RSS Feed
Jan 30

Svo íslenskt, svo íslenskt, svo grátlega íslenskt

Posted on Tuesday, January 30, 2007 in handbolti

Íslenska leiðin til að tapa. Ef Alex var ekki 100% Íslendingur fyrir, þá er hann það núna því þetta grátlega ótímabæra skot var íslenskt frá A til Ö.
Ég er farinn í rúmið til að grenja svoldið.

Jan 30

Þróun hvað?

Posted on Tuesday, January 30, 2007 in trú

Í tilefni þess að ég víkkaði meginmálsspaltann til að koma fyrir YouTube vídeóum (þú gætir verið að missa af del.icio.us linkunum mínum hægra megin ef þú ert með mjóan vafursglugga, það er verra, góðir linkar þar) þá er hér fagurt dæmi um uppfræðslugildi kristinnar trúar:

via: Frelsi og franskar og Pharyngula.
Í sama ranni má benda á að mér finnst ankannalegt að sjá Davíð Þór Jónsson lofsama vanþekkingu:

En ef við leggjum okkur fram getur okkur tekist að upplifa léttinn þegar því oki er lyft af okkur að þurfa alltaf að hafa öll svör á reiðum höndum og við getum hvílt sál okkar í trausti á Guð. Þegar okkur tekst að sleppa og treysta. Þegar okkur tekst að láta af og leyfa Guði. Þegar við finnum að við þurfum ekki að gera neitt annað en að hætta að stjórna og vita og skilja og hleypa Guði að.

Hefði haldið að hann væri fróðleiksfús maður.
Að lokum er rétt að benda á Teit Atlason, BA í guðfræði, rífa í sig Vinaleið í Fréttablaðinu í dag.
Prédikun dagsins lokið! Næsta mál á dagskrá er að gera súpu úr Baunum!

Jan 28

Sanngjörn hefnd?

Posted on Sunday, January 28, 2007 in dægurmál

Ég er viss um að allir sem eyddu peningum í að fara í Reiðhöllina líta á þetta sem sanngjarna meðferð:

Og úr sarpinum: Þetta var á fox fyrir nokkru, 100 tímarnir eru liðnir, eru Bandaríkin nokkuð orðin að SF?

Jan 28

Tvennt ólikt

Posted on Sunday, January 28, 2007 in fótbolti

Þau eru ólík liðin í dag, annað risar evrópskrar knattspyrnu, hitt lið í vandræðum.
Já, Forest eru með tvo Evrópubikara í safninu, en Chelsea í veseni þessa dagana. Forest hefur alltaf verið mitt annað lið, frá því ég valdi þá sem mitt lið i 2. deildinni, og velgengi þeirra næstu þrjú árin á eftir voru ansi freistandi, en ég lét þó ekki undan. Af hjátrú er ég ekki í gömlu Forest treyjunni minni.

Jan 28

Roooooooney

Posted on Sunday, January 28, 2007 in fótbolti

Ein vippa og “after all his problems and his lack of form and the criticism that’s come his way, there is the perfect response”.
Nei, ég er ekki að tala um vippuna hans “Venna Rún”(c)2006 Rúnar Haukur í gær. Þetta er það sem þulurinn klykkir út með í lýsingu á einu flottasta marki Le Dieu. Eins og þar segir, “form is temporary, class is permanent”

Jan 26

Platini

Posted on Friday, January 26, 2007 in fótbolti

Mér líst vel á Platini sem forseta UEFA. Það er ágætt að fækka liðum niður í þrjú frá hverju landi í Meistaradeildinni. Og tilvitnunin í hann er fín “It is a game before a product, a sport before a market, a show before a business.”
Sjáum svo til með restina.
Þegar ég hugsa aðeins um það þá er Platini ekki besti leikmaður sem ég hef séð, en samt tengi ég hann meira en flesta ef ekki alla af hinum betri við fagran leik. Frakkland á miðjum níunda áratugnum er einhver flottasti bolti sem hefur sést og Skytturnar fjórar (Giresse, Tigana, Fernandez og Platini) lifa enn í minningunni. Það er vonandi að sami andi svífi nú yfir UEFA vötnunum.

Jan 23

Indælt

Posted on Tuesday, January 23, 2007 in fjölskylda

Fátt er betra en að hitta góða vini sem maður sér of sjaldan. Þorsteinn frændi er á landinu í annað sinn á skömmum tíma og í tilefni þess bauð mamma í hrygg. Þetta var indælt kvöld, og vonandi hittumst við meira á næstu dögum

Jan 18

Sjónvarp næstu árin

Posted on Thursday, January 18, 2007 in sjónvarp

Nú er hægt að hlakka til því gera á stuttseríu úr Diamond Age eftir Stephenson og HBO ætlar að búa til alvöru seríu eftir Song of Ice and Fire eftir George RR Martin, ein þáttaröð per bók.
Ef af verður og ekki eitthvað klúður gæti þetta hvort tveggja orðið alger snilld.

Jan 12

Frábær byrjun

Posted on Friday, January 12, 2007 in veður

Frábær byrjun á helginni, kom að bílnum áðan með sprungið dekk. Hm. Kannske er búið að vera leka síðan í gær. *hóst* ég er ekki góður í eftirtektinni. Jói Möller vinnufélagi minn kom að málinu og hjálpaði verulega til. Það er arfaleiðinlegt að skipta. Gott að hafa footballer til að sparka í felgulykilinn og losa rærnar.
Já, ég skipti ekki um dekk hjálparlaust. So?
Nú er annað hvort að fara í heitt bað núna, eða moka tröppurnar og fara svo í heitt bað. Tröppurnar eru á kafi. Samt mokaði ég í gær.

Jan 9

Græjur

Posted on Tuesday, January 9, 2007 in apple, apple tv, græjur, iphone, ipod

Komið að græjubloggi. Jobs kynnti nýtt dót frá Apple áðan. Síðasta mál á dagskrá var iPhone. Lítur nokkuð vel út, kostar $499 fyrir 4gíg síma og $599 fyrir 8 gíg. Kemur til Evrópu í desember. Þarf ekki að hafa frekari áhyggjur af þessum, enda á ég fínan síma sem spilar mússík án þess ég noti fídusinn og tvo iPodda.
Þar á undan var: Apple TV, eða iTV eins og það hét. Þokkalegir spekkar, 40gíg diskur og 720p upplausn. En á í harðri samkeppni við Netgear EVO 8000 sem er reyndar ekki með harðan disk en styður allt að 1080p. Ekki það ég sé með þannig sjónvarp, en hey… Ekki viss um að ég vilji nota iTunes til að indexa allar mínar myndir og sýnist að Netgear lofi þokkalega léttri leið í utanumhald. Gæti trúað að Netgear sé duglegra í að spila öll möguleg og ómöguleg form af mynd og hljóði.
Svo er líka hægt að nota Vista+Xbox360 í að streyma. Það skyldi þó aldrei verða lausnin?
Enda þetta á þessu myndbandi frá CES:

Sýnist þetta vera sama græjan og Gizmodo talar um hér. Vá. Mætti reyndar vera hærri upplausn í skjávarpanum en… sætt.