Anna (sem ætti eiginlega að vera undir Ókunnugir sem ég stalka þarna hægra megin) minnist á hversu fljótt hún hafi sofnað. Á fimm mínútum.
Sem leiðir hugann að því að mér hefur í gegnum tíðina skilist af öðrum. að það þyki bara frekar snöggt. Í mínum haus telst hins vegar allt umfram fimm mínútur frá því ég skelli nefi í koddann óvenjulegt, og allt umfram 10-15 mínútur svefnleysisnótt. Þetta á ekki við ef ég reyni að sofna á bakinu. Ég get legið svefnlaus í hálftíma og síðan sofnað á 5 sekúndum ef ég sný mér á grúfu. Þetta hefur einmitt gert þessar augnfönduraðgerðir sem ég hef farið í af og til sérlega áhugaverðar. Þá þýðir ekkert að sofa á grúfu.
Mér dettur altíeinu í hug hvort að hér sé um dulda fóbíu sem stafar af því að hafa séð Fílamanninn ‘at an impressionable age’ eins og þar segir. En nei, annars, það var bara svo þægilegt þegar ég var alltaf með augnkompressuna hér í gamladaga að keyra hana ofan í koddann og hjálpa þennig til við að halda auganu lokuðu. Um. Nóg af augnlokadetails.
Ég get aftur á móti yfirleitt ekki ‘lagt mig’ og sá hæfileiki mágkonu minnar að taka dúr hvenær sem er er öfundsverður. Einu sinni sem gutti sat ég á gólfinu, horfði á sjónvarpið og var að tala við hana og áttaði mig ekki á því fyrr en hún var alveg hætt að ansa mér að hún hafði tekið sér hænublund sitjandi í sófanum.
Á móti kemur auðvitað að ég er óhugnanlega morgunhress.
Tiltekt og viðhald. Sumt gengur vel, annað hægar.
Komst að því í gær að heyrnin hefur ekkert versnað á 10 árum. Þar fór sú afsökun. En þetta er stundum soltið mergjað.
Er annars frekar andlaus. Það hefur reyndar ekki alltaf þurf flókna hluti til að skemmta mér, og þessi leikur er engin undantekning (700K flash). Fékk annars sjónvarpsþáttapakka frá amazon, er að horfa á 2. seríu af Shield, síðan kemur Little Britain og þar á eftir fimmtaserían af B5. Þægilega heilalaust. Svona eins og sum fórnarlömbin í Shield.
Þetta var ekki leikur fyrir hjartveika! Frábær sigur á Arsenal. Mikið rosalega voru mínir menn góðir. Vann eina rauðvín á sigurinn og skiptist á flöskum við annan fyrst hvorugur okkar var með hárrétt úrslit. mmmjá
Sé ekki að ég hafi neitt mikið að segja annað en að ég sé hér ennþá. Hef verið að taka til. Það er gott að taka til og það er nóg til að taka.
Get ekki nógsamlega lofað hlákuna.
Tveir kynþokkafyllstu menn landsins vinna hjá KB banka. Fagur banki KB banki.
Til hamingju Frosti minn!
Meiriháttar úrslit, 100% sanngjörn og afhverju fékk Gerrard ekki rautt fyrir olnbogaskot? Ef dómarinn sá það ekki geta púlarar bókað þriggjaleikjabann.
Hef sjaldan verið jafn búinn eftir leik.
Steik í kvöld til að halda upp á þetta.
Akkúrat dagurinn þegar maður vill gleyma veskinu heima til að geta farið annan rúnt á svellinu til að ná í það og aftur í búðina.
Liverpool á eftir! Spennan er geysileg!
Mikið var fínt að hafa jólatré.
Kannske ég vökvi það betur næst. Mér sýnist það ætla að skilja eftir allar nálarnar í stofunni. Þær fáu sem ekki fara, munu dreifa sér í stigann, forstofuna og svo verða kannske örfáar eftir til að dreifa sér leiðinna sem ég þarf að draga það útað Hörgslandi.
Róleg vika, búinn að vera á barmi kvefs eða flensu, hélt mig heima tvo daga, en ekki hefur neitt stórvægilegt helst yfir mig enn, 7,9,13.
Búinn að bóka miða á tónleika. Hét því sem nýársheiti að fara að sjá Nanci eða Divine Comedy, átti reyndar ekki von á að Nanci væri aftur í Evrópu þetta fljótt, var síðasta haust. Þetta verður fjör.
Nú er að taka það rólega um helgina, smá innkaup og dútl. Og taka af trénu.
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir og lesendur
Veislan tókst líka svona glimrandi vel! Kalkúnninn var frábær!
2005 rokki feitt fyrir okkur öll.
Þetta reddast. Kannske ekki alveg eftir uppskrift, en þetta reddast.
Þannig að þið megið hætta að hringja!!
Ef þú er langbest í heimi í þínum flokki í þinni íþrótt síðustu hvað, 10 árin, með basilljón heimsmet, heimsmeistaratitla og Paralympicstitla, hvað meira þarftu að gera til að vera íþróttamaður ársins? Bjarga barni úr brennandi húsi? Fara í framboð?
Og hvers vegna var flogið með bikarinn til Englands áður en verðlaunin voru veitt? Má engin spenna vera í neinu lengur? Var þetta gert fyrir Ásgeir? Finnst þetta hallærislegt.
Fyllingin er kominn í kæliskápinn. Ætti að ná heim fyrir 12.45, fylla og saum…úps. Það var sosum eitthvað sem vantaði. En allavega, fuglinn ætti, með smá herkjum að komast í ofninn fyrir eitt. Þá er þetta allt í góðu.
Fékk kalkún í gær, og keypti kalkún áðan.
Stendur að hann eigi að þiðna í ísskáp í 1-2 sólarhringa, en ég ætla að láta hann vera þar frá nú fram á föstudagshádegi. Ekki skemmist hann við það. Nú er að finna gott stuffing. Ekkert sérlega hrifinn af ávaxtastuffing, meira fyrir einhverskonar brauðdóti.
Maturinn tókst vel, humarinn stór og yummy, Húsavíkurhangiketið frábært, og tiramisuið það allrabesta sem ég hef smakkað. Blanda af uppskrift úr Italian Cookbook og Matreiðslubók matargúrúsins.
Núna eru gestirnir farnir og ég sit og horfi á sjónvarpið. mmmmnotalegt.
Það er ljótt að vera vondur við minni máttar, en þegar þetta er skrifað, þá er fyrirsögnin á þessarri frétt í Dýrasta Bloggi Landsins: “Leðurblökumaðurinn kleif hæstu byggingu heims”.
Spæderman, battman… uss þetta er allt sami grauturinn í sömus skálinni.
Bjarnarbloggið óskar vinum sínum og velunnurum gleðilegra jóla, góðs matar, indælis félagsskapar og góðrar hvíldar um hátíðarnar!
Mikilvægasta starfið þessa dagana: Upplýsingatæknistjóri jólasveinsins
Nú ætla ég í bæinn. Jólaóróarnir fara ekki þar sem ég hélt þeir myndu fara. Mig vantar tré- og málmtæknistjóra.
Birgðastaða: Fullkomin
Óreiðustaða: Veruleg.
Skreytingastaða: Nær núll.
Og ég ætla vera kominn í bæinn kl. 8. Yikes
Allt er þetta nú indælt. Mamma á afmæli í dag. Viðhélt hefðinni og fór með gúmmelaði úr Konditori Copenhagen í morgunkaffið í Kópavoginum og nú á eftir er svo lundaveisla.
Er búinn að senda öll kort. Allur er varinn góður og ég smellti A póstur, par avion líka á innanbæjarkortin. Not the brightest bulb in the box, ha? Fengum jólagjöfina frá bankanum í dag. Ég náttlega kíkti, ekki að þurfi að kíkja mikið í langan, mjóan strigapoka með “Nordic Walker” utaná, en svo var líka bakpoki. Mun stika um Foxvoxdalinn í vor sumar og haust með stafi og bakpoka, fullan af múrsteinum….
Kom við í Nóatúni og keypti helstu vörurnar í jóladagsmatinn. Trúi varla hvað ég er í tæka tíð með allt.
