Sosum alveg ágætt að mæta aftur til vinnu eftir fínt frí. Alltaf nóg að gera…
Ekki-á-Voldumvej-núna kom, ég mallaði kjúlla í dollusósu (fín Sechzuan) og við horfðum á okkar menn merja Leicester með einu marki, ekki sannfærandi, en þrjú stig telja alltaf.
Pósturinn hefur gert mér lífið leitt. Ég fyllti út flutningstilkynningu fyrir 2 vikum, ekkert gerðist, ég emlaði á postur@postur og kvartaði og var sagt að Vesturbærinn hefði ekki neitt um þetta, fyllti út aftur, og áttaði mig svo á þegar fyrrum nágranni hringdi á miðvikudag að ég hafði ekki fengið neinn póst. Hún hafði tekið úr hólfinu, en í dag komst ég að því að allur póstur á Reynimel var sendur í Giljalandið, EN allur póstur í Giljalandið, þmt. sá áframsendi frá Reynimel var sendur … á Reynimel. Þetta veftilkynninga dæmi ekki að gera sig!
2

Ég hef í tvígang lent í nákvæmlega sama vanda með póstinn sl. 4 ár. Hef meira segja endað í ægilegum kvörtunarbréfaskriftum og hótunum. Því miður gat ég bara ekki hótað að skipta um póstfyrirtæki.
Úff. Gott að heyra að maður er ekki einn… Einu sinni er óheppni, tvisvar kæruleysi, þrisvar lélegt sýstem