*stingur fingrum í eyrun* Lalaalalalalaaa þetta var ekki að gerast þetta var bara slæmur draumur dagurinn í dag er bara plat
Í öðrum fréttum er helst að öll video, DVD og CD diskar eru komin í Fossvoginn, sem og fyrsti skammtur af bókum. Flutningur um næstu helgi.
Hm. Skyldi Liverpool ná að hressa mig aðeins við? Stefnir amk í það.
Einn uppáhaldsbrandarinn kom í hugann þegar ég var að lesa Electrolite, blogg Patrick Nielsen Hayden og póstinn um rimmu Iain Paisley gegn páfanum á Evrópuþinginu, sem endaði með Möggu Thatcher í gólfinu og síðan henti Otto von Hapsburg greifi Paisley út.
Nema hvað…
Otto von Hapsburg greifi var á gangi framhjá herbergi í Evrópusambandsbyggingunni hvar hópur manna var að horfa á fótbolta. Hann stingur inn nefinu og spyr: “Hverjir eru að spila?” Svarið kom: “Austurríki-Ungverjaland” “Nú! Við hverja?”
Páll Ásgeir tjáir sig um hjónabönd samkynhneigðra, af því sprettur þessi færsla.
Það eru nú reyndar þó nokkuð af þokkalega stabílum fleiri-en-tveir samböndum þarna úti. Og ef það er erfitt fyrir samkynhneigð pör að koma fjármálum á hreint, þá er það víst þokkaleg martröð fyrir fleiri-en-tvo að gera erfðamál og allt það sameiginlegt.
Hér er umræða sem spratt af skrifum um illa meðferð últra-mormóna á unglingsstúlkum sem fjölkvæni er neytt upp á og þar sem nokkrir í fjölsamböndum tjá sig. Forvitnilegt.
Ég er nokkuð viss um að það væru ansi fáir “vinahópar” sem gætu hugsað sér “hjónaband”, enda væri slíkt hjónaband með svipuðum reglum og nú er, með skyldum og sköttum, erfðum o.fl.
En sem trúleysingja er mér nokk sama um hvað kirkjan leyfir. Það er vandamál hinna trúuð sem vilja ‘cherrypicka’ úr biblíunni hvað þeim líkar við og hvað ekki. Borgaraleg hjónabönd samkynhneigðra og ættleiðing þeirra eiga hins vegar skilyrðislaust að vera til. Ég er jafnvel til í, þó lögfræðin yrði nokkuð snúin, að leyfa hjónabönd fleiri-en-tveggja, ef um er að ræða “allir giftast öllum og ekki öðrum”
Það væri óskandi ef atburðir helgarinnar í San Fransisco væru ‘Rosa Parks’ moment’ eða annað Stonewall fyrir réttindi samkynhneigðra í BNA, en ég er vægast sagt efins. Það sem ég hef reyndar mestar áhyggjur af er að þetta setji Demókrata út af laginu, verði að kosningamáli og Runninn haldi forsetastólnum í krafti bíblíutrúaðra.
En það má auðvitað ekki snerta við helgi hjónabandsins, enda skilja aldrei nein kristin hjón, né giftast útlendingum gegn gjaldi til að skaffa landvistarleyfi. Því hjónabandið er nefnilega svo heilagt.
Í öðrum réttindamálum má nefna að í Bretlandi eru áform um að fara að kynna húmanisma, trúleysi og guðleysi í trúarkennslu. Þetta er auðvitað besta mál. Það er nauðsynlegt að kenna að siðfræði er ekki innbundin og rígbundin af kristinni trú, við trúleysingjar getum verið besta fólk lika 😉
Nú er kominn nóvember og ég er enn ekki alveg orðinn hress. Já, áður en þú spyrð, þá er ég orðinn þreyttur á þessu. Ef ég verð enn slappur á mánudag ætla ég alvarlega að íhuga veikingafrídag.
Annars er næsta lítið að frétta, nóg að gera í vinnunni og ýmislegt utan hennar hefur þurft að sitja á hakanum. Augnföndrið tókst vel, ég lít eilítið öðruvísi út.
Í gær var vinnufélagi kvaddur sem er á leið í aðra deild. Úr varð ágætis kvöld, ég tók rólega á málum, hálf rauðvín nægði. Og þar sem bæði Nanna og Erlingur ræða um að sofa út er rétt að taka fram að ég svaf til 4. Þ.e.a.s. í morgun. Í þrjá tíma. Ég kann engan veginn að sofa út, telst hátíð að sofa til 8. Enn verra ef ég var í glasi, greinilegt að ekki þarf mikið. Reyndar hjálpaði ekki að ég vaknaði með púls upp á ca. 120. Ég á það til, og já ég er í eftirliti. Eitthvað var ég stressaður því þetta róaðist ekki fyrr en um 90 mín. síðar. Þá var mér lífsómögulegt að sofna aftur. Ég kann það nefnilega ekki heldur. Það gerist fyrir slysni einu sinni eða tvisvar á ári. Síðan dreif ég mig í vinnuna og rumpaði smá mánaðarmótaverkefni af.
Ligg núna hóstandi og hlusta á Söruh McLachlan.
Síðast þegar við hittumst var fyrir tveim vikum þegar slappleiki var að hrjá mig, en ég var enn hamingjusamur yfir að Víkingur komst upp. Skemmst er frá því að segja að ég er búinn að vera veikur síðan þá. Reyndar ekki misst úr nema 2 daga samtals úr vinnu en verið alveg búinn á kvöldin og misst af fimm og hálfum Víkingsleikjum í handboltanum (karla og kvenna). Ekki gott fyrir stjórnarmann. Vonandi verður þessi helgi til þess að ég skríð endanlega saman.
Þetta er þá þriðja helgin í röð sem fer í að liggja. (nema hvað þá fyrstu skrapp ég reyndar tili Keflavíkur…) Næstu helgi verð ég líka næsta rotinborulegur. Augnlokaskurður á föstudag nebblega. Smá föndur…
Ég verð bara að hlakka til nóvember og San Fransisco til að hressa mig við.
Úrvalsdeild Úrvalsdeild Úrvalsdeild Úrvalsdeild
Úrvalsdeild Úrvalsdeild Úrvalsdeiiiiiiild
osfrv þangað til allir eru orðnir hásir. Sjálfur er ég illahaldinn af þessum helv. hósta og á leiðinni í bælið í staðinn fyrir að vera í fögnuðinum. En mikið var þetta indæll dagur
Kominn tími á langa færslu um fótbolta, tónlist og ferðalög. Er búinn að vera hálf lumbrulegur alla vikunna, alla leið síðan á leiknum Víkingur – Breiðablik á mánudagskvöld, en snilldarmark á síðustu mínútunni gerir það að verkum að ferðin í Keflavík á eftir þarf ekki að skila nema jafntefli. Og ég öskraði úr mér röddina á leiknum.
Það er búið að vera meira en nóg að gera í vikunni enda ekki nema 2-3 af fjórum í deildinni í vinnunni vegna brúðkaupsferðalaga, enda gifti helmingur deildarinnar sig í sumar og haust. Ekki hvort öðru þó. Ég er núna að reyna að ná mér nógu vel úr þessum skemmtilega þurra hósta sem hrjáir mig til að komast til Kef, en helst þó ná mér nógu vel til að geta með góðri samvisku fengið mér einn eða tvo. Það nefnilega stefnir í að Víkingar verði í soltlu stuði. Minn ágæti vinnuveitandi og aðalstuðningsaðili ætlar að gefa rútuferðirnar. Húrra fyrir þeim!!
Þetta verður í fyrsta skipti á ævinni sem maður fer svona á útileik með trukki og dýfu. Næstum ensk stemming. Amk ef heilsan heldur.
Talandi um fótbolta, þá var leikurinn gegn Þjóðverjum flottur! Ég er eiginlega á því að það að þurfa sigur úti sé bara mesta snilld. Reyndar með nýjum köllum í brúnni eru minni líkur á undirlægjuhætti og væli um að við getum nú reyndar ekki neitt og eigum bara að stefna á tapa lítið. Nú verður bara að spila grjótharðan bolta, hleypa þýskurum hvergi áfram og læða inn einu í annarri sókninni… Þetta er alveg hægt.
Einn af gríðarmörgum kostum mp3 er auðvitað að búa til spilunarlista uppáhaldslaganna sinna (þarf reyndar að bæta á m3u-ið það nokkrum ný rippuðum lögum) og vita það að öll lög sem detta á handahófskendann hátt inn í eyrun á manni eru á bilinu frábær til stórkostleg (now playing: I Hold Your Hand in Mine. (bókstaflega, sko) Verðlaun fyrir fyrsta rétta svar um flytjandann í comment). Áðan var að rúlla í gegn einhver magnaðasti dúett allrar óperusögunnar. Jussi Björling og Robert Merrill syngja Au Fond du Temple Saint úr Perluköfurunum. Besti tenór allra tíma og einn besti barýtóninn syngja hugsanlega besta dúett í óperu. Þannig var einmitt þegar ég kom til Sydney og þeir áttu miða fyrir á sumaróperuna var það einmitt Perlukafararnir sem ég fór á. Ég verð reyndar að vera sammála að Bizet hafi ekki verið að gera neitt sérstakt þarna, en Au Fond… er held ég bara næg ástæða fyrir að skrifa eitt stykki óperu. Og þegar hlé er í óperuhúsinu í Sydney og maður stendur frammi með glas af Kir Royal í hendi og horfir út um glugga á stærð við fótboltavöll yfir dimma höfnina á ljósin hinu megin… þá er ekki alveg aðalmálið hver óperan er.
Ekki það að við eigum möguleika á morgun og að staðan í riðlinum sé einhverju öðru að þakka en niðurröðun leikja en að sjá þetta á bbc news var svolítið kitlandi:
“Germany travel to leaders Iceland for the first of two games between the sides which will almost certainly decide who wins the group. ”
Spáið í því ef við hefðum unnið og gert jafntefli við Skota ha?
Félagsfundurinn í Víkingi í kvöld var nytsamur þegar allt er á litið. Fram komu mismunandi skoðanir, og ýmsu velt upp sem þurfti að nefna og ræða saman um. Sýnist að vinnan í framhaldinu eigi að skila okkur betri klúbbi.
Ýmsir blogga um San Francisco. Siggi pönk er í heimsókn þar, Erna og Möddi nýkomin þaðan, og Árdís var að elda uppúr kokkabók Daunillu Rósarinnar. Nú er þó nokkuð síðan ég ákvað að heimsækja Daunillu rósina við fyrsta tækifæri, en ég var auðvitað búinn að gleyma að hún væri til. Það er eins gott að það gleymdist ekki, enda er ég á leiðinni til Frisco í nóvember!
Eitt sem ég ætla að reyna að gera er að heimsækja gröf Joshua Norton, fyrsta keisara Bandaríkjanna. Lesendur Sandman þekkja hann.
Ef einhver hefur góð ráð um hvað gera skal í SF eru komment vel þegin.
Ég tek það fram að ég þekki auðvitað ekkert af þessu fólki sem ég tengi á að ofan, en stalka þau bara í gegnum rss molana.
Keypti mér hús í dag, fæ afhent 1. desember (eða fyrr) raðhúsið að Giljalandi 22. Loksins, loksins, kemst ég í Víkingshverfið. 10 mínútna gangur á völlinn. Auðvitað má ekki gleyma því að þetta er eitt veðursælasta hverfi borgarinnar og Fossvogurinn er draumaútivistarsvæði. Það held ég nú. Eins og nærri má geta er ég þokkalega hamingjusamur.
Skelfilegt að gera jafntefli við Stjörnuna í gær. Erum enn í 2. sæti en erfitt verður það. Það er alltíeinu komin stemming í Víkinga á pöllunum! Synd ef við fáum ekki tækifæri til að reyna okkur í efstu deild.
Fór á undan Stjörnuleiknum upp í Austurberg og sá fyrri hálfleikinn í Víkingur-Magdeburg, gaman að sjá fjölda á pöllunum og smá stemmingu, vel uppbyggt mót. Magdeburg var auðvitað að leika á hálfum hraða og með vinstri, en engu að síður, þegar Víkingur breytti stöðunni úr 5-7 í 7-7 og áhorfendur tóku aðeins við sér, þá lyngdi maður augunum aftur rétt sem snöggvast og ímyndaði sér að þetta væri alvöru Evrópuleikur…
Vikan í vinnunni búin að vera soltið hektísk, og ekki laust við að helgin verði það líka. Skírn í dag, barnaafmæli á morgun. Frænka mín varð eins árs, og mér skilst ég verði eini fullorðni gesturinn sem ekki er með barn með mér. Eins gott ég þarf ekki að fá lánað!
Nú er spurning. Þetta sniðmát mitt var ekki alveg að gera sig. Vona að þetta sé rétt
Three points in the bag. Christiano came on with 13 minutes to go and had a fairly quiet match with the occasional flashy move. Good result.
In about three hours + 60 minutes of playing time, at a guess, which makes four and a half hours, Christiano Ronaldo will come on for Manchester United against Newcastle United. *anticipate*
If Iceland fucks up yet again and manages to lose 1-2 to the Faroe Islands, I’ll win 8 bottles of red wine. Match starts in four minutes time.
So, they ask me, what’s going on? And I say nothing, for that is the truth. I work, I read a lot, and I spend too much time on the ‘net. At the expense of watching television. Either way it sure beats the heck out of knitting mittens and socks, as was the traditional evening (albeit mostly in winter) pastime of Icelanders for centuries.
I guess I shall have to look forward to my next holiday. San Fransisco in November. Yay.
Should have gone to see a pre-season handball match this evening. Didn’t. Sue me.
