12
Kom mér loksins í ítölskutíma. Var alveg út á þekju til að byrja með og vonlaus í að koma út úr mér heilli setningu, en þetta kom nú frekar fljótt. Held ég eigi eftir að læra heilmikið. Ekkert *nýtt* en heilmikið sem ég hef séð áður og gleymt. Gott mál.
Í öðrum fréttum: Skrifa undir kaupsamning… eða ölluheldur sölusamning á morgun. Nema eitthvað katastrófalt gerist. Vonum hið besta.
Það verður gott að eiga bara eina fasteign.

Á núna bara eina fasteign.
til hamingju!
sástu nokkuð manninn minn þegar þú varst að koma í tölskuna? hann man vel eftir þér frá því fyrir austan, þó hann sé eilítið eldri – hrmmm, var það ekki yngri 😉 er frá Odda!
Hann man eftir mér… og þú spyrð hvort ég hafi séð hann 😀
Reyndar virkar linkurinn ekki.
Ég man annars varla eftir nokkrum að austan, held það sé efni í smá bloggfærslu.
æi, dmn! þarf að skoða þetta með linkinn
spurning hvort þú þarft að vera á vinalistanum mínum hjá flickr til að sjá! spurning um að senda myndina bara í pósti.
en núna?
Oops! Looks like you followed a bad link. If you think this is a problem with Flickr, please tell us.
Not a sausage…
nei, greinilega ekki! ekkert smá skrítið, ég lími inn hlekkinn en þegar ég klikka á hann, detta út síðustu 12 stafirnir. það er sko @ merki í hlekknum öllum, kannski er það vandamálið!
hér er hlekkurinn allur:
http://flickr.com/photos/48889043952@N01/756811/
Aaaah. lá að.
Nei, kveikir engum bjöllum. Hins vegar rámar mig í að Sigurður nokkur sem var verkstjóri minn í skógræktinni (Rvk) ’84 hafi verið frá Odda. Og einhvern veginn er mitt slæma minni að kveikja á því að Jón sé ekki ólíkur téðum Sigurði.
nei, hann er bráðlíkur Stefáni pabba sínum sem var prestur í Odda 🙂
Já auðvitað…
manstu eftir honum?
Stefáni? Svona eiginlega meira af afspurn, sumsé man eftir honum af því að nafnið kom upp af og til fréttum og soleis að austan. Þá límist það aðeins inn að maður hafi séð hann.