6
Segir það ekki allt um þetta sker að í febrúar get ég vart um annað hugsað en sumarfríið mitt?
Tvær vikur í Grikklandi og svo ein óákveðin, líklega smá flakk um Balkanskagann. Á einhver ráðleggingar um það síðarnefnda?
Segir það ekki allt um þetta sker að í febrúar get ég vart um annað hugsað en sumarfríið mitt?
Tvær vikur í Grikklandi og svo ein óákveðin, líklega smá flakk um Balkanskagann. Á einhver ráðleggingar um það síðarnefnda?
Hvað með Bagdad ? Hef heyrt að menn úr kaupsýslunni séu heitur fengur þar. Gott að vera “Heitur”. Annars mæli ég með Kuala Lumpur, hreint út sagt frábær borg.
Kveðja
GNOR
GNOR virðist ekki fróð/ur um heimsmál eða landafræði. Balkanskagi er laus við stríð, þó vissulega séu hlutar hans (halló Kosovo) ekki friðsælustu bæir heims.
Kúala Lúmpúr er einnig nokkuð fjarri Balkanskaga og liggur ekki vel við skreppi frá Grikklandi.
Að öðru leyti fagna ég öllum nýjum orðbelgleggjendum og þakka ráð, þó vissulega brenni af forvitni að vita hvort ég þekki GNOR.
Það vill svo skemmtilega til að ég er einmitt afar fróður, bæði um heimsmálin og reynar landafræði líka 🙂 En það sem háir mér er það að stundum les ég alltof hratt og skrifa enn hraðar þannig að ég biðst forláts að hafa hlaupið á mig í kommentinu hér að ofan. Ég semsagt tók ekki eftir því að þú varst að biðja um ráðleggingar um ferðalag á Balkanskaganum… og ætlaði að vera “Fyndinn” og setti þessvegna inn ofannefnt komment… en Singapore Airlines fljúga frá Aþenu til Kuala Lumpur svo það er hægur vandi að skreppa þangað 🙂
Hvernig við þekkjumst svo… varla neitt í dag en spjölluðum oft í “denn”
Kveðja
GNOR
Aha!
Þá held ég skiljist brandarinn og líka hvers vegna hann fór fyrir ofan garð og neðan.
Nú verð ég auðvitað enn forvitnari hver hinn dularfulli GNOR er, en sýnist ég ekki fá svör hér. Það verður þá svo að vera.
Kembdi skagann að einhverju leiti fyrir tveimur árum. Dubrovnic er sennilega það sem flestir nefna fyrst þó hún sé ansi dýr og ferðamannasinnuð miðað við aðra staði á skaganum. Hjá mér stóðu eiginlega Prizren og Rugova í Kosovo upp úr. Skemmti mér þó best í Budva í Svartfjallalandi en það var sennilega meira samferðafólkinu að þakka. Svo er Skopje svo sem allt í lagi. Er ekki bara málið að spyrja Milos að þessu?
Ég fór nú á Istríu skagann fyrir nokkru og mæli ekkert sérstaklega með honum. Hinsvegar er Slóvenía frábært land sem að allir ættu að kíkja á við fyrsta tækifæri. Allir staðir í Slóveníu skemmtilegir en auk þess er það lítið land og mjög fljótlegt að komast á milli bæja og borga.