7

sumar

Posted July 17th, 2004. Filed under Uncategorized

Smá hvíld frá að liggja útí garði… var að klára nýjustu Patriciu Cornwell bókina og þarf að skipta um bók. Cornwell ætla ég að afsaka með að ég var niðri í bæ á fimmtudag eftir ágætis kokteil í tilefni hæstaréttarlögmannsréttinda Guðjóns Ólafs Jónssonar, og datt í hug að fá mér smá froðu. Það voru mistök, ég get ekki mælt með Blow Fly, ekki einusinni spennandi.

Annars fátt að tjá sig um. Skrapp utar í götuna í gær og leysti ein tvö tölvumál ‘litlu’ frænkna minna og hlaut að launum grillað Bratwurst, yummy hvítvínsglas og Robert Johnson diskinn að láni. Tær snilld, sannur blús.

Virðist hressari. Hugsa að það sé líklega ofskynjun.

7 Responses so far

  1. hildigunnur says:

    cornwell er alveg búin á því, gott að vita að maður þarf ekki að kaupa þessa 🙁

  2. Nanna says:

    Ég er hætt að nenna að lesa Patriciu Cornwell. Kathy Reichs er mun betri, ennþá allavega, ég er með nýjustu bókina hennar ólesna hér við hliðina á mér og bíð spennt eftir að komast í hana. Vinnan er því miður að tefja fyrir mér …

  3. Reichs er þrusugóð, kannske smá þreyta að dúkka upp í síðustu bókinni sem ég las eftir hana. Cornwell hefur ekki skrifað um orginal karaktera í margar bækur í röð.
    Ég tók Cornwell af því ég þorði ekki að taka Cussler. Þó það væri Dirk Pitt bók. Ég held ég geti ekki afborið Pitt sem föður.

  4. hildigunnur says:

    ég þarf að komast yfir nýjustu reichs bókina. annars á ég bæði faye og jonathan kellerman ólesnar, þannig að kannski ég fari ekki að kaupa reichs strax. reyndar er faye að verða ansi pirrandi í ísraelsaðdáuninni!

  5. Á bara eina Faye, en Jonathan allan. Reyndar fyrir utan það sem ég las á Down Under ferðalaginu og skildi eftir. Nokkrar bækur á farfuglaheimili í Wellington, nokkrar hjá vini mínum í Melbourne og einar 10-15 á hótelinu í Sydney. Þar með talið eina Dick Francis. Því hefði ég aldrei trúað og þar brást stærsta krosstréð.
    Og jújú, auðvitað fór ég með fullt af bókum heim.
    Eiga ekki allir annars allan Rebus??

  6. hildigunnur says:

    ég á held ég allan francis, þó hann sé líka að byrja að verða svolítið þreyttur. faye er ágæt eða hefur verið, hingað til, nema ein bókin, man ekki hvað hún heitir, en eitthvað svona nýaldar galdrakjaftæði. rebus á ég ekki, hef bara lesið eina sem mér fannst ekki nógu góð. kannski verið óheppin, bara. var um einhvern pólitíkus, ég var orðin hundleið á því hvað hann var sekur/saklaus/sekur/saklaus/sekur oft í bókinni.

  7. Rebus er tær snilld.
    Francis var auðvitað orðinn gamall og Mary konan hans veik, en hún átti stóran þátt í bókunum. Hann hætti alveg eftir að hún dó, en skrifaði kannske svona tveim bókum of mikið.

Leave a Comment