8

ver%c3%b0i-%c3%beeim-a%c3%b0-%c3%bevi

Posted November 3rd, 2004. Filed under Uncategorized

Bandaríkjamenn geta búið sig undir herskyldu, sífellt mannfall í Írak næstu fjögur árin, afnám persónufrelsis, nauðgun Alaskaverndarsvæðisins, skattaívilnanir ríkra, aukinn fjárlagahalla, veikari dollar, veikara hagkerfi, alræði ofsatrúarmanna, áframhaldandi réttinaleysi samkynhneigðra og annara sem eru óhreinir samkvæmt biblíunni.

Verði þeim að því.

Fyrir þá sem láta sig dreyma um Hillary ’08, þá eru jafnmiklar líkur á því og Bill verði kosinn ’08. Ain’t gonna happen. Það verður blökkumaður í Hvíta húsinu (Obama?) mörgum áratugum áður en góða og grandvara fólkið í geðveiku ríkjunum kýs konu.

8 Responses so far

  1. Hildigunnur says:

    verði þeim aððí! Verst að fíflið bitnar á afganginum af heiminum líka!

  2. Það er svona. Reyndar held ég að stjórn þeirra verði þannig næstu 4 árin að backlashið verði verulegt.
    Svo fremi sem það sé boðlegur kandídat hjá Demmum.

  3. Gleymdi einu því versta. Bush fær að skipa fjóra hæstaréttardómara að öllum líkindum, og ef ég man rétt þá fara út tveir ‘vinstri’ menn, einn af miðjunni (Day O’Connor), og einn hægri.
    Fellur Roe vs Wade?

  4. hildigunnur says:

    svo er með hann Obama, einhvern veginn held ég að þau góðu og grandvöru eigi eftir að hugsa: Úff, hljómar alveg eins og Osama, hlýtur að vera vondur maður…

  5. Pétur says:

    Get over it 🙂 Ef Kerry hefði náð þessu hefðum við fengið veikari dollara, veikara hagkerfi, meiri verndarstefnu í viðskiptum (verkalýðsfélögin), sama mannfall í Írak, sama ástand í Ísrael (annars hefði NY times aldrei stutt Kerry), aukinn völd lögfræðinga (stærstu fjárframlögin) o.s.frv. Er þetta ekki munurinn á kúk og skít ?

  6. Hildigunnur says:

    nja, ekki er ég nú viss um veikara hagkerfi og dollara! Peningastjórnunin hjá Bush og kó er í algerri köku, það er vitað!
    Óbreytt ástand í Ísrael, pottþétt. Sama mannfall í Írak, sjálfsagt rétt, það er ekkert auðvelt að draga þar í land einntveirogþrír, kæri mig ekki um að ímynda mér hvernig ástandið yrði þar ef allir herir pökkuðu saman og færu heim á morgun. Ekki gott, það er amk víst.
    Veit ekki hvort lögfræðingar geta fengið mikið meiri völd. Hef ekki hugmynd um hvort Kerry og hinir demmarnir myndu vilja meiri verndarstefnu, málið er svo sem ekki að Bush og félagar hafi ekki reynt að setja vernd, sbr stáldæmið, þeir komust bara ekki upp með það í alþjóðaviðskiptum. Kerry ekkert frekar.
    Jújú, Kerry er enginn óskaforseti, en hann er ekki með þessa stríðshauka sem aðalráðgjafa. Það er það versta við Bush…

  7. Ég skal svo sem gefa þér að veikari dollar og veikara hagkerfi er næsta víst hvor sem hefði unnið.
    Verndarstefna: útlönd: sjá Hildigunni, heima: Valdið er of mikið hjá fyrirtækjunum, þarf meira jafnvægi þar, persónuleg skoðun.
    Írak: Kerry hefði átt betri möguleika á því að koma sér þaðan, enda ekki borið ábyrgð á upphafinu.
    Ísrael: Gæti ekki orðið verra en er.
    Aukin? völd? lögfræðinga??
    Eftir stendur:
    Mannréttindi, trúfrelsi,kvenfrelsi, kynhneigðarfrelsi, fóstureyðingafrelsi, stofnfrumurannsóknir og umhverfisvernd, svo eitthvað sé nefnd.
    Ekki segja mér Pétur að þú samsamir þér með þeim sem segja að Moral Issues (þeas “Ef hommar geta gift sig þá mega þeir örugglega bráðum Nauðga Mér!” og “Engar Fóstureyðingar, Engar Stofnfrumur” gengið). Það er nefnilega undirstaðan forsetastóls Bandaríkjanna í dag.

Leave a Comment