filed under Uncategorized

Það er skömminni skárra að vera veikur á mánudegi en föstudegi.

lifi-byltingin

Posted April 10th, 2005. Filed under Uncategorized

Svona á þetta að vera! Heilagt stríð Unítara Og ef þú vilt vera með, geturðu fengið dulnefnið þitt hér.
We have not been born again, nor have we sworn a blood oath. We do not think that God cares what we read, what we eat or whom we sleep with.
We are Unitarian Jihad! We can strike without warning. Pockets of reasonableness and harmony will appear as if from nowhere! Nice people will run the government again! There will be coffee and cookies in the Gandhi Room after the revolution.
Bestu kveðjur
Brother Katana of The Loving Kindness.

urrrr

Posted April 10th, 2005. Filed under Uncategorized

Hiti og hálsbólga. Frestaði matarboðinu um 24 tíma, vona að ég nái því. Ef ekki þá á þriðjudaginn. Og ef gestirnir komast ekki þá, þá verður bara einhverjum öðrum boðið, enda allt til í kælinum.

or%c3%b0laus

Posted April 9th, 2005. Filed under Uncategorized

0-2 gegn Norwich. Þetta var ekki að gerast…

wooh

Posted April 9th, 2005. Filed under Uncategorized

Þetta var spennandi. Á endanum vann Hedgehunter örugglega, en dramað kom við Becher’s Brook í seinna skiptið. Laust hross vildi ekki reyna við eina svaðalegusta hindrunina hljóp. Hljóp fyrir Clan Royal sem var fyrstur þegar það var og neyddi Clan Royal út í horn og McCoy féll af.
Fjör!

flott-hross

Posted April 9th, 2005. Filed under Uncategorized

Grand National er um það bil að byrja. Ef ég hefði veðjað myndi ég setja smá á Clan Royal. Tony McCoy tekur þetta lokins.. En dj væri flott ef Forest Gunner tekur þetta og Carrie Ford verður fyrsta konan til að vinna. Forest Gunner er orðin 2nd Favourite á 9-1, Clan Royal á 10-1. Ef Carrie vinnur þurfa veðmángarar að punga út miklu. En Hedgehunter er favourite.
Flottustu nöfnin eru Iznogud (Fláráður stórvesír) og Astonville. Nil Desperandum ekki slæmt heldur.

vi%c3%b0skiptabla%c3%b0-moggans

Posted April 7th, 2005. Filed under Uncategorized

Viðskiptablaði Mogga myndi takast allverulega betur að sýna að þeir geti sinnt faglegri umfjöllun ef þeir tækju ekki fyrir eitt af viðkvæmari málum í fjármálum heimilana á þann hátt að láta félagsfræðing fá heilsíðu fyrir tuð sitt, óáreittur og án þess að skoðana annarra, og þá jafnvel hugsanlega fagmanna, sé leitað.
Ég sé sérstaka ástæðu til að taka fram að þetta er skoðun mín og endurspeglar ekki endilega skoðanir vinnuveitanda míns eða samstarfsfélaga, enda er mér ekki kunnugt um þær skoðanir á málinu ef einhverjar eru.

bokstafurinn

Posted April 7th, 2005. Filed under Uncategorized

Hvort skyldi það vega menn í átt til vantrúar eða bókstafstrúar að sjá Séra Gunnar og Séra Bjarna debattera Orð Guðs í sjónvarpinu áðan?
Gamla góða pic’n’mix… fyrirgefið, ég meina blandípoka þjóðkirkjan á ekki roð í þá sem virkilega trúa. Sem auðvitað leiddi bara til einnar niðurstöðu fyrir mig.

ertekka%c3%b0-spauga

Posted April 7th, 2005. Filed under Uncategorized

Níu stiga frost í morgun. Þetta er ekki fyndið. Nýkominn úr heitu nuddbaði. Nokkurn veginn þiðnaður.

afm%c3%a6li

Posted April 3rd, 2005. Filed under Uncategorized

Þetta var með betri afmælisdögum. Fyrir utan klukkutíma bið eftir leigara…
Sjö og hálfur tími í fermingarveisluna…

niundi-aratugurinn

Posted April 2nd, 2005. Filed under Uncategorized

Sumir segja að Morgunverðarklúbburinn sé sú besta, aðrir vilja meina að það sé Sæt í bleiku. Sjálfur stend ég fast við þá skoðun mína að Segðu eitthvað… sé alltaf jafn frábær.
En besta unglingamynd níunda áratugarins er og verður Villuljós. Og ég var rétt í þessu að klára að horfa á hana.
Á eftir ætla ég að halda áfram að halda upp á afmælið mitt með því að fara í 1500 manna veislu. Beat that for a birthday party!

kokopoffs

Posted April 2nd, 2005. Filed under Uncategorized

Kókópöffs í morgunmat er gott nammi. Gamlar og góðar hefðir eru skemmtilegar.

nu-ja-%c3%beessi-doktor

Posted March 26th, 2005. Filed under Uncategorized

Þetta var bara prýðisskemmtun og ef ég hef ekki annað að sýsla á laugardögum held ég áfram að horfa.

hva%c3%b0a-doktor

Posted March 26th, 2005. Filed under Uncategorized

Eftir klukkutíma er komið að atburðinum sem Bretland hefur beðið eftir. Nýja Doctor Who serían er að byrja. Allir Bretar yngri en fimmtugir og eldri en 15 ólust upp við þessa seríu sem fyrstu SF sjónvarpsþættina sína, þeir gengu frá 1966 til 1991, með bíómyndarlöngum þætti ’96. Það sem ég hef séð af gömlu þáttum finnst mér nú svolítið að vinir mínir líti á þetta í rósrauðum bjarma fortíðar, en ég ætla ekki að missa af þessu. Ef ekki annað þá er Christopher Ecclestone fantagóður leikari og United maður.
Í millitíðinni ætla ég að horfa á Ísland tapa fyrir Króatíu.

morgunstund-gefur-gull-i-mund

Posted March 26th, 2005. Filed under Uncategorized

Þetta verður góður dagur.

fermingar

Posted March 24th, 2005. Filed under Uncategorized

Mér hefur verið boðið í fermingarveislu sunnudaginn 3. apríl. Kl. 12:30. Sem er í sjálfu sér ekkert erfitt, sef aldrei svo mikið út eða neitt þannig.
En samt. Árshátiðin er laugardaginn 2. apríl. Ái.
Ég á ekki von á að vera lífið og sálin í fermingarveislunni.

%c3%bea%c3%b0-var-svo-sem-au%c3%b0vita%c3%b0

Posted March 22nd, 2005. Filed under Uncategorized

Var að ljúka við að senda leiðréttingu við framtalið. Böh. heimskuleg villa, og hefði átt að vera í villutékki hjá skattinum, enda um tölu að ræða sem þurfti að setja á tvo staði en datt bara inn á einum. Ojæja…
Tapaði veðmáli í dag, fékk góðan stuðul á að seðló myndi hækka um 100 punkta (þótti það ólíklegt, en eins og ég segi, hinum þótti það enn ólíklegra). Það var í góðu. Some you win, some you lose.
Þótti viðtalið við Pétur Pétursson í gær með nokkrum ólíkindum. En hann er án efa besti striker sem við höfum átt.

afkost-2

Posted March 21st, 2005. Filed under Uncategorized

Flottur dagur. Borgaði múrara, fékk trésmiðinn í heimsókn, skoðaði bíla, skuldbatt mig í 12 mánuði í gymminu (ekki farið í 3 mánuði) og skilaði skattframtali.
Go. Me.