aras-a%c3%b0-innan

Posted July 13th, 2005. Filed under Uncategorized

Skyldi Björn ‘stríðsherra’ Bjarnason vilja taka á málum núna og uppræta hryðjuverkaógnina “með vestrænni hervæðingu” og bomba Leeds?
Ef svo er, væri nokkuð hægt í leiðinni að missa eins og eina niður á Elland Road?

samsta%c3%b0a

Posted July 12th, 2005. Filed under Uncategorized

Það er gaman að sjá að bandaríski herinn í Bretlandi sýndi samstöðu með íbúum Lundúna eftir fimmtudaginn og átaki þeirra í að koma borginni á kjöl sem allra allra fyrst…
…með því að banna hermönnum og starfsliði sínu að ferðast til Lundúna. Banninu var loksins aflétt í dag.
Orð fá varla lýst fyrirlitningu minni.

hef%c3%b0i-betur-%c3%beaga%c3%b0

Posted July 11th, 2005. Filed under Uncategorized

Ástralir rúlluðu þessu upp í gær og Pietersen var slakur. En öskurnar verða samt spennandi.

stora-enska-i%c3%berottaspurningin

Posted July 9th, 2005. Filed under Uncategorized

Eftir að London fékk Ólympíuleikana, Gerrard ákvað að vera áfram (næsta árið) og Alsvartir rúlluðu upp bresku og írsku ljónunum 21-3, 48-18 og 38-19 núna í morgun (svo er bara að vona að þeir haldi sér í formi fram að HM’07, Daniel Carter!!!vúaaah!) þá er bara ein spurning eftir sem brennur á enskum íþróttaunnendum:
Thorpe eða Pietersen.
Thorpe er búinn að vera meginstoð Englendinga í gegnum árin, þykkt og þunnt og oftar en ekki verið eini stjörn kylfingurinn þeirra en er núna að nálgast efri ár, er þó eins og þarna kemur fram í fantaformi þó oft sé spurning um heilsuna.
Pietersen er á hinn bóginn nýja eins dags stjarnan, rústaði Suður-Afríku í vetur, átti þrusu innu (inna (kvk) þýðing á enska orðinu ‘innings’) fyrr í sumar gegn Áströlum en fékk ekki að komast að á fimmtudaginn þegar England rúllaði yfir Ástrali án þess að missa nema eina vikku.
Nassar Hussain, fyrrum fyrirliði Englands, benti á hið augljósa þegar hann sagði á fimmtudaginn að við kæmumst að því einhvern tímann næsta árið hvort Pietersen ætti erindi í fimmdaga landsliðið. En það er ekki málið, spurningin er hér og nú.
Til að gera þetta allt flóknara þá verður þetta mest spennandi Öskusería í mörg mörg ár. England er með besta lið sem ég man eftir, kastarar á heimsmælikvarða og hver þrusukylfinginn á fætur öðrum og Thorpe á fullt erindi þar inn. Ef hann er heill.
Það er bara eitt atriði sem gerir útslagið fyrir mig að ég vil sjá Pietersen koma inn, a.m.k. í öðrum leik. Hann er Suður-afrískur. Ef hann væri þvottekta Tjalli er auðvelt að sjá fyrir sér svona Henman dæmi, bjarta enska vonin kemur, sér og gerir í brækur. En þannig bara verður það ekki með Pietersen, hann er ekki búinn að vera nema nokkur ár í Englandi, ekki nóg til að átta sig á að enska leiðin er lúser-hetjan.
Nema nátt’lega stöku menn eins og Ian Botham.
Eins dags leikur á morgun og svo byrjar alvaran 21. júlí.

ed-mcbain

Posted July 8th, 2005. Filed under Uncategorized

Allar aðrar fréttir féllu í skuggann í gær, en ég get ekki sleppt að minnast þess að Ed McBain er látinn, dó á miðvikudaginn. Ætli hann eigi ekki eins og einn hillumetra hjá mér.

allir-heilir

Posted July 7th, 2005. Filed under Uncategorized

Held ég sé búinn að heyra frá flestum ef ekki öllum vinum mínum í London. Það er gott, allir heilir á húfi so far.

Af KR vefnum:

“Öruggir áfram, fögnum í Víkinni,” stóð í dreifimiða sem Berserkir, stuðningsmenn Víkinga, báru í hús daginn fyrir leik. Árið 1949 auglýstu Víkingar “… klukkan 8.30 í kvöld verða Víkingar meistarar eftir 25 ára baráttu ..” Það gekk heldur ekki eftir því Víkingar töpuðu fyrir Val og KR varð meistari eftir sigur á Fram í aukaleik um titilinn. Víkingar þurftu að bíða í önnur 32 ár eftir titlinum.

Ójá. Þetta var nefnilega svo sambærilegt. Við félagarnir höfðum þó nokkuð fyrir því að hugsa upp fyndna og bjartsýna fyrirsögn sem ekki væri nokkur leið að taka alvarlega. Spilamennskan á mánudag fór nefnilega fram úr okkar björtustu vonum, þó að úrslitin hafi veri súr. En að reyna að ýja að því að þetta hafi verið vanmat eða grobb er bara svo stjarnfræðilega fyndið. Ef það er eitthvað sem Víkingar kunna ekki þá er það bjartsýni.

r%c3%a6ktin

Posted July 6th, 2005. Filed under Uncategorized

Þvældi mér í ræktina í morgun. Annars er ég andlaus og máttlaus. Er búinn að bóka næstu utanlandsferð, mæti á Clarecraft eins og svo oft áður. Var reyndar að spá í að sleppa því, en lét undan sjálfum mér. Fjórir dagar í tjaldi, vonandi rignir ekki. Nú rata ég allavega á pöbbinn. Ágætt að finna út úr því fimmta skiptið sem ég fór.
Fer ég of oft til útlanda? Á reyndar alltaf eftir að efna loforð um að fara með mömmu til Prag. Eitthvað til að hugsa um í haust.

otrulegt

Posted July 4th, 2005. Filed under Uncategorized

Þetta var svo ótrúlega ósanngjarnt. Við yfirspiluðum KR frá 25. mínútu gegnum allan leikinn og í framlengingunni.
Og mér hefur alltaf fundist ótrúlega sárt að tapa í vítakeppni í sjónvarpinu. Þetta var milljón sinnum verra.
Við hljótum að fara upp þegar við spilum svona restina af sumrinu

Listin að hata

Posted July 4th, 2005. Filed under Uncategorized

Eftirfarandi pistill mun birtast í leikskránni í kvöld, að sjálfsögðu á mína eigin ábyrgð. Það verður fróðlegt að sjá hvort einhverjir KRingar taka þessu ver en skyldi.
————
Það var á leik Víkings og Fram í fyrra að nokkrir skemmtilegir gestir létu sjá sig. Þar voru komnir stuðningsmenn Shelbourne sem gátu ekki látið eitt kvöld líða án þess að horfa á fótbolta og komu því í Víkina til að eyða góðu kvöldi og hita upp fyrir leik KR og Shelbourne daginn eftir. Með lagni tókst að fá þá til að setjast Víkingsmegin í stúkuna og studdu þeir Víkinga duglega í leiknum og létu sjá sig á spjallinu á vikingur.net næstu vikur á eftir. En með einu þóttust þeir vita að þeir gætu komið öllum í stúkunni í gott skap, og sameinað þessi tvö Reykjavíkurfélög.
En þegar söngurinn ómaði:
Stand up if you hate KR
stóðu um 5 aðrir upp og tóku undir.
Það hefur ýmislegt gengið á í stúkum Íslands en það verður seint sagt að andrúmsloftið sé þrungið meira en óbeit, eða í mesta lagi óvild. En ég stend stoltur upp og segi: “Ég hata KR”.
Ég flutti í vesturbæ Reykjavíkur þegar ég var 8 ára, fullmótaður Víkingur frá Hvolsvelli. Þetta var í þann mund sem gullöld Víkings var að hefjast í handboltanum, mér tókst meira að segja að fá vin minn, mikinn KR-ing í öllu öðru til að koma á handboltaæfingu í Réttó með mér. Okkur tókst reyndar að vera 90 mínútur að koma okkur heim og ég var settur í æfingabann. En næstu árin var ljúft að vera Víkingur, handboltamenn höluðu inn titlum og í fótboltanum hirtum við tvo Íslandsmeistarbikara, meðan jafnaldrar mínir KRingar þekktu ekki fyrirbærið.
En alltaf var KR ‘stórveldið’.
Líklega er þetta ástæðan. En það er erfitt að festa hendur eða huga á því. Það er síður en svo að dregið hafi úr hatri mínu á KR. Með velgengninni hefur drifið að hið vel þekkta fyrirbæri ‘gloryhunters’, sem eru alla jafna grobbnari en aðrir og gera það auðveldara fyrir mig að hata KR. En mér finnst í raun ónauðsynlegt að tína til ástæður. Ég hata KR. Ég hata ekki KR-inga. Ég á meira að segja vini sem eru KR-ingar. Og þeir vita að ég hata KR.
Núna ættu held ég nógu margir að vera hættir að lesa og þá slæ ég fram staðhæfingunni sem á eftir að stuða suma. Mér finnst vanta hatur í íslenska boltann. Bara svolítið hatur. Ekki nóg til að beita ofbeldi, alls ekki. Bara nóg til að eiga smá erfitt með svefn þegar liðið sem þú hatar vinnur þitt lið, eða verður meistari, eða gengur vel í Evrópukeppni. Því að ef þú hatar eitthvað annað lið, þá verða tilfinningarnar til þíns eigin liðs þeim mun sterkari.
Þetta á reyndar ekki eftir að verða algengt í íslenska boltanum, því rekstur liðanna byggir á svo mörgum sem komið hafa að nýju liði þegar börnin fara að æfa í hverfisliðinu. En það er samt ætti samt að vera nóg af okkur hinum sem styðjum okkar lið með öllu því sem það fylgir, þar með talið að hata erkiféndurnar.
Það er bara eitt vandamál. Það er orðið ansi langt síðan að KR þurfti að hafa áhyggjur af Víkingum. Reyndar stálu þeir sigri hér í Víkinni í fyrra, en það skipti litlu. En í kvöld skiptir þetta máli. Í kvöld eygjum við Víkingar sem hötum KR tækifæri til að gera þeim lífið leitt. Þess vegna ætla ég að standa upp í kvöld ef einhver hvetur þá sem hata KR til að standa upp. Og vona, dreyma og vænta þess að einn góðan veðurdag verði Víkingur félagið sem allir KR ingar hata.

romarmyndir

Posted July 3rd, 2005. Filed under Uncategorized

Myndirnar frá Róm eru komnar upp

duran-eftirmali

Posted June 30th, 2005. Filed under Uncategorized

Þetta var alveg meiriháttar. Og í staðinn fyrir tvö lög í uppklappi eins og á setlistanum voru þau þrjú og svaka kynning. Ég hefði reyndar frekar viljað fá Make Me Smile heldur en Reflex, en hið síðarnefnda passaði betur í uppklappinu. Ætli Chauffeur sé samt ekki flottasta lagið þeirra.
Hefði getað sagt mér það fyrirfram þegar ég sá Queen bol bregða fyrir að þar færi Óli Gneisti…

durani%c3%b0

Posted June 30th, 2005. Filed under Uncategorized

Auðvitað er ég að fara á Duran Duran. Fílaði samt Wham meira.

hei%c3%b0ardalurinn

Posted June 27th, 2005. Filed under Uncategorized

Kominn heim, töf í Róm olli smá stressi um að ná ekki vélinni á Stansted, en náði þangað vel í tæka tíð. Sem skipti ekki máli því vélin fór ekki fyrr en í morgun. Flugfélögin hafa sameinast um að hirða af mér frídaga…

all-good-things

Posted June 23rd, 2005. Filed under Uncategorized

Farinn ad sjà fyrir endann à thessu. Hjer er buinn ad vera steikjandi hiti, en thad var ekki fyrr en nuna sem jeg nennti ad athuga tolur. Thad var vist 35 stig i dag. Og spad sama afram. Thetta eru adstaedur sem jeg er sem hannadur fyrir. Tharf ad skoda thetta betur i Islendingabok og athuga fronsk/spaensk strond i Borgarfirdi og Skagafirdi a oldum adur. Mjer er farid ad thykja oliklegt ad jeg sje thvottekta Islendingur sem aetti hvergi ad una sjer betur en i 10 stiga frosti.
Thess vegna hentadi mjog vel ad taka thriggja tima gongutur upp ad Stadio Olimpico i gaer, og tveggja tima+ tur um Colosseum og Palatin haed i morgun.
Er ekki orugglega sona 25 stiga hiti heima? Thad eru allir bunir ad vera svo upprifnir yfir vedrinu a MSNinu.

heitt

Posted June 19th, 2005. Filed under Uncategorized

Hàer er heitt og gott. Vel flekkòttur eftir strondina ì gaer. Sjorinn var ekki eins hreinn og fyrir viku. Nema hvad. Bùinn ad skoda mest allt thad markverdasta thannig ad nuna get jeg bara eytt fritimanum i afslappelsi, rolt og huggulegheit. Ma ekki gleyma ad henda peningi i Trevi.
Thad sem a eftir ad standa upp ur ur thessarri ferd er ad nu er jeg kominn med fulla tilfinningu hvernig Rom litur ut og hvernig hun snyr. Thad faer madur ekki a theim 2-3 daga heimsoknum sem jeg tok hingad a niunda aratugnum, endalausar rutur…

turismi-og-tilviljanir

Posted June 13th, 2005. Filed under Uncategorized

Var vaknadur frekar snemma og akvad ad bara drifa mig a faetur med fuglunum og var kominn utur husi kl 7.08. Med pit stop a naesta bar, cappucino og cornetto, og sma myndatokum var eg kominn ut a Pjeturstorg fyrir half atta, longu a undan turistahjordinni. Engin bidrod inn i kirkjuna og ef thad voru meira en 200 manns thar inni er jeg hissa. Fjekk meira ad segja nokkrar minutur einn med Pietà. Gekk um alla kirkjuna med mussikina ur iPod Shuffle i eyrunum, virdingarlaus sem jeg er. Eins og stendur er hun med ca 120 log valin af handahofi ur 700 logum med 4-5 stjornur i iTunes hja mjer. Og a somu sekundu og eg nam stadar fyrir framan ha-altarid kom nytt lag og Halleluja korinn (Bach er thad ekki?) hljomadi i eyrunum a mjer. Thad eru svona skemmtilegar tilviljanir sem fa folk til ad taka tru.
Thegar jeg kom ur kirkjunni for eg upp i kupulinn til ad skoda utsynid yfir mistrid i Rom. Engin bidrod i thad heldur. Thegar jeg kom loks nidur var heldur farid ad fjolga. Rolti heim a leid og kom vid hjer i netverinu.

sol-og-sumar

Posted June 12th, 2005. Filed under Uncategorized

Thad er eflaust haegt ad gera eitthvad merkilegra a laugardegi i Rom en fara a strondina. En fatt skemmtilegra.
Forum yfir 20 manns a strond sem einn vissi af, frekar af leid, ekki of margir thar og bara thessi fina strond. Sleppi thvi ad fara i skola skipulogdu ferdina a strond i dag. Allt onnur og verri strond og lengra fra. Aetla i stadinn ad thramma um alla borg. Byrja a thvi ad fara upp a Gianicolo haedina hjer beint fyrir ofan hvadan mun vera hid frabaerasta utsyni um alla borg. Svo mun restin radast af hendingum.
Kvedjur i islenska sumri, vona ad thad se meira en 10 stiga hiti…

borgin-eilifa

Posted June 7th, 2005. Filed under Uncategorized

Róm er heit. Og lyktar stundum. það var sosum vitað.
Ég er lakari ítölskunni en ég var að vona. En þad stendur til bóta.
Beibstuðullinn í bekknum er þolanlegur, var hærri í gær í sameinuðum bekk. Nunnustuðullinn er á móti dottinn í núll. En þetta er mjog vidkunnanlegt lid (eg er haettur ad nenna ad htmla islensku stafina….) og thad er natturulega fyrir mestu.
Smart er bill bilanna i Rom. Ekki ad undra enda litid annad en yfirbyggd vespa a 4 hjolum. Og haegt ad leggja honum thversum i staedi. Sa einn i gaer sem buid var ad taka hlidarnar af og ekkert nema veltigrindin var eftir. Flott.
Thad er 10 min gangur ur Trastevere i skolann, nalaegt Piazza Navona. Ekki sjerlega slaemt.

quizzy

Posted June 3rd, 2005. Filed under Uncategorized

Óóókey. Ég er sumsé öfga.

You scored as Existentialist. Existentialism emphasizes human capability. There is no greater power interfering with life and thus it is up to us to make things happen. Sometimes considered a negative and depressing world view, your optimism towards human accomplishment is immense. Mankind is condemned to be free and must accept the responsibility.

Existentialist

100%

Materialist

88%

Modernist

75%

Postmodernist

63%

Cultural Creative

44%

Fundamentalist

25%

Romanticist

25%

Idealist

19%

What is Your World View? (updated)
created with QuizFarm.com

En það er ekkert að þessu prófi:

You scored as Ross. You’re brainy Ross. Once a geek and now a hit with the ladies. Hope you have enough money to pay for all those weddings!

Ross

90%

Rachel

65%

Monica

60%

Chandler

45%

Phoebe

25%

Joey

15%

Which Friend are you?
created with QuizFarm.com

(fyrir þá sem tóku spurningaprófið mitt um daginn, þá þýddi “Hvaða vinur?” ekki hvaða vinur ég væri, enda vantaði Ross í möguleikana. Spurningin var auðvitað af hvaða vin ég væri hrifnastur)