HM nálgast óðfluga og ætli sé þá ekki rétt að vekja þetta blogg aðeins úr dvala?
Síðast setti ég upp sér blogg (sem ég flutti reyndar inn í þetta þegar ég flutti af blogspot) en ætli það sé ekki óþarfi núna, þetta verður HM blogg á meðan á keppninni stendur.
Annars svolítið leiðinlegt að bloggfall skuli hafa orðið hjá mér. Nú fær maður útrás á facebook og twitter, en það er varla hægt að fletta upp í fortíðinni þar. Það eru reyndar mun fleiri sem lesa það sem þar segir heldur en nokkurn tíma lásu bloggið mitt.
Annars er allt gott af mér svona fyrir þá sem ekki vita, færslan mín frá 26. október 2008 á ágætlega við að hluta, þó að vissulega sé ekki ‘allt nýtt’ því ég er núna bráðum búinn að vinna í ár á sömu hæð og ég vann frá 2000-2004. Fyrirtækið að vísu annað, og starfið öðruvísi og ég sit inni í herbergi en ekki frammi á gólfi.
It’s all good.
Verð nú bara að biðjast afsökunar á síðustu færslu, hversu mikið bull var þetta. Portúgalir voru þeir sem voru með slaka vörn, arfaslakan markmann og bitlausa sókn. En núna getur Ronaldo a.m.k. ákveðið sig hvar hann vill spila næsta vetur.
Ég er á móti því að kalla það svo að alvaran hefjist ekki fyrr en í fjórðungsúrslitum enda hafa verið úrslitaleikir síðustu fjóra daga í lokaumferðunum, en það er samt svo að nú fer hjartað að slá hraða.
Nú eru það Portúgalir sem munu þurfa að nota allan sinn hraða og spil til að vinna á Þjóðverjum. Þjóðverjar hafa oft verið með betra lið og nú held ég að veilur í sókn, vörn og markvörslu eigi eftir að segja til sín. Þetta verður samt ekki meira en eitt-núll fyrir Portúgal.
Til hamingju með daginn!
Hefur verið betra veður á 17. júní? Þori varla, nenni varla í mannmergðina sem verður í bænum, það er komið nægilega mikið af pallsklæðningunni til að ég get setið úti og sólað mig. Held að ég nýti það bara.
Í kvöld eru síðan viðeigandi stórleikir, nenni varla að bera stóra hlunkinn upp úr svefnherberginu til að geta ekki séð báða… og þó. Holland tekur þetta og Ítalía flýtur með.
Að lokum er rétt að benda á að þetta er hið Eina Sanna Bjarnarblogg. Annað er bara píp
Skrópaði að spá í gær, ætlaði að endurskoða spána sem ég gerði fyrir keppni m.t.t. úrslita til þessa, en kom mér ekki að því, enda í útréttingum og missti svo af Tékklandi – Portúgal. Það er ekki hægt að segja að Sviss hafi verið sérlega óheppið í gær að tapa, hefði svo sem alveg getað farið betur, en liðið er ekki betra en þetta. Held að Tékkar taki Tyrki og komist áfram, þannig að riðillinn fari alveg eins og ég spáði.
Í kvöld detta hinir gestgjafarnir út, ætla samt að endurskoða þrjúnúll sigur Póllands niður í eitt núll, jafnvel gæti þetta orðið jafntefli, en það nægir hvorugum, a.m.k. ekki þegar upp er staðið. Síðan vinna Þjóðverjar verkamannasigur á Króötum, eitt núll líka.
Er annars einhver hissa á því núna að Scolari hafi ráðlagt Ronaldo að fara til Real? Upp komast svik um síðir og Ronaldo sér vonandi ráðleggingar Stóra Phil sem það sem þær eru, tilraun til að losna við hann úr ensku.
Annars er allt að ganga vel í stóra pallamálinu, var reyndar kannske aðeins of bjartsýnn um tíma, en þetta er allt að koma. Myndirnar eru á facebook, hendi einhverju inn á undo myndasíðurnar fljótlega.
Seinn til í dag, ekki fór alveg eins og ég spáði, Rússar aðeins sprækari þannig að 3-0 spáin var röng. Núna hins vegar eru Svíar að reka 2-0 spá mína fyrir Grikki öfuga ofan í kokið á mér. Ég kvarta ekkert undan því.
…plantar Podolski tveimur. Ekki ósanngjarnt, ekkert framúrskarandi, bara þýsk seigla, og slök pólsk vörn. Hlakka ekkert ofboðslega til að sjá Þýskaland – Króatíu.
Var tilbúinn í gær að biðjast afsökunar á að spá svona mörgum mörkum, aftur, en Portúgalir náðu að bæta við þannig að ekki var ég of langt frá. Samt ekki nógu sannfærandi. Hrikalegt að sjá tæklinguna á Nani undir lokin, hreint rautt spjald, en ég var alveg með á hreinu þegar hann var að veltast þarna að lokin. Það var ekki fyrr en í endursýningunni að groddaskapurinn sást. Portúgalir fá ekki neitt gefins í þessari keppni, það er svona að hafa verið að hrópa ‘Úlfur, úlfur’ í mörg ár.
Spá dagsins:
Austurríki – Króatía 0-2
Þýskaland – Pólland 1-0
Annars er ég of slappur til að hjálpa til í pallasmíðinni í dag, það gengur bara vel. Ekkert verra að slappa aðeins af eina helgi. Planet Earth hjálpar til, þvílík fegurð.
Það getur verið að aðeins hafi munað einu marki á minni spá og úrslitunum (átti að muna að það er aldrei skorað meira en mark per lið í opnunarleik) en ég var órafjarri því að spá rétt. Sviss getur að réttu verið dauðsvekktir, áttu seinni hálfleik alveg þrátt fyrir að hafa misst Frei útaf. Held að Portúgalir hafi þá, en Tyrkland – Sviss gæti orðið fróðlegt. Á móti kemur að Tékkland hefur besta markmann í heimi, en ekki mikið meira, gætu átt erfitt það sem eftir er.
Björninn verður að skríða úr hýði til að tjá sig aðeins um Evrópumótið. Þetta er að mörgu leyti stórspennandi mót. Engir Englendingar þannig við erum laus við endalausan sleikjuskap við þann leiðindabolta í sjónvarpsmönnum. Stóru löndin eru öll með lið sem hafa einhvers konar veikleika en gætu jafnfram öll smollið saman og rúllað upp mótinu með stórleik. Spurningin er þá bara hvort að það er möguleikinn á öðru Grikklandsævintýri frá smærra liði.
En samt verður nú að spá fyrir þetta og mín spá er eftirfarandi:
1. Ítalía
2. Portúgal
3-4: Spánn og Þýskaland.
Leikirnir á eftir:
Sviss – Tékkland 0-2
Portúgal – Tyrkland 3-1
Held kannske áfram að henda inn leikjaspánni, en áskil mér rétt að breyta eftir fyrstu umferð frá þeirri spá einstakra leikja sem ég er búinn að gera núna
Annars eru Derby veðreiðarnar að byrja núna, horfi frekar á þær en niðurlægingu Svarthötta gegn Englendingum.
Ekki hafði ég mörg orð fyrsta leikinn, tap gegn Selfossi var óþarfi, missa mann útaf í algerri vitleysu og tapa niður unnum leik. Rétt þó að minnast á að þetta var fyrsti leikur sem systkinin úr Logalandinu koma á.
Þetta var betra í dag. KA tekið á hraðanum í fyrri hálfleik, 2 mörk á 1 mínútu og síðan maður rekinn útaf sem ég sá ekki hvað var, strax í upphafi seinni hálfleiks. Það var samt eins gott að Høyer setti eitt beint úr horni, því KA sótti og sótti undir lokin án þess að hafa erindi sem erfið. Góð þrjú stig í hús, en enn þarf að bæta í.
Á morgun verður síðan brotið undan svölunum hjá mér… komst að því að þar er allt vel sprungið og gott ef ekki hálflaust. Ekki seinna vænna að byrja niðurbrotið enda verður garðurinn fjarlægður í vikunni. Allt að gerast í G22
Eins og ætið á vorin, þá taka leiktíðirnar við hvor af annarri.
Fyrsti leikur Víkings í fyrstu deild hefst eftir 40 mínútur. Liðinu er spáð góðu gengi í sumar, vonandi að það gangi eftir, en gamlir stresshausar eins og ég eru alltaf svolítið svartsýnir, a.m.k. áður en vitað er hvernig liðið stendur sig í alvöru leikjum.
Það ætti þó alla vega að vera betra sumar í ár en fyrra hvað eitt varðar, ég sá nefnilega ekki einn einasta sigurleik Víkings í fyrra, þeir voru fáir og ég missti af þeim öllum.
Morguninn eftir meistaratitil er sætur. 10 titlar fyrir Sörinn og Ryan, og Scholes með átta ef mér skjátlast ekki og þar með búinn að jafna Hansen og Neal. Sætt að okkar titlahæstu menn eru sóknarsnillingar en hjá Liverpool eru það varnarmenn… segir svolítið, kannske.
Þegar litið er fjögur ár aftur í tímann byrjuðum við tímabilið með leik á móti Chelsea sem tapaðist naumlega, 0-1. Miðjan þann dag var Fortune, Miller, Djemba-Djemba og Giggs. Scholes og Alan Smith voru frammi og Keane í vörninni ásamt O’Shea, Silvestre og Gary Neville. Tim Howard var í markinu. Saha og van Nistelrooy voru meiddir og bekkurinn var Ricardo, Phil Neville, Bellion, Richardson og Forlan.
Það er fátt sem sýnir jafn vel hversu stórfenglegt uppbyggingarstarf hefur verið unnið síðan. Af þessum eru Giggs og Scholes enn í fremstu röð, O’Shea varamaður, Silvestre og Che Neville spila ekkert vegna meiðsla þetta árið og Saha er bara Saha. Aðrir eru farnir.
Ronaldo var kominn en spilaði ekki þennan leik og nokkrum vikum síðar var Rooney keyptur. Það tók tvö Chelsea sigurtímabil til að brjótast út úr púpunni og fjórða stórlið SAF er orðið raunin. Núna þarf bara smiðshöggið, sigur í Moskvu.
En hvað sem hver segir, þegar ég verð beðinn um besta byrjunarliðið sem sent hefur verið út á völlinn til að sigra og spila ‘the United way’ er enn langt í að þeir Schmeichel, Parker, Irwin, Bruce, Pallister, Keane, Ince, Kansjelskís, Giggs, Cantona og Hughes missi heiðursæti sitt í mínum huga.
Alltaf einhvern veginn svo að ef ég trassa í 2-3 daga að skrifa um eitthvað sem gerðist, þá endar það svo að ekkert er skrifað.
En síðasta helgi var hreinlega of skemmtileg til að hún sleppi við að vera fest á blogg. Hún byrjaði á stórfínu vinnupartíi upp við Elliðavatn á miðvikudegi. Partíið var síðan ekki verra fyrir það að Liverpoolarar voru ekki frá sér af gleði allt kvöldið, en þeir voru samt ekkert að skemmta sér neitt minna fyrir vikið. Ég tók skynsama ákvörðun, var á bíl og var því ferskur sem fjóla daginn eftir, 1. maí, og brá mér í Víkina til að taka þátt í árlegri fjölskylduhátíð, sem í þetta sinn var viku fseinna en venjulega og var byrjunin á þriggja daga afmælishátíð. Afmælissýningin sem ég tók smá þátt í að setja upp var opnun og er hún sérlega flott, allir hvattir til að sækja hana, opin næstu 2 mánuði í kjallara Víkurinnar.
Á föstudaginn var síðan afmæliskvöldverðurinn. 500 Víkingar fylltu aðalsal Hilton Nordica og skemmtu sér stórkostlega. Þetta verður til að setja aukinn kraft í félagslíf Víkings því Víkingar finna hvað er gaman þegar við komum saman.
Aftur var ég á bíl og kom sér vel því laugardagurinn var langur, hófst með United sigri á West Ham, síðan enn og aftur í Víkina þar sem haldinn var hátíðafundur þar sem megindagskráin var heiðrun alla þeirra mörgu Víkinga sem hafa unnið óeigingjarnt starf fyrir félagið. Ég hef sum af þeim grunuð að vera að vinna með fleiri stundir í sólarhringnum en við hin, slík er eljusemin.
Frá Víkinni var haldið beint í partí ársins. 20 ára stúdentsafmælið var tekið með trukki og dýfu, flott forpartí og æðisleg veisla í Viðey. Stuðið var sem aldrei fyrr og árin, sem þó íþyngja fæstum, hrundu í burt og það var tjúttað fram á nótt. Ég veit að það var ekki nokkur þarna sem ekki skemmti sér stórkostlega.
Eftir stuttan rúnt í miðbænum hélt heim, þreyttur og glaður.
Bónus helgarinnar var að með sigri í umspili komst FC United of Manchester enn upp um deild. Nú fer þetta væntanlega að verða erfiðara. Hinn FC bloggari Íslands er nú þegar búin að minnast á þennan sigur, en því miður fyrir hana og aðra stuðningsmenn Halifaxhrepps lítur út fyrir að greiðslustöðvunin sé einungis stoppistöð á leið í gjaldþrot og að lið sem fyrrum var ástsælt á Íslandi muni brátt heyra sögunni til.
En brátt verður kominn tími til að gleyma kröggum neðrideildarliða í bili og horfa á ríku liðin og vona að United standi uppi sem meistarar eftir tæpa fjóra tíma!
Follow, follow, follow
Cos United are going to Moscow
There’ll be thousands of Reds
and they’ll be pissed off their heads
Cos United are going to Moscow
Níu ár eru langur tími. Vill einhver redda mér ferð?
Ég er viðurstyggilega stressaður. 50 mínútur í leik.
En ég er nýklipptur, með ný blöð og 2 bækur keyptar á frábæru verði í Nexus, og búinn að leggja plön að því að láta keyra garðinn minn á haugana.
Eftir þennan ömurlega leik minna mann í gær og sanngjörn, en blóðug úrslit hef ég ekki einu sinni fengið mig til að lesa um hann í blöðunum og set strik undir hann hér með.
His vegar endaði FC United of Manchester í öðru sæti í sinni deild og er komið í umspil um sæti í 7. deild (Unibond Premier League). Um tíma leit út fyrir að liðið næði ekki umspilssæti en hlutirnir breytast skjótt og eftir sigur Woodley Sports á Bradford Park Avenue fyrir 10 dögum var meira að segja möguleiki á ná efsta sætinu af þessu sögufræga Bradford liði. Woodley Sports var einmitt liðið sem ég sá FCUM gera jafntefli við í haust. En Woodley voru ekki búnir, FCUM gerði jafntefli við þá á miðvikudag og þrátt fyrir sigur í gær var BPA stigi á undan þegar upp var staðið. Woodley endaði hins vegar í næst neðsta sæti.
Undanúrslitaleikurinn verður á miðvikudag og úrslitaleikurinn á laugardag.
Handknattleiksmenn Víkings færðu félaginu frábæra gjöf í gær og tryggðu sæti okkar í efstu deild næsta vetur. Ekki síðri gjöf var fjölmennið sem var vil leikinn þó að ekki næði ég að vera þar á meðal.
Síðan heldur íþróttaspennan áfram, eftir 45 mínútur reynir United að tryggja sér meistaratitilinn með því að verða fyrsta liðið í nær fjögur ár að vinna á Stamford Bridge. Best að vera ekkert of bjartsýnn fyrir það!
Það hefur löngum verið greið leið fyrir kuklara að fá heilsíður fyrir fúsk sitt birtar í fríblöðunum tveimur, en nú hafa 24 stundir slegið öll met:
“Í meðferð sinni leggur Agniezka áherslu á breytt mataræði þar sem sneitt er hjá prótínum, fitu og kolvetni”. 24 stundir, 24.apríl 2008, bls 50
Mér fallast hendur og mig skortir orð. Ljóst er að blaðamaðurinn Einar Jónsson er yfirgengilega fáfróður, hvort sem hann étur þetta beint upp eftir kuklaranum eða þetta er einhvers konar þýðingarvilla. Þar af leiðandi er allt sem svona ‘blaðamaður’ skrifar dautt og ómerkt.
Það breytir síðan í sjálfu sér litlu um læknismenntaðan kuklarann hvort þetta er rétt eftir haft eða ekki, allt annað sem hún segir dæmir sig sjálft og þetta er bara dropinn sem fyllir mælinn.
Annars var gærkvöldið ágætt, eyddi því í slíkum prýðisfélagsskap að það skipti litlu þó Barcelona – United leikurinn hefði verið næsta dapur.
Gleðilegt sumar!
