banna%c3%b0

Posted August 30th, 2006. Filed under Uncategorized

Meistarakort var að hringja. Benti á að ég væri á bannlista í þjóðskrá, og það væri bannað að hringja í mig og að hann ætti að láta yfirmann sinn vita að þeir væru að nota ólöglegan lista. Þetta var eftirfylgni á bréfi, sem auðvitað er líka bannað.
Skyldi yfirmaðurinn frétta þetta?
Skamm!

hrikalegt

Posted August 28th, 2006. Filed under Uncategorized

Það væri ekki hægt að missa sig algerlega í gleði yfir fótboltaúrslitum ef ekki væri til hin hliðin á peningnum.
Sú hlið kom einmitt upp í kvöld. Bikardraumar sukku rækilega í frekar ósanngjörnu 0-4 tapi.
Annars er ekkert að frétta.

561

Posted August 16th, 2006. Filed under Uncategorized

Eins og ég var að segja í gær…
Hvort skyldi blái stöpullinn styttast eða lengjast hjá okkur næstu 20 árin? En í BNA?
Ég veit hvað ég óttast.

barattan-er-rett-a%c3%b0-byrja

Posted August 15th, 2006. Filed under Uncategorized

More than 30% of students in the UK say they believe in creationism and intelligent design.
Heimur versnandi fer.

kubla-khan-nei-olivia-neutron-bomb

Posted August 13th, 2006. Filed under Uncategorized

Xanadu er komið í iTunes hjá mér. Ég lít á það sem afrit af LPlötunni sem ég á hérna einhvers staðar. En ég þori ekki fyrir mitt litla líf að horfa á myndina. Það er örugglega hörmung. En þetta vekur upp nokkrar af örfáum minningum sem ég á úr 12 ára bekk. Ég fílaði Jeff Lynne. Þessi á eftir að rúlla í Hagaskóla partíinu fyrir þann hluta hópsins sem var í Landakoti 🙂

buuuu

Posted August 9th, 2006. Filed under Uncategorized

Þýðandinn á Mogganum í gær hélt því fram að búist yrði við að stuðningsmenn Manchester United púuðu á Ronaldo. Þvílíkur aulaháttur, auðvitað ættaður frá blaðaskítnum úti. Ronaldo fékk fullan stuðning okkar stuðningsmanna í gær, þó að Oxford stuðningsmenn púuðu, og fengju skömm í hattinn frá eigin stjóra. Blöðin í Englandi eru engu lík að grafa upp skít og kasta og hvetja aðra til hins sama.
Flott hjá Cristino, svaraði nákvæmlega eins og á að svara, með tveim flottum mörkum!

ring-ring

Posted August 8th, 2006. Filed under Uncategorized

Gott kvöld. Tókst loksins að drífa mig í að hringja út og er búinn að ná í, eða skipa einhverjum að ná í flest bekkjarsystkinin úr Hagaskóla. Ætla að standa við áragamalt loforð um partí!
Svo er bara að halda saman þessum póstlista og þá verður þetta ekkert mál ef við skyldum vilja partía aftur

moggarosir

Posted August 7th, 2006. Filed under Uncategorized

Snilldarkvöld í gær, dinner hjá Hildigunni og Jóni Lárusi með Arnari og Rakel og börnum. Frábær matur, snilldarvín, og skemmtilegur félagsskapur langt fram á nótt. Og bara hress í morgunsárið. Takk kærlega fyrir mig.
Ég hef aldrei lagt mig mjög eftir að blogga um Moggafjólur, en núna verð ég að vita hvað í ósköpunum

Við höfum fullan skilning á því að það yrði erfitt fyrir Jacques að halda meðfæddri helgun í óvissuástandi.

þýðir.
p.s. Fann þetta á BBC: ‘natural level of commitment’. Ja hér. Var eiginlega að fara að giska að ‘dedication’ hefði komið þarna nálægt, en þetta er brilljant. Auli sem þarna kemur að verki.

hef%c3%b0bundin-helgi

Posted August 6th, 2006. Filed under Uncategorized

Búinn að láta mér detta í alls konar tuð í vikunni, en gleymi því öllu áður en ég nenni að blogga það. Sem er ágætt.
Það er reyndar bara allt þetta fína núna, búinn að fá tvö brúðkaupsboð í vikunni, verður gaman í september, var með félaga minn í gær í einfalt United-grill, tókum tvær rauðvín og röltum svo til vinkonu hans hér í dalnum í kvöldkaffi.
Matarboð í kvöld, hvað skyldi vera í matinn?
Nú ætla ég að skjóta rótum í stól, horfa á formúluna og lesa sögu ítalskrar knattspyrnu (á ensku, því miður)

rikiseinkasalan-gerir-okkur-full

Posted August 3rd, 2006. Filed under Uncategorized

Einn af frjálshyggjupostulum Viðskiptablaðsins fer mikinn og segir að hræðilega ástandið í miðbænum (sem er nú ekkert óvenjuhræðilegt herma nýjustu fréttir frá löggunni) sé vegna þess að skemmtistaðir neyðist til að hafa svo háa álagningu af því að einkasalan sé svo dýr. Og að annars staðar þar sem áfengi er ódýrt drekki menn ekki heima og ástandið sé ekki svona slæmt.
Pilturinn gleymir auðvitað að einkasala og skattlagning ríkis er tvennt ólíkt og aðskilið. Og ef hann heldur að þetta sé allt svona æðislegt erlendis, þá fylgist hann greinilega ekki með fréttum frá Bretlandi.
Ef ástand versnar yfir tímabil þá er ástæðunnar ekki að leita í einhverju sem ekki hefur breyst yfir tímabilið. Er það ekki einfalt að muna?
Annars er greinilega mjög vænlegt til árangurs að fá plögg á Bloggi dauðans, verst að ég gaf mér ekki tíma í færslu þegar flóðið var sem mest til að reyna að halda í nýja gesti.
Það var haldinn sellufundur í gær. Það gæti reynst dýrt, þó í formi fjárfestingar sé. Svo var burrinn hjá lækni í gær. Það verður frekar dýrt. Þá fer hugur manns að reika í átt til þess að stöðva slík fjárútlát með því að eyða ennþá meiri peningum og kaupa nýjan. Rökrétt, ekki satt?

agustgata-bloggara-dau%c3%b0ans

Posted July 31st, 2006. Filed under Uncategorized

Allir hétu þeir Magnús.

arg

Posted July 27th, 2006. Filed under Uncategorized

Arg!
Ömurlegur leikur gegn Blikum og tap.
Arg!
Ruud farinn til Real fyrir skidogingenting.
Arg!
Lítur ekki út fyrir að við kaupum einn einasta leikmann, og þó búnir að fá 22m punda inn í sölum í sumar. Helvítis Glazer fífl. 17 millur fyrir Carrick er geðveiki.
En það er gott vinnudjamm á morgun. Huggum okkur við það

frab%c3%a6rt

Posted July 23rd, 2006. Filed under Uncategorized

Komnir í undanúrslit í bikarnum! Höski Bikar-Lineker sá um það. Það er a.m.k. rúmur áratugur síðan það var síðast, þarf að fletta upp.

gu%c3%b0

Posted July 22nd, 2006. Filed under Uncategorized

Úr viðtali við Eric Cantona í Maxim

Do any current players have your on pitch charisma?
(dead serious) No absolutely not. You’re never going to find someone like me again.

Is that because you can’t compare 90’s football with today?
No its because there’s no one like Eric Cantona and there never will be again.

Would you manage Manchester United even with Glazer in charge?
I won’t rule out anything but I’m not a fan of the American guy taking over the football institution that is Manchester United.

Do you still go and watch Man U sometimes?
Not since Glazer has taken over

Le Dieu. Nú sem fyrr.
Það er einhver Hollendingur að veifa bless til Norður Lundúna í dag. Lundúnska pressan hefur verið duglega að lofa hann í vikunni. Jafnvel þeir hafa held ég ekki vogað sér að planta ‘besti útlendingur sem hefur komið til Englands’ í umfjöllunina. Þeir vita að það er hægt.

gamlir-vinir

Posted July 21st, 2006. Filed under Uncategorized

Fór í gær í jarðarför heiðursmannsins dr Valgarðs Stefánssonar. Dr Valgarður var faðir Lalla æskuvinar míns og fá ef nokkur heimili óvandaðra sem ég hef jafn oft komið á, þó langt sé um liðið síðan síðast. Þarna voru tveir aðrir gamlir vinir úr Landakoti og Hagaskóla og það var gaman, þó tilefnið væri leitt, að ná á mynd okkur fjórum: Mér, Lalla, Sigga Palla og Stebba.

Þó eitthvað séum við eldri en vorum, get ég ekki hugsað mér að setja annað en gömlu gælunöfnin niður, ég er ekkert hættur að vera Bjössi þó eldri sé og sama á við um strákana.
Ég lofaði enn einu sinni bekkjarpartí…

vinna

Posted July 18th, 2006. Filed under Uncategorized

Núna þarf ég að fara í vinnuna, get ekki snúið við á þröskuldinum eins og í gærmorgun. Svaðalega ætlar þetta að vera lengi að rjátlast af manni. Jæja, kannske er það bara allrameinabót að drífa sig niðreftir!

plagan

Posted July 16th, 2006. Filed under Uncategorized

Plágan plagar mig enn. Missti af fertugsafmæli í gær sem ég hefði svo gjarnan viljað fara í, súrt.
Það góða við þetta er samt að það er ömurlegt að vera veikur á sumrin þegar sólin skín og veður er gott. Miklu betra að vera veikur svona síðla haust eins og núna.
Allt að gerast, Ruud að fara, Juve, Roma og Fiorentina niður, ekki Milan þannig að draumar um Gattuso gufa upp. Er Viera? Toni? að koma? Kannske að láni? Slúðurslúðurslúður…

sma-sko%c3%b0un

Posted July 13th, 2006. Filed under Uncategorized

BREYTING kl 16:37 : Búið er að breyta síðunni sem vísað er í hér að neðan og er núverandi texti miklum mun betri og síðunni sæmandi. Bent er á að lönd með óstöðugt stjórnarfar eða lélega efnahagsstjórn eru alla jafna með kauphallir sem hafa óvirkar heimasíður.
Ákveð samt að taka ekki færslun að neðan alveg út.
——-
Hver skyldi vera stjórnmálaskoðun þess starfsmanns Vefmiðlunar ehf sem setti þetta inn á fróðleikssíðu nýja viðskiptavefsins þeirra, m5.is:

Athygli vekur þó að lönd sem lent hafa í stjórnarbyltingum sósíalista undanfarið eru í flestum tilvikum með óvirkar heimasíður enda verðbólga í viðkomandi löndum oft yfir 1000% og verðbréfamarkaður hruninn að mestu. Dæmi um slíkt land er Simbabve.

Ekki það að ég efist um að kauphöll Simbabwe sé óstarfhæf, og vissulega er tenglalistinn á m5langur þannig að safnari tenglanna hefur eflaust tekið eftir ýmsu, en ég er ekki viss um að viðskiptavefur eigi að vera pólitískur í eðli sínu. Ég man reyndar ekki eftir mörgum stjórnarbyltingum sósíalista í heiminum undanfarið, endilega fræðið mig um þær. Myndi heldur ekki telja Simbabve gott dæmi um stjórnarbyltingu. En ég sé allavega ekki hvaða máli þetta skiptir þegar talað er um erlendar kauphallir, væntanlega ekki ofarlega á áhugalista íslenskra fjárfest.
Ætli skríbentinn eigi jafn erfitt með sig þegar hann/hún fjallar um fyrirtæki hvers stjórnendur eru þeim ekki að skapi?
p.s. eitthvað finnst mér líka skrítið, ef þessi mikla vinna við söfnun tengla á erlendar kauphallir fór fram á Íslandi, að síðustu löndin í stafrófsröðinni eru Venesúela, Júgóslavía, Sambía og Simbabwe…
Vefurinn samt flottur að mörgu leyti.
p.p.s. Ah. Mikið ofboðslega er ég hissa. Eftir nokkuð vafr fann ég mynd af ritsjórn m5. Það skyldi þó ekki vera Friðbjörn Orri Ketilsson sem reit ofangreint?
Ligg annars í bælinu þriðja daginn í röð, er þó að koma til .

italia-campioni

Posted July 10th, 2006. Filed under Uncategorized

Frábært í gær. Nenni samt ekki að skrifa um það núna. Er nebblega með kvef og hálsbólgu. Mætti kalla þetta fráhvarfseinkenni. Missi þar af leiðandi af Fylkir – Víkingur í kvöld. Ætlaði að segja hvað það væri ömurlegt að horfa á fótbolta á textavarpinu en mundi þá að þetta er beint á sýn. Jei!
Verður fróðlegt að heyra lýsingu. Síðast þótti Gaupa nauðsynlegt í samantektinni um leikinn upp á Skaga að segja að KR-ingurinn Jökull hefði skorað. Ekki fyrrum KR-ingur, nei… Ljóta vitleysan.

djamm-og-j%c3%a6ja

Posted July 8th, 2006. Filed under Uncategorized

Fínt skrall í gær, Austur-Indía fjelagið er alltaf jafn sólíd. Það kom enn á ný í ljós að það að þekkja muninn á hægri og vinstri er ekki mín sterka hlið. Þar er líklega grunninn að pólitískum viðrinishætti mínum.
Morguninn var tekinn aðeins of snemma, en það er bara eins og það er. Þeim mun fyrr verður maður sem nýsleginn túskildingur.
Frændi minn garðyrkjumaðurinn hefur komið í heimsókn, grafið upp runnabeðið góða við enda garðsins og skipt um mold. Work in progress greinilega, hið besta mál! Var ekki alveg að kveðikja þegar ég sá eitthvað grænt drasl á neðri flötinni, hélt að eitthvað af unga fólkinu í þessu ágæta hverfi hefði verið á ferð að rífa upp plöntur, var ekki fyrr en ég kom út að mér varð litið upp á efri flöt og sá allan uppgröftinn þar. Ég hef aldrei fengið fyrstu verðlaun fyrir að taka vel eftir umhverfi mínu!