3

ma-eg-vera-memm

Posted April 22nd, 2008. Filed under fótbolti íþróttir

Um daginn minntist frægasti Frambloggarinn á gamlan söng Frammara um að Víkingar væru félag stofnað af pjökkum sem hefðu ekki fengið að vera með þegar Fram var stofnað. Ég fæ ekki alveg séð hvers vegna það, þó alveg rétt væri, ætti að vera Fram til framdráttar. Ef eitthvað er, sýnir það dugnað og kraft yngri piltanna sem stofnuðu félag sem nú hefur lifað í heila öld, þó upphaflega væru þeir ekki taldir félagstækir. Og sýnir um leið skammsýni stofnanda Fram, sem þarna misstu af góðum félagsmönnum.
Það var enda ekki í síðasta skipti sem Framarar brenndu sig á því að vilja ekki góða menn, og er þar skemmtilegast að nefna síðasta Íslandsmeistaratitil Víkinga í knattspyrnu karla, sem er jú styttra í en síðasta Íslandsmeistaratitil Framara.
Það er þess vegna alltaf betra að leyfa sem flestum að vera með, það er aldrei að vita hvað úr verður.

3 Responses so far

  1. SBR says:

    Svona hættu þessu blaðri maður og settu brúðkaupsmyndirnar inn! Tveir frændu þínir ganga í það heilaga erlendis og enn snuðar þú vini og ættingja um myndir!
    Hafðu það annars gott frændi.

  2. Stefán says:

    Við getum vel unað ykkur meistaratitilsins 1991 og finnst við raunar eiga talsvert í honum.
    En hvernig er það annars með ykkur Víkinga:
    i) Hver er að skrifa sögu félagsins – mér skilst að sú vinna sé í gangi.
    og
    ii) Hvað er til af elstu fundargerðarbókum félagsins? Og hvar væri hægt að komast í þær fyrir áhugasama sagnfræðinga?

  3. (i) Þetta heyrði ég síðast á mánudag en er búinn að steingleyma, skal komast að því
    (ii) Veit ekki, en ef ég þekki rétt til míns annars ágæta félags gæti verið að það væri minna en gott væri. Aftur, skal komast að því

Leave a Comment