the-oval-bi%c3%b0ur

Posted September 4th, 2005. Filed under Uncategorized

Fyrir viku var ég í fimm manna deild, nú erum við þrír og hálfur, ef tekið er mið af nýrri aukaábyrgð yfirmannsins. Einn skrapp í frí, þannig að það var alveg nóg að gera, en ég hafði gaman að komast í verkefni sem ég hef ekki þurft að sinna í lengri tíma.
Er búinn að bóka ferð til Englands, á miða á síðasta daginn í Testinu um næstu helgi, svo er bara að vona að leikurinn endist það lengi. Ef það verður leikið og Ástralía er ekki örugg með sigur, þeas ef England á enn séns á að vinna Ashes í fyrsta skipti í 19 ár má bóka nokkuð eftirminnanlegan dag.
Varðandi tapið gegn Króötum í gær er fátt annað að segja en að menn sem geta ekki skipulagt vörn eiga ekki að þjálfa íslenska landsliðið. Ég held það verði ekki langt að bíða að Sölvi ‘íslenski Nesta’ Geir Ottesen komi sterkur inn. Líka gaman að sjá að Kale var besti maðurinn í U21 leiknum á föstudag.
Um New Orleans er ekki hægt að hugsa ógrátandi. Vanhæfnin og stjórnunarklúður á aðgerðum þar er svo fullkomlega geðsýkisleg. Og ég hef ekki getað komist á neina aðra skoðun en að ástæðan sé sú að um fátæka svarta suðurríkjabúa er að ræða. Þeir skipta ekki máli.
Ég vil benda á andartakið þegar Fox varð mannlegt (Matti hýsir myndbandið tímabundið innanlands), sér í lagi hvers vegna það skiptir máli að Geraldo líkir ástandinu við Willowbrook. Það er alltaf hægt að treysta á Making Light að hýsa góðar umræður, öll síðasta vika í raun, t.d. hér og hér og svo er það spurningin hvað er að vera fátækur í Bandaríkjunum.

bloggsi%c3%b0ur-ekki-opinberar

Posted August 27th, 2005. Filed under Uncategorized

Síðan hvenær eru bloggsíður ekki opinber plögg? Þvílíkir pípandi fávitar sem þessir blaðamenn eru. Fréttablaðið, Mogginn, Stöð 2 o.s.frv. mega vera eins grenjandi hlutdræg og þau vilja. RÚV og starfsmenn þess mega ekki vera það. Punktum. Basta.
Það var helv. gaman í gær, blogga um það síðar.

%c3%beyngdarblogg-eru-frekar-personuleg

Posted August 23rd, 2005. Filed under Uncategorized

Ég ætlaði að segja að þyngdarblogg væru leiðinleg, en það er líklega ekki rétta orðið. Er hins vegar nokkuð viss um að það hjálpar eflaust mörgum og veitir aðhald að birta tölur. Ég ætla bara að láta nægja að minnast á að í dag byrjaði ég í Biggest Loser keppni niðrí vinnu. Kíkið aftur hér 31. október og sjáið úrslitin, ætla ekki að tjá mig um það fyrr. Má ekki gefa tommu eftir! Og þó. Kannske einn öl í viku 😉

krikketlaus-laugardagur

Posted August 20th, 2005. Filed under Uncategorized

Það er helgi og það er ekki Ashes leikur. Ég veit varla hvað ég á af mér að gera. Og þó.
Fyrir liggur að lesa Algebraistann, horfa á United og meiri og fleiri leiki, horfa á nokkra þætti úr League of Gentlemen, fara í miðbæinn, hlusta á fyrirlestur rithöfunds um listmálara (jájá, þetta er enn ég, þið eruð ekkert að villast á bloggum þó ég gerist listrænn. Eyborg Guðmundsdóttir var vinkona mömmu og moster og ætla mér að fræðast aðeins meira um hana) og síðan reyna að skemmta mér eitthvað í miðbænum. Bakkus verður hvíldur, enda var tekið hraustlega á í Akureyrarferðinni á fimmtudaginn hvar Víkingur var aðeins 2 mínútum frá fræknum sigri sem hefði fleytt okkur langleiðina upp. En við erum enn með allt í okkar höndum.
Á ég að ranta aðeins? Jájá, hvers vegna ekki. KrossGunni var í Íslandi í bítið á fimmtudaginn og eins og venjulega þorir enginn að vaða almennilega í kallinn. Mig dreymir um daginn þegar hann verður boðaður í viðtal í beinni útsendingu sem verður sirka svona:

Spyrill: Gunnar, nú lifir þú samkvæmt Biblíunni og hefur verið virkur andstæðingur t.a.m. jafnréttinda samkynheigðra, eða forréttinda eins og þú kallar þau?
KrossGunni: Jú, mikið rétt.
Spyrill: Gunnar, það voru 570 manns í Krossinum í desember 2003 og hafði fjölgað um 40 á 5 árum. Það eru hátt í 1000 múslimar á landinu skv viðtali í DV um daginn. Þeir ráða ekki okkar lögum og heldur ekki þú. Vertu úti með þinn sértrúarsöfnuð og njóttu þess að fara eftir þínum reglum. Þetta samtal verður ekki lengra.
Næst í Kastljósi….

tysdagur

Posted August 16th, 2005. Filed under Uncategorized

Datt inn á veðurfregnirnar áðan í Sjónvarpinu og sá að á morgun er “miðvikudagur (óðinsdagur)”. Er Ásatrúarfélagið komið með ítök á Veðurstofunni??

vikja-enni

Posted August 14th, 2005. Filed under Uncategorized

Víkingur tapaði stigum (jájá Kanzlari, ég komst heilu og höldnu úr Kópavoginum, til þess fór ég í strætó), Nýsjálendingar unnu sannfærandi á Telstra velli, United vann sannfærandi, ég kláraði Hvern Lækni, tvær Leon og tvær Zen, Chelsea stal stigum, Ástralir þurfa heimsmet og ég ætla að horfa á Donnie Darko Directors Cut.
Sem bara ekki slæm helgi.
Og til að halda áfram þemanu úr titlinum, þá er Siete Pazzi Questi Romani fyndnara en Þessir Rómverjar eru klikk, en það er líka það eina sem er ekki fyndnara á íslensku en öllum málum öðrum sem ég hef lesið þetta á. Enda kann ég ekki frönsku.

adsl

Posted August 12th, 2005. Filed under Uncategorized

Jæja, eftir mikið japl jaml og fuður er ADSL routerinn farinn að virka sem skyldi, næstum því… Það er þó ekki mikið sem á vantar og ADSL sjónvarpið er í góðu lagi, sem er fyrir mestu fyrir morgundaginn.
347 for 3 eftir fyrsta dag? England? ha?? Annaðhvort vinna þeir frækinn sigur eða þetta fer í dautt jafntefli. Meira að segja líkurnar á klúðri eru orðnar litlar.

f%c3%a6%c3%b0ingarorlof

Posted August 9th, 2005. Filed under Uncategorized

Hallveig, má ég kynna Gunnlaug, Gunnlaugur, þetta er hún Hallveig. Það eru kommentakerfi hjá ykkur báðum!
Já já, ég er vondur maður.
Annars sé eins og yfirleitt báðar hliðar á málinu. Ég sé svo oft báðar hliðar á öllum málum að stundum er eins og ég sjái í fjórvídd.

fotbolti-i-reykjavik

Posted August 4th, 2005. Filed under Uncategorized

Víkingur hirti þrjú stig af KS og Englendingar hafa ekki skorað jafn mörg hlaup gegn Áströlum á fyrsta degi síðan 1938, en skemmtilegasta frétt dagsins var á mbl.is

Valsmenn eru nánast komnir í úrslit Visa-bikarsins eftir að Garðar Gunnlaugsson skoraði öðru sinni þegar rétt tæpar átta mínútur voru eftir af leiknum. Staðan því 2:0 fyrir Val og Fylkismenn þurfa kraftaverk ætli þér að koma sér aftur inn í leikinn. Það er því líklega Reykjavíkurslagur í úrslitum því Framarar komust í úrslitin í gær þegar þeir lögðu FH að velli í vítaspyrnukeppni.

(leturbreyting mín)
Það er gaman að sjá túlkun þessa dýrasta bloggs á Íslandi á því að Valur þyrfti að vinna til það yrði örugglega Reykjavíkurslagur í úrslitunum. Er ekki fjarri því að ég sé bara alveg sammála!

ut-i-geim

Posted July 26th, 2005. Filed under Uncategorized

Horfði á geimskutluskotið í beinni. Þvílík tilfinning. Mannkynið verður að halda áfram geimferðum, kostnaður eða ekki. Aftur til tunglsins, áfram til Mars.
Það er ekki margt sem ég myndi frekar vilja sjá en Marslendingu manna, nema kannske geimlyftu og ég hef fulla trú að sjá annað eða bæði áður en yfir lýkur.

likamsaras-kristjans-finnbogasonar

Posted July 24th, 2005. Filed under Uncategorized

Djöfulli var þetta ljótt. Kristján Finnbogason má prísa sig sælan að hafa ekki hitt Hörð Sveinsson þegar sá síðarnefndi skoraði 3ja mark Keflavíkur gegn KR. Brjálæðingurinn kom útúr teignum og tók fljúgandi tæklingu með fótinn á undan í lærishæð. Það er eitthvað að ef hann fær ekki nokkurra leikja bann. Enn ein ástæðan til að hata helvítis KR.

aftur-ni%c3%b0ur-a-jor%c3%b0ina

Posted July 24th, 2005. Filed under Uncategorized

En, nei, flestir dagar eru eins og í dag, og því leitar hugurinn til útlanda. T.d. um næstu helgi.

sol

Posted July 23rd, 2005. Filed under Uncategorized

Það er sól! og hlýtt! Vá…
Búinn að liggja í sólbaði meira eða minna og held því áfram. Það var fyrir svona daga sem ég flutti í Fossvoginn og eignaðist garð. Einhver óþekktur vinnufélagi minn hafði fyrir því í gær að setja upp þessa skemmtilegu ræmu Ég sé fyrir mér frægð og frama fyrir okkur Kanslarann í Hollývúd.

va

Posted July 23rd, 2005. Filed under Uncategorized

Ef allir dagar væru eins og í dag myndi ég fara sjaldnar til útlanda. Og hugsa minna til útlanda.

allt-or%c3%b0i%c3%b0-e%c3%b0lilegt-a-ny

Posted July 22nd, 2005. Filed under Uncategorized

Ástralir settu í venjulega gírinn í dag, 279 hlaup, og eru 314 yfir. Aumingja Englendingar… þeir sem byrjuðu svo vel.
Þetta gæti orðið sorgarsumar. Og þó.
Þvílík bongóblíða. Það er ekki oft sem ég opna kalda hvítvín til að súpa út’á svölum. En núna ætla ég í Berserkjakjallarann.

hasar

Posted July 21st, 2005. Filed under Uncategorized

Ert’ekk’að grínast. Englendingar rúlla upp ‘ströllunum í fyrstu lotunni, 190 hlaup og hrynja svo sjálfir eins og haustlauf í roki. Og svo hættir allur hasar um leið og ég kem heim. Ég held að menn hafi eitthvað misskilið þetta og haldið að þetta sé einsdagsleikur. Og Pietersen er barasta að standa sig.

tom-lehrer

Posted July 20th, 2005. Filed under Uncategorized

Tom! Lehrer! á myndbandi! á vefnum! hérna!
*squeeeee*

harry-potter

Posted July 16th, 2005. Filed under Uncategorized

Náði mér í frátekinn Potter í Eymundsson kl 10 í morgun. Þeir áttu ófráteknar bækur, ólíkt síðast þegar ég kom eitthvað um hálfeitt um nóttina, allt búið.
En alla vega, bókin er bara ágæt, skemmtilegri en OotP. Smelli kannske spoilerum inn í komment hér á eftir, ykkur er velkomið að gera sama.

a%c3%b0-taka-sensinn

Posted July 14th, 2005. Filed under Uncategorized

Þeir tóku sénsinn. Pietersen er í liðinu. “Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið þátt í” sagði Graveney, formaður valnefndarinnar. Djarfasta val lengi í enska landsliðinu. Vona að strákurinn standi sig.
Fjölnir-Víkingur í kvöld upp í sveit. Tek Berserkjarútuna til að vera viss um að rata á leikinni

breskir-rikisborgarar

Posted July 13th, 2005. Filed under Uncategorized

Vill einhver útskýra fyrir mér hvenær talað er um menn fædda í Bretlandi sem ‘breska’ og hvenær sem ‘breska ríkisborgara’.
500 bónuspunktar fyrir hvern þann sem getur komið með skýringu sem ekki byggir á húðlit, trú og uppruna foreldra.
Og já, fyrir þá sem ekki sáu forsíðu Moggans í morgun, þá voru “Tilræðismennirnir breskir ríkisborgarar”
Þetta er fyrir neðan allar hellur.