3
Hringadróttinsmaraþonið tókst vel í gær, allt í allt tók þetta frá 8.30 til 10.45. Reyndar með tæpra tveggja tíma pásu í eftirmiddaginn, þannig að 12 tíma planið er nokkuð sólíd.
Hermdi eftir Einari, náði í þær bækur sem ég á ólesnar sem ég tel líklegt að ég lesi. Er búinn að byrja á þessum flestum.
Mest er þetta SF, það er eins og það sé smá þreyta í mér gagnvart þeim núna. En allavega, eigum við ekki að klára eins og helminginn af þessu um páskana? Það væri fínt. En ég þarf líka að horfa á bolta og reyna að læra að spila tölvuleiki í nýja Xboxinu sem ég gaf sjálfum mér í afmælisgjöf.

Var þetta allar 3 myndirnar í röð, extended edition? Við gerðum þetta í fyrra. Tók 13 tíma. Snilld.
Noh! Verður maður ekki að afreka þetta áður en USA koma og sprengja okkur í loft upp?
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1263640
Jón Lárus: Auðvitað
Birna: Endilega, og það má engan tíma missa, við gætum verið bombuð any day now.