RSS Feed
Jun 30

Mistök

Posted on Friday, June 30, 2006 in Uncategorized

Er nú ekki lágmark að vita muninn á Al Gore og Dan Quayle?
Aumt að nota Quayle til að halda því fram að Gore sé fífl. En það er auðvitað allt leyfilegt þegar málstaðurinn er góður er það ekki?
By the way, bankar draga ekki niður með sér skuldara þegar þeir fara á hausinn. A.m.k ekki það ég viti. Ef langtímaskuldabréf eru með ákvæðum um fyrirvaralausa innköllun af bankans hálfu ef banki þarf (þeas fer á hausinn) þá vil ég sjá það sannað. Annað mál með hluthafa í bankanum en innistæður eru að hluta tryggðar.
Aftur, auðvitað má fara með fleipur ef málstaðurinn er góður.

Jun 30

Fjórðungsúrslit

Posted on Friday, June 30, 2006 in Uncategorized

Er rétt að ná mér eftir leiðindi og vonbrigði 2. umferðar þar sem hræðsla réði ríkjum. Ekki það að það hefur oftast verði þannig.
Nú eru að mestu stórkanónur eftir og vonandi að leikirnir verði góður. Mig grunar að svo verði ekki.

Þýskaland – Argentína 1 – 2

Liðin sem hafa spilað best hingað til. Því miður lenda þau hér saman og Argentína hefur þetta.

Ítalía – Úkraína 1 – 0

Öll sólarmerki benda til þess að þetta verði svefnleikur. Því miður. Forza Azzuri!

Jun 29

Cave Cave

Posted on Thursday, June 29, 2006 in Uncategorized

Áður en kerfið hrundi var ég að kaupa miða í 14. röð.
Eftir að kerfið kom upp aftur fékk ég miða í 1. röð. Fannst það of nálægt, bað um annan, fékk 21. röð. Jæks… Bað um annan, júps, aftur í 1. röð. Vonandi verður ekki svitalykt af karlinum.

Jun 28

Frábær ferð

Posted on Wednesday, June 28, 2006 in Uncategorized

Var að koma ofan af Skaga hvar Víkingar sóttu þrjú stig í frábærum sigurleik. 4-1.
Það er náttúrulega súrreal ef við verðum í öðru sæti eftir fyrri umferð, jafnvel þó það verði það þriðja.
Rétt að muna að við erum samt aðeins fjórum stigum frá fallsæti. Þetta er bara brjáluð spenna.
Ekki einungis voru Skagamenn gestrisnir á vellinum, ég fékk líka þennan fína kvöldverð hjá Brandi félaga mínum og Eddu konu hans.
(úps. gleymdi að ýta á publish!)

Jun 25

Posted on Sunday, June 25, 2006 in Uncategorized

… þetta var stjarnfræðilega leiðinlegt.
Spáði rétt hér, verst að ég hafði það 2-1 í spáleiknum fyrir vinnuna.
Ég ætla að reyna að gera eitthvað núna til að vakna úr dáinu.

Jun 25

Úbs.

Posted on Sunday, June 25, 2006 in Uncategorized

Gleymdi að blogga… Var á kafi í tölvunördisma
Þetta var flott í gær, Þjóðverjar enn og aftur dúndursterkir, en Svíar ekki sannfærandi. Svo sýndu Mexíkanar svaka leik, minnugir aumingjarskaparins gegn Bandaríkjunum fyrir fjórum árum. Ekki að það dygði, Argentína hafði það með baráttu. Þýskaland Argentína verður hörkuleikur!

England – Ekvador 1 – 0

Ekvadoooooooooooooooooooooooooooooooooooooooooor! England stillir upp varnarsinnuðu 4-5-1, eða 4-1-4-1 eftir því hvernig menn vilja hafa það. Rooney getur alveg spilað einn frammi, en þetta verður ekkert auðvelt.
Meira um Portúgal – Holland á eftir.

Jun 24

Framkvæmdastjóri á lausu

Posted on Saturday, June 24, 2006 in Uncategorized

Þessi atvinnuumsókn er ekki ný tegund. Svarið við henni er hins vegar alveg stórkostlegt. Steve Gibson er flottur.

Jun 24

Fitlið búið, alvaran byrjuð

Posted on Saturday, June 24, 2006 in Uncategorized

Byrjum á því að fara yfir riðlana:

A riðill

Ég spáði Póllandi og Þýskalandi áfram, Þýskaland og Ekvador var reyndin. Smá vonbrigði með Póllana, en Stálið var sterkara en ég bjóst við.

B riðill

Ég spáði England, Svíþjóð, og hafði rétt fyrir mér. Eina óvænta var jafntefli ToT og Svía.

C riðill

Dauðariðillinn var meira aumingjariðill. Ég spáði Serbum og Svartfellingum áfram! Og Hollandi. SoS voru aumingjar, og Argentína dúndursterk. Þarna var ég að veðja á það óvænta og klúðraði.

D riðill

Angóla náði þarna tveim góðum jafnteflum, en Portúgal og Mexíkó fóru áfram eins og ég spáði.

E riðill

100% röð, Ítalía, Ghana, Tékkland og BNA alveg eins og ég spáði, en boy oh boy var það tæpt um tíma. Hægt að segja að Ghana hafi komið á óvart, en Bandaríkin – Ítalía var næstum surprise leikur keppninnar.

F riðill

Króatar ullu vonbrigðum, Ástralir aðeins betri en ætlað var, og Brasilía er að malla þetta í gegn. Á reyndar eftir að horfa á Japans leikinn þeirra, en á ekki von á að þeir heilli mig. Ég spáði þeim þó áfram.

G riðill

Þarna var ég næstum úti að aka eins og Fransí. Spáði þó Sviss og Frakklandi áfram bara í öfugri röð. Hélt að Tógó tæki Suður Kóreu, síðarnefndu voru bara þokkalegir.

H riðill

Sem ég sagði, Spánn og Úkraína áfram. Spánverjar mjög flottir.

Alvöru HM

Nú byrjar svo alvöru heimsmeistarakeppnin. 16 leikir af þessum 64 sem skera út um allt. Einu sinni var HM svona, hvernig líst ykkur ef þetta hefði verið reyndin:
Riðill A: Þýskaland; England; Mexíkó; Portúgal
Riðill B: Argentína; Frakkland; Ghana; Sviss
Riðill C: Brasilía; Ítalía; Ástralía; Svíþjóð
Riðill D: Spánn; Niðurlönd; Ekvador; Úkraína
Ekkert bull. Slatti af Evrópu, Brasilía, Argentína og tvær aðrar þjóðir frá Ameríku, ein Afríkuþjóð (ættu að vera tvær), og ein frá Asíu/Eyjaálfu. I wish…
Ég er reyndar mjög ánægður með þetta, sakna engrar þjóðar þarna eins og stundum áður í 16 liða.
En, það er liðin tíð og nú er þetta bara bikarkeppni.

Þýskaland – Svíþjóð 2 – 0

Þýska stálið gegn sænska … stálinu?. Þetta verður flottur leikur. Bæði lið geta gert mistök sem lífga upp á leikinn, ólíklegt þetta verði skotgrafahernaður. Spái því að Pólland vinni!

Argentína – Mexíkó 2 – 0

Ameríkubardaginn. Auðvitað ekki spurning hver vinnur, en Mexíkó mun gefa allt sitt í þetta.

Jun 22

Snúinn til baka

Posted on Thursday, June 22, 2006 in Uncategorized

Jæja, ég náði nú eitthvað að horfa, en ef eitthvað er þá hefur þetta alveg læknað mig af að því að horfa á alla leiki.
Það er náttúrlega alveg ljóst að hingað til eru það Argentína og Spánn sem eru að spila best. Brasilía er ekki sannfærandi og önnur lið hafa ekki lent í erfiðari leikjum eða verið ósannfærandi.
Dauðariðillinn varð ekki Argentínuriðillin, heldur E riðill sem verður útkljáður nú á eftir. Ítalía og Tékkland fóru í ósannfærandi flokkinn á laugardaginn, og bæði Bandaríkin og Ghana sýndu góða leiki. Bandaríkin eru ekki með góða einstaklinga, en náðu að rífa sig upp eftir Tékkaleikinn og sýna að samhæfni og samstaða er þeirra styrkur. Það er allt opið þó ég haldi að Ítalir eigi að vinna Tékka. Tékkar gætu kallað á meiðslabræðurna Koller og Baroš.
Í kvöld… fer ég á Víking – FH. Á meðan þætti mér óstjórnlega fyndið ef Japan kemst áfram með sigri á Brasilíu, en Króatar ættu að taka Ástrali.
Nóg í bili, lofa að vera duglegri

Jun 22

Myndir

Posted on Thursday, June 22, 2006 in Uncategorized

Hér eru myndir úr brúðkaupinu um síðustu helgi