nanci-griffith

Posted October 28th, 2004. Filed under Uncategorized

Ég hef minnst á að ég held að ég sé eini aðdáandi Nanci Griffith á landinu. Það voru sex diskar að koma frá Amazon, sem næstum fyllir safnið. En samt greinilega ekki nógu mikilli aðdáandi. Þegar ég leit á nancigriffith.com núna til að smella inn tenglinum sé ég að það er komin ný plata. Amazon greinilega ekki að standa sig í recommendations núna fyrst ég vissi það ekki. Þá er ekki annað að panta aftur.

dratt

Posted October 27th, 2004. Filed under Uncategorized

Drattast allt þessa dagana ef ég á annað borð drattast eitthvert. Drattaðist í ítölsku í kvöld ólíkt síðasta miðvikudegi. Efast um að ég drattist til Kef á morgun að ná í systurnar, en sendi Grétar bróður. Dj vildi ég hafa eytt síðustu fjórum vikum á Benidorm.

Ef einhver veit hvar ég fæ svona dagsljóssperur hér á klakanum verð ég eilíflega þakklátur.

Annars eru Paparnir að gera sitt besta við að halda mér vakandi núna. Mikið rosalega var mikið fjör á laugardag.

Sitthvað sem mér datt í hug:

  • Hver hélt að breskir hommar gætu verið jafn kúl og Kanar? Þeim sem bjuggu til Queer Eye UK er svarið. Úff. Svo eru viðfangsefnin svo ótrúlega ensk og hallærisleg. Stelpurnar í How clean is your house passa miklu betur í ensku stemminguna.
  • Ábreiður: Það er ekkert mikið að því að reyna sig við að breiða yfir gömul lög. Stundum verður til hrein snilld. En ég heimta að það þýði ekki að gamla lagið hverfi ekki. Gamalt case in point: Ef einhver heldur að I will always love you sé ekki snilldarlag hefur einhver ekki heyrt Dolly. Íslenskt: Braggablús, Bubbi gargar. Nýrra: Öll hugsanleg bojbönd.
  • Arafat er að gefa upp öndina. Hlutirnir geta ekki versnað, er það?
  • Hobbiti!!
  • Ég þarf að fara að fara í ræktina
  • Scott Joplin sér um að koma smá brosi á andlitið áður en ég, you got it, drattast í rúmið.

itunes-music-shop-enn-a-ny

Posted October 27th, 2004. Filed under Uncategorized

Jæa. Apple Launches EU iTunes Music Store. Gettu hver er ekki með.

Já sko þig. Öll Norðurlöndin. Og ekki heldur nýju ESB löndin fyrir austan. Það er þá EU búð. Hvenær ó hvenær kemur samkeppni við 64 kbps draslið frá tonlist.is?

Og ég sem hefði, ef ég hefði getað, keypt Teenage Kicks í gær til að hlusta á uppáhaldslagið hans John Peel.

vikingsball

Posted October 25th, 2004. Filed under Uncategorized

Hef látið undan bloggletinni undanfarið. Annars var helgin góð. Fór á uppskeruhátíð Berserkja á laugardaginn og á Víkingsballið í framhaldi af því . Pakkfullt af fólki, Paparnir trylltu lýðinn gjörsamlega og dansgólfið var þéttstaðið. Hef aldrei verið jafn óþunnur eftir jafn mikla ölvun, né sofið jafn vel. Þakka það reykleysinu á staðnum.

Ekki var verra að vera þokkalega hress á sunnudaginn og sjá mína menn taka Arsenal á hörkunni.

afsogn-nuna

Posted October 12th, 2004. Filed under Uncategorized

Ásgeir og Logi eiga að segja af sér. Núna strax. Já, í hálfleik. Þetta er óásættanlegt.

[edit: Setti réttan tíma á færsluna]

ekkert-a%c3%b0-skehe

Posted October 11th, 2004. Filed under Uncategorized

Nothing to report. Ætlaði að skrifa eitthvað um hvað ég væri gleyminn og myndi varla eftir bekkjarfélögum á Hvolsvelli (nema bestu vinunum) og þaðanafsíður miklu eldra fólki úr öðrum sveitarfélögum, en, nennti því ekki 🙂

Byrjaði á smá prójekti um helgina. Vona að mér haldist vel að verki við það, það er lúmskt gaman. Ég ætlaði að fara í endurhanna spjalllúkkið á víking.info, en kom mér ekki í það alveg, samt búinn að sjá út hvernig ég fer að.

Annars leið helgin bara svona ósköp lúnlega áfram við lestur og dúll. Næstum búinn að horfa á 4. seríuna af B4 á DVD. Þetta eru þvílíkt snilldarþættir.

Úps. Man núna. Gleymdi að vinna ítölsku heimavinnuna… tonight, tonight… enda er ég með gesti í mat á morgun, lítil ítalska þá.

En það er kominn tími til að haska sér í vinnuna. Hef alltaf ekki viljað vera að bloggfæra á þessum tíma dags þó henti þokkalega þegar ég er að græa morguntölvuverkin áður en ég fer í vinnuna. Það er nebblega ekki mjög fínt í nördheimum að vera svona svakaleg A persóna og ég ekki viljað koma út úr skápnum með það með risa bloggfærslum kl 6.30 🙂

italska

Posted October 6th, 2004. Filed under Uncategorized

Kom mér loksins í ítölskutíma. Var alveg út á þekju til að byrja með og vonlaus í að koma út úr mér heilli setningu, en þetta kom nú frekar fljótt. Held ég eigi eftir að læra heilmikið. Ekkert *nýtt* en heilmikið sem ég hef séð áður og gleymt. Gott mál.

Í öðrum fréttum: Skrifa undir kaupsamning… eða ölluheldur sölusamning á morgun. Nema eitthvað katastrófalt gerist. Vonum hið besta.

Það verður gott að eiga bara eina fasteign.

enn-er-komin-helgi

Posted October 2nd, 2004. Filed under Uncategorized

Bloggleti í miðri viku eins og oft. Enda fátt gert utan vinnutíma sem vert er að minnast á. Er búinn að bloggervæða vikingur.info, þannig að nú ætti ég að geta fengið fleiri í lið með mér. Mjög skemmtilegt hvað bloggervélin er breytanleg, síðan er næstum nákvæmlega eins, nema hvað dagsetning og tími hefur bæst við færslur og bloggerhnappurinn er þarna. Svo þarf ég að skella inn vísunum í eldri færslur. Includes gera líka mikið gagn, enda þarf þá ekki að breyta blogger template, heldur skrám sem liggja úti á vefnum sjálfum.

Ef ég væri alvöru nörd hefði ég auðvitað skrifað mitt eigið færsluumsjónakerfi.

Ljúfur laugardagur, afgreiddi ofangreindar breytingar milli 4 og 8 í morgun (það er mynd af mér við “A týpa” í orðabókinni), en fór svo yfir í eitthvað allt annað og náði þriggja tíma morgunlúr. Draumar í morgunsárið og í svona léttum svefni eru *enn* steiktari en venjulega. Ég vil ekki þekkja undirmeðvitundina mína… þvílíkur þrautakóngur sem henni datt í hug.

Hlustaði á Guðbrandsmessu eftir Hildigunni. Svona verðlaun letja mann ekki í að hamra á F5 😀 Er alltaf á leiðinni að hlusta meira á klassík. Líst vel á að fara á Toscu eftir jól. Já og jafnvel Sweeney Todd líka. En ekki núna. Núna er ég með My Top Rated á random í iTunes, og Billy Joel er að rokka húsið með Scenes from an Italian Restaurant af Þúsárakonsertinum sínum. Jíhaaa!

hella-er-a-hvolsvelli

Posted September 26th, 2004. Filed under Uncategorized

Morgunblaðið Strikes Again. Fyrirsögnin: “Búnaði stolið úr rútu á Hvolsvelli”. Greinin: “Brotist var inn í litla rútu sem stóð fyrir utan hótel Mosfell á Hellu”.

Sem gamall Hvolsvellingur hlýt ég að benda á glæpaöldu sem augljóslega er einangruð við Hellu.

Þegar ég var krakki á Hvolsvelli var mér alltaf ofboðslega illa við Hellu. Enda pabbi sýslumaður og Framsóknarmaður og alvörukaupfélagsmaður, en á Hellu var Ingólfur og íhaldskaupfélag. Reyndar var ég bara gutti þá, flutti 8 ára, og held að ‘Sjálfstæðismenn’, þó ekki sé að nafninu til, hafi oft unnið í sveitarstjórnarkosningum á Hvolsvelli.

Fáir staðir á Íslandi þar sem 10 kílómetrar eru jafn auðfarnir milli tveggja jafnstórra þorpa…

oh-what-a-beautif-hm-nei-annars

Posted September 26th, 2004. Filed under Uncategorized

Grár haustmorgun á sunnudegi. Ég get skilið þá sem finnst sumar(ég), vetur(skíðafríkin) eða vor(allt að springa út) besta árstíðin. En að finnast haustið best, það skil ég ekki. Ég þarf betri lýsingu í stofuna hjá mér. Þarf að bera upp halógenlampann sem ég setti í gestaherbergið þegar það var upptekið. Veit annars einhver hvar ég fæ dagsbirtuperur/lampa?

Var að horfa á formúlana. Schumacher hatarar gleðjast, en þó að stefndi í að síðustu þrír hringirnir yrðu spennandi endaði þetta án sviptinga.

Nú þarf að gera eitthvað… sælt í dag. Ætli sé ekki best að loka lappanum? Slökkva á imbanum? Lesa bók? Kannske setjast við borðtölvurnar og htmla smá? Hýðið þarf yfirhalningu.

gott-party-og-anna%c3%b0-smalegt

Posted September 25th, 2004. Filed under Uncategorized

Hófið í gær tókst vel, allir skemmtu sér, og nutu góðra veiga. Og ég er næstum búinn með fráganginn. Það er gott að vera ekki þunnur.

Kærar þakkir til Hildigunnar fyrir verðlaunin, hlakka til að hlusta.

Víkingur.Info er komin þokkalega vel af stað, ég næ að uppfæra forsíðuna af og til og spjallið er byrjað að gera sig. Úrslit eins og í gær spilla ekki, frábært að fara með 2 stig úr bæli hins illa.

Annars held ég ég fari ekki mikið úr leisíbojnum í dag, fótbolti, bækur og kjöltukisinn.

Nei, ég er ekki búinn að fá mér kött, þetta er bara nafnið á laptoppnum mínum.

italska-v

Posted September 22nd, 2004. Filed under Uncategorized

Jibbí, ítalskan byrjar í kvöld. Enn og aftur. Af ýmsum ástæðum er þetta í 3ja skiptið sem ég fer í V, en who cares, þetta er hobbí ekki gráðusöfnun. Kannske næ ég að mæta í meira en helminginn af þessum kúrsi.

Grillveisla fyrir deildina á föstudag, allir koma með sitt, plús ég verð með eitthvað meðlæti og aukabita á grillið.

Tillögur að meðlæti? Plís?

landsbankinn-og-kr

Posted September 21st, 2004. Filed under Uncategorized

Svo að Landsbankastarfsmenn vilja helst ekki hafa börnin sín í KR-heimilinu. Ég skil það svo ósköp vel.

Ekki myndi Herra Karl senda sín börn í gæslu í Félagsheimli Vúdúvina á Íslandi.

build-a-bonfire

Posted September 20th, 2004. Filed under Uncategorized

Build a bonfire, build a bonfire, put the …

Mmmmjá. Mikky með tvö glæsimörk. Ekki of slæmt

upplyfting

Posted September 20th, 2004. Filed under Uncategorized

Til upplyftingar sálu minni tók ég smá retail therapy í morgun og skellti inn mér á áskrift á þremur mánaðarritum enskum áður en ég fór í vinnuna, nú get ég hætt að dæla peningum í pennanneymundsson við að kaupa United og World Soccer og það er ekki eins og þeir selji SFX.

Að auki leysti ég CSS vandann frá í gær með trikki sem Már notar, sem felur bakgrunnsmyndina fyrir þá hluta vefsins sem nota sér bakgrunn (grárri) og notar í staðinn bakgrunnslit.

Þannig að núna er óháð handboltasíða fyrir Víking orðin flott. Sér í lagi í Opera og Firefox. Ég á ekki Safari af augljósum ástæðum.

Ég er sumsé aðeins keikari en í gærkvöld. Það gæti verið breytt aftur kl. 20:50 í kvöld.

(viðbót)

Að lokum er rétt að minnast Brian Clough. Besti enski framkvæmdastjórinn ever. Já, betri en Shankly, og Sir Matt, Sir Alex, Paisley og Stein voru Skotar. Snarklikkaður og of blautur undir lok ferilsins en samt. Ég var alltaf svag fyrir Forest sem liði nr 2, valdi þá sem 2. deildar liðið mitt ’77. Vona að þeir komi upp einhvern tímann. Ég fyrirgaf dómaranum aldrei fyrir að reka ekki Gazza útaf þegar hann var borinn útaf í bikarúrslitunum ’91. Einum fleiri hefði Forest skaffað það eina sem Cloughie fékk aldrei, bikarinn.

fallnir

Posted September 19th, 2004. Filed under Uncategorized

Ég hata Fram.

Það þýðir ekkert að segja mér að þetta sé okkur að kenna, að við höfum ekki staðið okkur, að það hafi verið lélegt að fá á okkur þriðja markið í Grindavík.

Það má svosem vel vera.

En að lið í fallbaráttu tapi 6-1 í síðustu umferð og hangi uppi, það er ógeðslegt.

Ég hata Fram samt ekki jafn mikið og Val og ekki nærri eins mikið og KR.

eg-%c3%beoli-ekki-ie

Posted September 19th, 2004. Filed under Uncategorized

Ég hef verið að fikta í vefsíðugerð undanfarið og veit að með CSS er hægt að gera ýmsa sniðuga hluti með bakgrunnsmyndir, líkt og Bjarni Rúnar er að gera með nýja útlitinu sínu.

En málið er að IE6/Win er ofboðslega þroskaheftur þegar kemur að réttri meðhöndlun á þessu þannig að ég get ekki leyft mér að gera það sem mig langaði til.

Þetta er það sem langaði til að gera og kemur rétt í Opera eða Firefox (allir að nota það)

…en þetta er það sem kemur út í IE

Boo! Hiss”

helgin

Posted September 13th, 2004. Filed under Uncategorized

Helgin helgaðist mjög af atburðum föstudagskvöldsins. Rúmlega 11 tíma svefn síðustu nótt rak samt endapunktinn á það. Er sumsé hress í dag.

I’m too old for this shit… eitt glas á kvöldi er líklega minn skammtur.

Og nú tölum við ekki um fótbolta í einhvern tíma.

heimili%c3%b0-endurheimt

Posted September 10th, 2004. Filed under Uncategorized

… útlendingar farnir, og partý í kvöld.

úje.

heimsokn

Posted September 9th, 2004. Filed under Uncategorized

Er með enska vini í heimsókn sem eru á heimleið frá Bandaríkjunum. Lóðsaði þau um Reykjavík í gær, datt ekki í hug að fara út fyrir bæjarmörkin, enda lítið fútt í að rúnta um Hvalfjörðinn og segja ef það væri ekki svona mikil þoka og rigning og þið sæjuð út fyrir vegarkantinn, þá væri hér frábær fjallasýn.

Nema hvað, skruppum á Þjóðminjasafnið og mér fannst þetta bara nokkuð flott. Ánægður með minjagripabúðina, hárrétt jafnvægi upplýsingar og ‘tacky’.

Sendi þau Gullna hringinn á eftir og fer sjálfur í vinnuna.