2

stora-enska-i%c3%berottaspurningin

Posted July 9th, 2005. Filed under Uncategorized

Eftir að London fékk Ólympíuleikana, Gerrard ákvað að vera áfram (næsta árið) og Alsvartir rúlluðu upp bresku og írsku ljónunum 21-3, 48-18 og 38-19 núna í morgun (svo er bara að vona að þeir haldi sér í formi fram að HM’07, Daniel Carter!!!vúaaah!) þá er bara ein spurning eftir sem brennur á enskum íþróttaunnendum:
Thorpe eða Pietersen.
Thorpe er búinn að vera meginstoð Englendinga í gegnum árin, þykkt og þunnt og oftar en ekki verið eini stjörn kylfingurinn þeirra en er núna að nálgast efri ár, er þó eins og þarna kemur fram í fantaformi þó oft sé spurning um heilsuna.
Pietersen er á hinn bóginn nýja eins dags stjarnan, rústaði Suður-Afríku í vetur, átti þrusu innu (inna (kvk) þýðing á enska orðinu ‘innings’) fyrr í sumar gegn Áströlum en fékk ekki að komast að á fimmtudaginn þegar England rúllaði yfir Ástrali án þess að missa nema eina vikku.
Nassar Hussain, fyrrum fyrirliði Englands, benti á hið augljósa þegar hann sagði á fimmtudaginn að við kæmumst að því einhvern tímann næsta árið hvort Pietersen ætti erindi í fimmdaga landsliðið. En það er ekki málið, spurningin er hér og nú.
Til að gera þetta allt flóknara þá verður þetta mest spennandi Öskusería í mörg mörg ár. England er með besta lið sem ég man eftir, kastarar á heimsmælikvarða og hver þrusukylfinginn á fætur öðrum og Thorpe á fullt erindi þar inn. Ef hann er heill.
Það er bara eitt atriði sem gerir útslagið fyrir mig að ég vil sjá Pietersen koma inn, a.m.k. í öðrum leik. Hann er Suður-afrískur. Ef hann væri þvottekta Tjalli er auðvelt að sjá fyrir sér svona Henman dæmi, bjarta enska vonin kemur, sér og gerir í brækur. En þannig bara verður það ekki með Pietersen, hann er ekki búinn að vera nema nokkur ár í Englandi, ekki nóg til að átta sig á að enska leiðin er lúser-hetjan.
Nema nátt’lega stöku menn eins og Ian Botham.
Eins dags leikur á morgun og svo byrjar alvaran 21. júlí.

2 Responses so far

  1. Raggi says:

    Skrifaði mikla langloku á bloggið þitt áðan sem eyddist út #$%”#%”&&. Er svo sem sammála þér í því að Pietersen ætti að fá einhvern möguleika en það mætti nú ekki gleyma því að Englendingar eru með nokkra góða góða kylfla sem eru mjög góðir í lengri útgáfunni eins og Bell og Key sem hljóta líka að setja strik í reikninginn hvað Pietersen varðar. Reyndar var Pietersen að gera góða hluti núna með 74 úr 84 boltum og sem gerði það að verkum að England tapar allavega ekki með miklum mun í dag.
    Held líka að Harmison og Flintoff séu mennirnir sem þurfi að vera upp á sitt besta til að England vinni öskuna til baka.
    Svo er smá vesen með orðalagið þitt. bowler er verpill á íslensku, bannað er að kasta. Innings er lota og vikket er vikket (í hvorugkyni).

  2. Ég vissi sosum að ég var að fara með rangt mál, en það er ekki eins og hægt sé að fara á kylfan.is og fletta þessu upp!
    Bell og Key koma sterkir inn, enda á Kevin ekki séns í þá, og reyndar ekki neitt núna ef meiðslin eru alvarleg.
    Helvíti er magnað að sjá Warwickshire í 2.deild í einsdagleik með Bell og Knight fremsta í flokki… það er næstum eins og ef Ruud væri í framlínunni hjá Víkingi…

Leave a Comment