4

175

Posted April 11th, 2004. Filed under Uncategorized

Ég vaknaður, páskaeggið í ísskápnum sem og birgðir af Atlanta-kaffeini, páskalambið í ísskápnum á Birkigrundinni, og allt í gúddí. Eftir sosum eins og klukkutíma verður eggið brotið og síðan vaðið í meiri tiltektir. Það er ljóst að ég þarf að kaupa mér bókaskáp. Ég skildi 10 hillna, 150cm breiða kiljuskápinn minn eftir á Reynimelnum þegar ég flutti, skv. ráði gamla trésmiðsins sem er ráðleggjandi nr 1 í þessu öllu. Honum þótti það frekar mikið spýturusl. Sé þó svolítið eftir honum. Þyrfti í raun tvo slíka meðfram öðrum veggnum í bókaherberginu, Billy er eiginlega of djúpur, þó að átta hillur í Billy gefi fína kiljuhæð. Einhvern tímann læt ég sérsmíða bókaskápa í allt húsið.

Er farinn að sjá að ég mun geta fengið af mér að gefa slatta af bókum. Listinn kemur eftir nokkra daga hér, slatti af því eru mis-úreltar hagfræðibækur. Látið hagfræði nördana í lífi ykkar vita svo þeir monitori bloggið. </Plögg>

Þú veist að þú þekkir mig ekki ef þú ert hissa á að ég sé vaknaður kl. 7 á páskadagsmorgun.

4 Responses so far

  1. Þórmundur says:

    Gleðilegt páskaegg og páskalamb!

  2. Björn Friðgeir says:

    Ef þú værir með kommmentakerfi og værir búinn að blogga í dag væri auðvelt að óska ykkur hins sama!
    En það er bara ekki hægt 🙁

  3. Z says:

    Páskakveðjur úr Borgarholti! Er ekki farið að vora í Fossvoginum?
    Z

  4. hildigunnur says:

    neinei, billy er ekkert of djúpur fyrir kiljur, maður bara hefur tvö lög af bókum! það geri ég að minnsta kosti! david eddings á heila hillu, sama með anne mc caffrey, svo eru jonathan kellerman og stephen king á bak við hjá mér ásamt fleirum
    bíð spennt eftir listanum!

Leave a Comment