2
Ég hef ekkert að segja. Held bara út minn bíafrakúr og mæti næstum daglega í ræktina. Djös rugl. Endorfín er gott dóp. Í kvöld verð ég að reyna að mæta í ítölsku og vaka vel framyfir venjulegan háttatíma. Hef nátt’lega ekkert lært heima.
Er búinn að lesa nýja Pratchettinn (‘Thud!’) og kláraði doðrantinn Jonathan Strange & Mr. Norrell (eitt sem ég hef gaman að, ég handskrifa ampersand alltaf eins og et, ekki eins og hann er í flestum fontum, nördismi…). Núna er ég að reyna að lesa System of the World. Það gengur hægt.
Ég sór þess eið að falla ekki fyrir súdókú. Je. Ræt. Og nú er Mogginn kominn með alvöru stigsmunsgátur. Best að fara að reyna við þá erfiðu…

ég er hætt að nenna neinu nema Hard, er með fínt tölvuforrit með sudokum.
Er Thud! góð?
jájá… náttlega engir brandarar lengur, en soltið skemmtileg. Mjög lík Jingo en betri